Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Blaðsíða 26
Gamli bærinn Lamu á Lamu-eyju, sem liggur rétt fyrir utan strandlengju Kenía, er á heimsminjaskrá UNESCO og er einn elsti og best varðveitti Swahili-bær í Austur-Afríku. Eyjan er enn nokkuð laus við fjöldaferðamennsku og eru rólegheit þar í fyrirrúmi. Allt er í hægagangi og segja heimamenn gjarnan: „polepole“, sem þýðir í raun hægt eða hægar. Þarna er gott að rölta eftir ströndinni, sigla á sjónum og skoða gamla bæinn sem er alveg einstakur. Mjóar götur lið- ast milli húsa sem byggð eru úr kóral- steini. Það eru afar fáir bílar á eyjunni en mun fleiri asnar. Það er svolítið eins og að fara aftur í tímann að heimsækja eyj- una. Á Lamu eru haldnar stórar múslímahátíðir en aðaltrúin þarna er múslímatrú. LAMU, KENÍA Aftur í tímann Getty Images/iStockphoto Öðruvísi áfangastaðir Heimurinn er stór og möguleikarnir endalausir. Í kulda- tíðinni er gott að láta sig dreyma um frí og ekki er verra að byrja að skipuleggja sig. Hvernig væri að fara út fyrir þægindarammann og prófa óvenjulega staði þetta árið? Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.2. 2019 FERÐALÖG Andaman-eyjar, sem eru afar afskekktar, tilheyra Indlandi en eru þó þúsund kílómetra frá meginlandinu, í Bengal-flóa í Indlandshafi. Eyjarnar eru yfir 500 talsins en 38 af þeim eru byggðar. Dásamlegar strandir er þar að finna þar sem hægt er að liggja og sleikja sólina svo um munar, fjarri ys og þys hins vestræna lífs. Ef þig þyrstir í æv- intýri er hægt að fara í göngu og kanna regnskóginn. Þarna er líka ósnortin paradís kafarans en sjórinn er tær og fullur af lit- ríkum kóral og hitabeltis- fiskum. Til að glöggva sig á hversu afskekktar eyjurnar eru má nefna að þarna býr ætt- bálkur fólks sem lifir án sam- bands við umheiminn. Þeir veiða sér til matar og lifa nánast eins og á tímum steinaldar, en ekki er hægt að komst í tæri við þetta fólk. Fyrir þá sem vilja komast eins langt og hægt er í burtu frá nú- tímalífi er þetta staðurinn! ANDAMAN-EYJAR Ósnortin paradís

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.