Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2019, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2019, Blaðsíða 36
Ellen Pompeo hefur gert ófáar sjónvarpsskurð- aðgerðir í hlutverki Meredith Grey. LÆKNADRAMA Ein langlífasta læknaþáttaröð allra tíma, Grey’s Anatomy, er komin aftur á Stöð 2 á miðvikudagskvöldum. Þátturinn er nú í sýningum fimmtánda árið í röð. Ellen Pompeo er hvergi nærri hætt að leika Meredith Grey en hún er í hópi aðeins fjögurra leikara sem hafa verið með í þáttunum frá upphafi. Hinir eru Justin Chambers sem leikur Alex Karev, Chandra Wilson sem leikur Miröndu Bailey og James Pickens Jr. sem fer með hlutverk Richards Webber. Auk þess að leika aðalhlutverk í þáttunum hefur Ellen Pompeo verið einn af framleiðendum Grey’s Anatomy frá árinu 2017. AFP 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.1. 2019 LESBÓK KVIKMYNDIR Nú þegar styttist í uppskeruhátíð kvik- myndaiðnaðarins, Óskarsverðlaunin, bíða margir með eftirvæntingu eftir annarri verðlaunahátíð sem er þó á öllu neikvæðari nótum. Razzie-verðlaunin eru veitt degi áður en Óskarinn og þar eru veitt verðlaun þeim sem þykja hafa staðið sig allra verst í bransanum á liðnu ári, ólíkt því sem er á Óskarnum. Tilnefningar til verð- launanna hafa verið kunngjörðar og þar vekur athygli ein tilnefning manns sem leikur sjálfan sig; Donald Trump. Hann er tilnefndur sem versti leikari í aðal- hlutverki fyrir frammistöðu sína í heimildarmyndunum Fahrenheit 11/9 og Death of a Nation. Margir hafa spáð Trump sigri í þessum flokki en hann keppir meðal ann- ars við John Travolta um titilinn versti leikarinn. Trump sigurstranglegur Donald Trump gæti farið með sigur af hólmi í kosningum um Razzie. önnur smáhlutverk í myndinni. Murphy hefur síðan gert þetta marg- oft í sínum myndum, að fara með fjölda hlutverka, en myndin um prinsinn markaði upphafið á þessum stíl leikarans. Svo vel þótti að verki staðið með gervi og útlit í Coming to America að myndin hlaut tvær til- nefningar til Óskarsverðlauna á sín- um tíma; fyrir búninga og fyrir förðun. Léku konung og drottningu að nýju í Konungi ljónanna Ekkert hefur komið fram enn um hlutverkaval í framhaldsmyndinni nema að Murphy leitar nú ásamt leik- stjóranum Craig Brewer til gömlu leikaranna um að vera með í nýju myndinni. Murphy virðist vongóður um að það takist að fá gamla gengið til liðs við nýju myndina ef marka má tilkynningu sem hann sendi frá sér á dögunum þegar greint var frá því að ráðist verði í gerð myndarinnar. „Við Aðdáendur kvikmyndarinnarComing to America, eðaPrinsinn kemur til Ameríku eins og hún hét á íslensku, geta nú tekið gleði sína því loks er von á fram- haldi. Árum saman hefur verið rætt um möguleikann á því að gera aðra mynd um Akeem prins og félaga frá Zamunda og nú hefur Eddie Murphy tilkynnt að framhaldsmynd verði gerð og jafnvel gætu tökur hafist á þessu ári. Upphaflega myndin frá 1988 var sú allra tekjuhæsta fyrir Paramount- kvikmyndaverið það ár og sú þriðja tekjuhæsta í Bandaríkjunum. Myndin naut fádæma vinsælda og gerir enn í dag. Eddie Murphy var ekki aðeins í aðalhlutverki heldur lék hann þrjú önnur hlutverk í myndinni. Arsenio Hall lék raunar sama leik; auk þess að vera í hlutverki hins dygga þjóns Semmi lék hann þrjú höfum sett saman góðan hóp sem Craig Brewer leiðir ... og ég hlakka til að færa allar þessar sígildu og hjart- fólgnu persónur aftur á hvíta tjaldið.“ Myndin átti eftir að hafa margvís- leg áhrif. Sem dæmi má nefna að þau James Earl Jones og Madge Sinclair þóttu svo sannfærandi í hlutverkum sínum sem kóngur og drottning að þau voru fengin til að ljá konungi og drottningu ljónanna raddir sínar í teiknimyndinni The Lion King sem kom út árið 1994. Sinclair lést ári eftir að sú mynd kom út en aðrir úr hópi aðalleikara myndarinnar eru á lífi og gætu tekið þátt í framhalds- myndinni. Samkvæmt því sem gefið hefur verið út um nýju myndina á hún að fjalla um það þegar Akeem, sem Eddie Murphy leikur, kemst að því að hann á son í Ameríku sem hann vissi ekki af. Búast má við því að hann snúi því aftur til Ameríku, til fundar við erfingja krúnunnar af Zamunda. Prinsinn snýr aftur Eddie Murphy vinnur nú að því að fá gamla stjörnum prýdda leikhópinn úr Coming to America til liðs við sig í framhaldsmynd um prinsinn Akeem frá Zamunda. Upphaflega myndin kom út fyrir rúmum 30 árum. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Eddie Murphy hefur verið í aðalhlutverki í mörgum kvikmyndum síðan hann brá sér í hlutverk Akeem. Shari Headley, sem lék Lisu McDowell, hefur helst verið í aukahlutverkum í sjónvarpsþáttum og í sápuóperum. Myndin um prinsinn í Ameríku varð stökkpallur fyrir fleiri en Murphy því sumir aukaleikara myndarinnar skutust upp á stjörnuhimininn síðar. Þar á meðal eru Samuel L. Jackson, sem lék manninn sem reyndi að ræna McDowell-staðinn, og Cuba Gooding Jr. sem lék strák í klippingu. Spítalalífið hafið á ný Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Langar þig í ný gleraugu Það fyrsta sem Marilyn Monroe leikkona tók eftir þegar hún hitti Arthur Miller rithöfund, voru gleraugun! Velkomin til okkar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.