Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Side 2
Hvað er Verksmiðjan?
Verksmiðjan er nýsköpunarkeppni ungs fólks í 8.-10. bekk
þar sem unglingar fá tækifæri til að koma með hugmynd
að hönnun. Það eina sem þarf að gera er að fara inn á
ungruv.is/verksmidjan og senda inn hugmynd fyrir
7. febrúar. 30 hugmyndir verða valdar af dómnefnd
og þróaðar áfram í einfaldar frumgerðir með Fab
Lab-smiðjunum og tíu bestu hugmyndirnar verða
síðan teknar lengra. Úr verða fimm sjónvarps-
þættir sem verða sýndir á RÚV í vor en tónlistar-
maðurinn Daði Freyr Pétursson og leikkonan
Berglind Alda Ástþórsdóttir eru umsjónarmenn
þáttanna. Daði Freyr tekur líka virkan þátt og ætlar
að þróa nýtt hljóðfæri. Þetta er mjög spennandi og
einstakt tækifæri fyrir ungt fólk. Af hverju geta
unglingar ekki komið með einhverja geggjaða hug-
mynd að einhverju trylltu stöffi eins og fullorðið
fólk?
Fær ungt fólk bestu hugmyndirnar?
Ímyndunaraflið sem ungt fólk hefur er svo mik-
ið. Þegar maður fullorðnast þá lokast aðeins á
ímyndunaraflið. Þess vegna finnst mér svo gam-
an að vinna með ungu fólki því það opnar augun
á manni á svo marga vegu. Þetta er akkúrat fyr-
ir ungt fólk, hugmynd að hönnun til að gera lífið
skemmtilegra og betra. Við erum að lyfta upp
hugmyndum unglinga. Þessar hugmyndir eru
til staðar en það er mikilvægt að við fullorðna
fólkið tökum við þeim og styðjum við þau til að sjá
til þess að þeirra hugmyndir verði að veruleika.
Er UngRÚV nauðsynleg viðbót í
fjölmiðlaflóruna?
Já, algjörlega. Það þarf að vera eitthvað til fyrir ungt fólk,
þar sem það framleiðir sitt efni og hefur áhrif á það
sem gerist en við erum með ungmennaráð. Það
skiptir svo miklu máli að þau fái þessa rödd.
Þetta á að vera skemmtilegt, eitthvað sem
kemur frá þeim. Þetta á að vera vettvangur
þar sem allir unglingar sameinast. Mér
finnst þetta svolítið eins og fræðandi og
skemmtileg félagsmiðstöð á netinu. Skjátími er
mikill og það er mikilvægt að við gerum skjátímann fræðandi, að við
gerum hann skemmtilegan og gagnlegan; það er okkar hlutverk.
Uppáhaldssamfélagmiðlinn þinn?
Instagram.
Morgunblaðið/Eggert
HAFSTEINN VILHELMSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Félagsmið-
stöð á netinu
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.2. 2019
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Oft má spegla atburði samtímans í bókmenntaverkum, einkum barna-bókmenntum þar sem efnið er sett fram án málalenginga. „Hver opnaði mygluholuna?“ er stóra spurningin í einum sjón-
varpsþáttanna um Ávaxtakörfuna sem gerðir voru fyrir nokkrum árum. Eins
og gjarnan í barnaefni þá er boðskapur með sögunni, sem foreldrar síðan
geta rætt við börn sín. Í þáttunum, leikritinu og kvikmyndinni um Ávaxta-
körfuna eru lexíur er tengjast einelti, fordómum og ofbeldi áberandi. Gegn-
um stuttar sögur úr lífi ávaxtanna í körfunni er sýnt hvernig hægt er að
bakka út úr slæmri hegðun, taka ábyrgð og bæta samskipti.
Ávaxtakarfan er nokkurs konar kennslubók í því hvernig hægt er að hætta
að vera fáviti og þátturinn um mygluholuna er engin undantekning. Yfir
körfuna leggst ákaflega vond lykt sem í fyrstu er talin vera prumpufýla.
Uppi verður fótur og fit þegar ávextirnir reyna að komast að því hver prump-
aði. Í fyrstu kennir Immi ananas Geddu gulrót um fýluna, enda sé grænmeti
almennt verr lyktandi en ávextir og hljóti að prumpa meira. Þegar betur er
að gáð kemur í ljós að óþefurinn er
myglulykt en ekki prumpufýla. Ein-
hver hefur opnað mygluholuna!
Fljótlega berast böndin að Imma
ananas, sjálfskipuðum leiðtoga
ávaxtanna og þekktum yfirgangs-
segg. Mæja jarðarber spyr hann
beint út: „Immi, opnaðir þú hana?“
Svarið er ekki eins hreint og beint:
„Sko, það fer soldið eftir því hvernig
þú lítur á það sko. Ef enginn sá mig
opna hana, þú veist, opnaði ég hana
þá?“ svarar Immi þá. Mæja gengur
á Imma og vill skýrt svar. „Já ok, ég
opnaði hana!“ viðurkennir Immi pirraður og uppsker hneykslan hinna ávaxt-
anna. „Það er ekkert mér að kenna!“ segir hann með þjósti, bæði sár og
móðgaður. Þetta var sko ekki honum að kenna og þó hann hafi opnað myglu-
holuna telur hann ekki fyllilega ljóst að hann hafi gert það, fyrst enginn sá
það.
Ummæli Bergþórs Ólasonar Klausturþingmanns í Kastljósi á dögunum
voru álíka loðin og ummælin um mygluholuna. „Þessi upptaka sem þarna er
gerð, sem ég held að enginn velkist í vafa um að er ólögleg, en það breytir
engu um það að orðin féllu, hún verður ekki meiðandi fyrr en hún er birt.“
Ef Immi opnaði mygluholuna þá var það hann sem opnaði hana, jafnvel
þótt enginn sæi. Hann opnaði hana ekki minna fyrir því, börn sem horfa
skilja það öll í lok þáttar. Ef Bergþór Ólason var á Klaustri og sagði það sem
hann sagði, þá eru orð hans meiðandi hvort sem þau voru tekin upp eða ekki,
hvort sem upptakan var birt eða ekki. Upptakan er ekki vandamálið heldur
það sem var sagt. Að ýta ábyrgð yfir á Báru og upptökuna er álíka aumt og
yfirklór Imma. Líklega væri ráð að sýna Ávaxtakörfuna á næsta þingfundi.
Immi Ananas, sem heitir
fullu nafni Immanúel Að-
alsteinn Ananas, er ekki viss
hvort hann opnaði mygluhol-
una, þótt hann hafi gert það.
Skjáskot af Youtube
Lexíur Immanúels
Aðalsteins
Pistill
Eyrún
Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
’Sko, það fer soldið eftirþví hvernig þú lítur áþað sko. Þú veist, ef eng-inn sá mig opna hana, þú
veist, opnaði ég hana þá?
Marisa Kalin frá Sviss
Það er þolanlegt í svona klukku-
stund en ekki mikið lengur en það.
En ég er vel klædd í Íslandsferðinni
því ég vissi að það yrði kalt.
SPURNING
DAGSINS
Hvernig
upplifirðu
frostið
undan-
farna daga?
Bjarni Páll Ingvarsson
Ég finn auðvitað fyrir frostinu en
mér finnst þetta bara fínt, klæði mig
bara eftir veðri. Þetta fylgir því að
búa á Íslandi.
Ásthildur Jóna Guðmundsdóttir
Ég er með taugasjúkdóm og finn því
enn sterkar fyrir kuldanum en aðrir.
Maður skoðar bara fasteignir á
Spáni meðan beðið er eftir hitanum.
Marlin Staub frá Sviss
Ég vissi að það yrði kalt á Íslandi en
ekki að það yrði svona hvasst, svo
það er enn kaldara. Ísland er samt
jafnfagurt þrátt fyrir kuldann.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Hari
Hafsteinn er verkefnastjóri UngRÚV. Tekið er við hugmyndum fyrir
Verksmiðjuna til og með 7. febrúar á ungruv.is/verksmidjan.