Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2019, Page 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2019, Page 10
VETTVANGUR 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.1. 2019 Kristinn Magnússon Máltækið „When the goinggets tough, the tough getgoing“ hefur maður heyrt oft á lífsleiðinni. Nýjar rannsóknir á þrautseigju sýna að það geti verið nokkuð rétt. Hugtakið þrautseigja (e. grit) virð- ist eiga rætur sínar í kenningum Ar- istótelesar (384 f.Kr.-322 f.Kr.), nem- anda Platóns og kennara Alexanders mikla. Aristóteles taldi að ein- staklingar sem hefðu góða sjálfs- stjórn og ástunduðu góðar venjur væru líklegri til að ná árangri og lifa góðu lífi. Varðandi vísindi þrautseigju mætti líta á rannsóknir Francis Galton (1892) um sjálfsafneitun og vandlæti sem mikilvægan áfanga. Galton, sem var systkinabarn við Charles Darwin, vildi vita hvaða þættir gerðu það að verkum að einstaklingar næðu ár- angri. Rannsóknir hans voru fyrst og fremst á greindarvísitölu (IQ) og hvernig hægt sé að mæla hana á áreiðanlegan hátt. Hins vegar vantaði kubb í púsluspilið varðandi það hvernig megi ná framúrskarandi ár- angri. Bandaríski heimspekingurinn og sálfræðingurinn William James (1842-1910) sem hefur oft verið kall- aður faðir bandarískrar sálfræði hélt fram því sjónarmiði að hæfileiki ein- staklings tengdist fleiri hlutum en greindarvísitölu. Af hverju nota menn aðeins brot af sínum andlegu hæfileikum og hvers vegna ná sumir einstaklingar árangri en ekki aðrir sem eru með sömu greindarvísitölu. Galton og James, auk nokkurra ann- arra samtíma vísindamanna, komust að því að hæfni og há greindarvísitala er ekki nóg. Þú þarft þrautseigju, ástríðu og vinnusemi. Samkvæmt kenningum James er sjálfsstjórnun á athygli/einbeitingu, tilfinningum og hegðun, lykilatriði í bæði þrautseigju og hugarfari. Rannsóknir á þessum þáttum í dag snúast enn um sömu grundvallarspurningarnar: sem sagt hvað veldur því að fólk öðlast vel- gengni í leik og starfi? 100 árum seinna, eða árið 2009, kom prófessorinn Angela Duckworth fram með hugtakið þrautseigju. Bók hennar „Grit“ hefur selst gríðarlega vel beggja vegna Atlantshafsins. Hugtakið hjá henni nær yfir þraut- seigju og dugnað yfir lengri tíma. Það að setja sér bæði langtíma- og skammtímamarkmið. Og ekki gefast upp þó að á móti blási. Duckworth hefur sagt að þrautseigja tengist að sjálfsögðu innri áhugahvöt en lang- tímavinna að markmiði sé mikilvæg- ari. Þar kemur að sjálfsögðu ástríða sterkt inn þar sem hún hefur áhrif á stefnu okkar í lífinu. Hvaða viðfangs- efni viljum við takast á við og nota okkar krafta og vilja til að bæta. Rannsóknir Angelu Duckworth hafa sýnt fram á mikilvægi þrautseigju fyrir bæði árangur í leik og starfi. Þegar hún var spurð hvort og hvernig hægt væri að þjálfa þrautseigju þá benti hún á prófessor Carol Dweck við Standford University og rann- sóknir hennar á hugarfari (e. mind- set). Gróskuhugarfar er sennilega mikilvægur þáttur fyrir þrautseigju. Í okkar eigin frumrannsókn finn- um við sterk tengsl milli þrautseigju og gróskuhugarfars. Tengslin eru sérlega sterk hjá stúlkum. Sem þýðir að stúlkur með sterkt gróskuhugar- far eru með meiri þrautseigju. Eflum þrautseigjuna í okkur. Þrautseigja – lykill að velgengni í leik og starfi Vísindi og samfélag Hermundur Sigmundsson hermundurs@ru.is ’Hugtakið þrautseigja(e. grit) virðist eigarætur sínar í kenningumAristótelesar (384 f.Kr-322 f.Kr.), nemanda Platóns og kennara Alexanders mikla. Thinkstock Reyktur lax í brunchinn Söluaðilar: Hagkaup, Iceland verslanir, Melabúðin, Kjörbúðir, Krambúðir, Nettó verslanir um allt land og Pure Food Hall í flugstöðinni Keflavík. Með því að velja hráefnið af kostgæfni, nota engin aukaefni og hafa verkhefðir fyrri tíma í hávegum, framleiðum við heilnæmar og bragðgóðar sjávarafurðir. Hafnarbraut 25 | 200 Kópavogi | Sími 554 0000 | www.klaki.is HVOLFARARKARA Handhægir ryðfríir karahvolfarar í ýmsum gerðum. Tjakkur vökvadrifinn með lyftigetu frá 900 kg. Halli að 110 gráðum. Vinsælt verkfæri í matvælavinnslum fiski – kjöti – grænmeti

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.