Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2019, Blaðsíða 27
var fjórir dagar og þrjár nætur og
gist var í tjöldum.
„Við fengum alltaf hádegismat á
leiðinni þar sem var búið að dúka
borð og skreyta diskana. Þeir lögðu
sig svo fram við að bera fram fallegan
og ofboðslega góðan mat,“ segir
Anna.
Fyrstu nóttina sem sofa átti í tjaldi
var svefnpokum útdeilt til hópsins.
„Brynjólfur fékk alltof lítinn svefn-
poka,“ segir hún og hlær.
„Ég var eins og múmía,“ segir
hann hlæjandi. „Svefnpokinn var
góður en ég var ofvaxinn fyrir pok-
ann,“ segir hann og þau nefna að Ís-
lendingarnir hafi gnæft yfir lágvöxnu
heimamennina.
Á öðrum degi göngunnar fóru þau
úr 3000 metra hæð í 4.200 og svo aft-
ur niður um 600 metra. „Við hugs-
uðum bara ég skal, ég skal, eitt skref í
einu. Og þá vorum við gamlingjarnir
bara oftar en ekki í forystu og göngu-
félagarnir sögðu: „follow the Ice-
landers“,“ segir Anna og skellihlær,
en þess má geta að Íslendingarnir
voru töluvert eldri en Bretarnir.
„Þetta tók aðeins á en þetta var
ekki erfitt í sjálfu sér,“ segir Brynj-
ólfur.
„Við keyptum kókalaufspoka í
Cuzco. En burðarmennirnir eru allir
með stóra kúlu af laufum í kinnunum
sem þeir sjúga á leiðinni. Þannig að
við fengum okkur litla kúlu og gerð-
um eins. Ég er sannfærð um það, af
því að ég er með asma, að þetta hafi
hjálpað,“ segir Anna.
Þriðja daginn var gengið í gegnum
regnskóg alsettan litlum orkídeum og
segja þau það hafa verið mikið ævin-
týri. Orkídeurnar voru litlar og fín-
legar og undurfagrar í öllum regn-
bogans litum.
„Þessa nótt vorum við vakin klukk-
an fimm um morguninn til þess að
horfa á sólarupprásina sem var því-
líkt sjónarspil að ég hef aldrei séð
annað eins,“ segir Anna og útskýrir
að í Perú séu 37 tindar sem ná yfir
sex þúsund metrum, og sumir þeirra
eru jöklar.
„Þegar geislar sólarinnar kíktu yfir
fjöllin var svo mikil endurspeglun á
jökla og tinda allt í kring að það var
eins og að sólin væri að koma upp
bæði úr austri og vestri; endurkast
geislanna var þvílíkt. Þetta var alveg
magnað,“ segir hún.
Brynjólfur segir að þrennt hafi
staðið upp úr í ferðinni. „Það var þeg-
ar við komum upp í skarðið og fund-
um að við vorum ekkert sérlega
þreytt. Upplifunin var æðisleg og við
vorum í sigurvímu. Svo var sólarupp-
rásin stórkostleg. Og það þriðja var
þegar við komum í sólarhliðið fyrir of-
an Machu Picchu og horfðum niður á
Machu Picchu og fjallið fyrir aftan
sem gnæfir yfir.“
Dýrin í forgangi
Eftir magnaða daga í Perú var kom-
inn tími á seinni hluta ferðarinnar.
Það tók um sólarhring með einni
næturgistingu að komast til Galapa-
gos-eyja. Þar áttu þau pantaða hótel-
gistingu á Puerto Ayora-eyju en þar
má finna Darwin-safnið og risaskjald-
bökur. Þarna er ekki mikið af ferða-
mönnum því aðeins tilteknum fjölda
ferðamanna er hleypt á eyjarnar í
einu. Ferðamenn fá ekki að dvelja
nema takmarkaðan tíma á Galapagos
og það er langt ferli að sækja um
dvalarleyfi og því er gott að skipu-
leggja ferðina með árs fyrirvara.
Íslensku ferðalangarnir eyddu
dögunum í siglingar um eyjarnar og
dýralíf og náttúran skoðuð. Einnig
fóru þau á Darwin-safnið sem þau
segja stórkostlegt. Þau notuðu líka
tímann til að snorkla í tærum sjó og
var það helst dýralífið sem vakti
áhuga þeirra.
„Dýrin þarna eru algjörlega
óhrædd við mannfólkið og þau koma
alveg upp að manni, en það er bannað
að klappa þeim. Þarna eru fuglar,
skjaldbökur, sæljón og eðlur sem
bara brosa framan í mann,“ segir
Anna og hlær.
„Náttúran þarna er algjörlega
ósnortin og manni líður eins og mað-
ur sé komin í dýralífsmynd hjá Atten-
borough. Mér fannst fuglarnir sér-
staklega heillandi, það var magnað að
vera svona nálægt þeim,“ segir Anna.
„Dýrin hafa þarna allan forgang,“
segir Anna og þau nefna að stundum
komi fyrir að risaskjaldbaka ákveði
að rölta út á veg og draga inn höfuð
og fætur. Þá þurfi sex manns með
þrjú prik sem rennt er undir hana til
þess að færa hana af veginum.
Eftir sextán daga ferð var haldið
heim á leið og Anna og Brynjólfur al-
sæl. „Þetta voru tveir gjörólíkir heim-
ar og báðir mjög áhugaverðir,“ segir
Brynjólfur og segist geta mælt með
svona ferð fyrir alla.
Anna tekur undir það. „Þetta er
ekki eins erfitt og látið er af og það er
hugsað rosalega vel um mann, en
maður þarf auðvitað að undirbúa sig
vel og vera í þokkalegu formi til þess
að geta notið þess betur.“
Á Galapagos-eyjum var undursamlegt að vera að sögn þeirra hjóna. Þar voru dýrin spök og óhrædd við mannfólkið.
Brynjólfur, Anna og Kristín stilla sér upp hjá nokkrum fallegum eðlum á ströndinni sem létu ekki trufla sig.
Á göngunni var boðið upp á frábæran mat og oftar en ekki voru diskarnir
skreyttir fallega fyrir svanga ferðalanga.
Perú-búar eru vingjarnlegt fólk og klæðast afar litríkum fötum.
’Dýrin þarna eru al-gjörlega óhrædd viðmannfólkið og þau komaalveg upp að manni, en
það er bannað að klappa
þeim. Þarna eru fuglar,
skjaldbökur, sæljón og
eðlur sem bara brosa
framan í mann.
Risaskjaldbaka á Galapagos heilsar.
Anna og Kristján Már gnæfa yfir heimamenn og upplifðu sig sem risa í Perú.
27.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600
Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 |
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Taktu bílinn með
til Færeyja eða
Danmerkur
Bókaðu
núna og
tryggðu
þér pláss
FÆREYJAR
2 fullorðnir með fólksbíl
verð á mann frá
ÍSK 16.600
Vikulegar siglingar
allt árið til Færeyja
og Danmerkur
DANMÖRK
2 fullorðnir með fólksbíl
verð á mann frá
ÍSK 30.750