Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2019, Side 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2019, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.1. 2019 FERÐALÖG Þegar fór að hilla undir gullbrúð-kaup hjónanna Brynjólfs Mogensen og Önnu Skúla- dóttur byrjuðu þau að skipuleggja mikla ævintýraferð en undirbúningur tók um ár. Þau ákváðu að nú væri tími til kominn að láta gamlan draum rætast og var stefnan sett á að ganga Inkastíginn í Perú og fljúga svo það- an til Galapagos-eyja. Brynjólfur, sem er bæklunar- skurðlæknir á eftirlaunum, og Anna, löggiltur endurskoðandi, eru rétt skriðin yfir sjötugt. Þau hafa ætíð gengið mikið og stunda bæði útivist og golf. Þau voru því í ágætis formi en notuðu árið í fyrra til að ganga á minni fjöll til að komast í gott göngu- form fyrir 82 kílómetra göngu um Andesfjöllin. Hjónin lögðu í hann 11. október í fyrra ásamt vinum sínum, hjónunum Kristínu Einarsdóttur og Kristjáni Má Sigurjónssyni. Flogið var frá London til Cuzco í Perú, en sú borg var höfuðborg Inkaveldisins. Þar hittu þau hópinn sinn en ferðin var skipulögð af bresku ferðaskrifstof- unni Exodus Travel. Í ferðamanna- hópnum voru þrettán manns; fjórir Íslendingar og níu Bretar. „Þessi ferð var búin að vera á draumaplaninu í mörg ár en það vannst aldrei tími. Svo ákváðum við fyrir ári síðan að nú væri ekki seinna vænna ef við ætluðum að gera þetta og völdum þessi tímamót, gullbrúð- kaupið. Það voru mjög margir að draga úr okkur; þetta væri of erfitt og ekki fyrir gamlingja. Ein sagði að þetta væri „one way ticket“ fyrir okkur,“ segir hún og hlær. Þrátt fyrir þessar ráðleggingar að halda sig heima létu þau slag standa. „Stína og Stjáni voru strax til í tuskið en við höfum ferðast saman í áratugi,“ segir Brynjólfur. „Við ákváðum að fyrst við værum að fara til Perú myndum við líka fara til Galapagos því við myndum væntanlega ekki fara aftur til Suður- Ameríku, a.m.k. ekki í bráð.“ Logandi tindar allt í kring Eftir næturgistingu í Cuzco var lagt af stað í dalinn helga áður en gengið var eftir hinum eiginlega Inkastíg. Þau segja fyrsta daginn hafa verið þægilegan enda var þeim gefinn tími til að aðlagast hæðinni. Hann var not- aður í styttri göngur þar sem skoð- aðar voru fornminjar og merkir staðir. Gist var þá um nóttina í gam- alli Inkaborg, Ollantaytambo sem er í 2.800 metra hæð. Næsta morgun var lagt af stað í gönguna miklu en gengu þau með dagpoka. Með í för voru nítján burðarmenn sem báru allar vistir því ekki er hægt að nota burð- ardýr þarna sökum brattra trappa sem liggja víða um fjöllin. Strangar reglur gilda og mega burðarmenn að- eins bera tuttugu kíló hver. Auk þess fylgdu þessum þrettán manna hópi kokkur, aðstoðarmaður og tveir leið- sögumenn. Hjónin segja vel hafi verið hugsað um þau og þau fengu þrjár máltíðir á dag og millimál, en gangan Ljósmyndir/Einkasafn Machu Picchu var stórfenglegt að sjá eftir fjögurra daga göngu. Á Inkaslóðum og Galapagos Gullbrúðkaup Önnu Skúladóttur og Brynjólfs Mogensen var tilefni einstakrar ævintýraferðar til Perú á Inkaslóðir og til náttúru- perlunnar Galapagos. Ferðin var í alla staði ógleymanleg. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Anna Skúladóttir og Brynjólfur Mogensen nutu lífsins í Perú þar sem þau gengu Inkastíginn. Gangan tók fjóra daga og gist var í tjöldum á leiðinni. „Við hugsuðum bara ég skal, ég skal, eitt skref í einu. Og þá vorum við gamlingjarnir bara oftar en ekki í forystu og göngufélagarnir sögðu: „follow the Icelanders“,“ segir Anna Skúladóttir sem fór ásamt manni sínum Brynjólfi Mogensen og hjón- unum Kristínu Einarsdóttur og Kristjáni Má Sigur- jónssyni á Inkaslóðir og til Galapagos-eyja. Fagnaðar– fundir af öllum stærðum og gerðum Bókaðu 8–120 manna fundarými. Nánar á harpa.is/fundir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.