Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Blaðsíða 21
3.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 „Já, já, ég er allt öðruvísi manneskja í dag en ég var þá og er búin að vinna heilmikið í mér. Ég get alveg sett til hliðar óöryggi fólks og hvernig það dæmir mann og ég lít frekar á sálina. Krakkar sem leggja aðra krakka í einelti gera það vegna óöryggis, hræðslu og vanþroska. Það er þó sumt sem situr enn í mér.“ Vondir vilja fyrirgefningu Sirrý segist finna hvers konar sál manneskja hefur að geyma sem sækir tíma hjá henni. „Þá eru það andarnir sem sýna mér það. Ég spyr gjarnan fólk hvort það vilji vita allt og flestir segja já. Þá bendi ég fólki oft á ákveðna hluti í þess fari sem mætti bæta, eins og þegar fólk er í sambúð og hlustar ekki á makann. Það er algengast, að fólk hlusti ekki. Það koma oft skilaboð frá framliðnum til þess að mýkja lífið hjá viðkomandi.“ Hafa komið til þín vondir andar? „Það hafa komið í gegn andar eða framliðnir sem hafa verið barnaníðingar eða ofbeldis- menn; menn sem hafa lagt hendur á konur sín- ar eða börn. Þá er ég voðalega varkár hvernig þeir koma í gegn. Eitt sinn kom í gegn maður sem hafði lamið son sinn svo mikið að hann hafði hlotið heilaskaða og var ekki heill. Mað- urinn vildi fyrirgefningu,“ segir hún. „Það eru nokkrir geðlæknar og sálfræðingar í Boston sem hafa sent fólk til mín, til að hjálpa því við sorg eða annað. Eitt sinn komu systur til mín, og pabbi þeirra kom í gegn. Hann hafði beitt aðra systurina kynferðislegu ofbeldi árum saman, og hann kom í gegn grátandi, og sorg hans og eftirsjá risti svo djúpt og hann bað um fyrirgefningu. Líf konunnar, eftir að faðir henn- ar viðurkenndi afbrot sín gegn henni, breyttist algjörlega og smám saman byrjaði líf hennar að lagast. Hún hefur komið til mín nokkrum sinn- um eftir okkar fyrsta fund fyrir mörgum árum. Fyrirgefningin getur verið mjög sterk, milli okkar heims og andanna.“ Troðið ofan í ruslalúgu Aðspurð hvaða fólk sé að koma í gegn hjá henni í Boston svarar hún að það komi alls konar framliðið fólk. „Ég hef samt tekið eftir því að það er munur á að vera með miðilsfund hér og í Boston, það er allt öðruvísi spenna. Hér er þetta oft eðlilegra; venjulegt fólk og venjuleg mannslát. Úti kemur fyrir að fund- irnir séu mjög óvenjulegir; jafnvel hefur komið fólk í gegn sem lent hefur í skotárásum og eftir 9/11 kom eitt sinn kona sem hafði verið í einni flugvélinni. Ég lýsti konunni í smáatriðum og konan sem var hjá mér skildi allt sem ég sagði. Ég sá hana fyrir mér og svo heyrði ég allt í einu þrumuhljóð. Það var óvenjulegt,“ segir hún og bætir við að nýlega hafi kona nokkur komið til hennar á miðilsfund sem vildi heyra af vinkonu sinni sem hafði verið myrt. „Ég vissi auðvitað ekkert fyrirfram; það kom til mín þessi unga kona sem vildi hitta mig. Mér fannst ég vera í New York og sá tvo stóra turna og útsýnið þaðan, en ég vissi samt að þetta voru ekki tvíburaturnarnir, því það voru íbúðir í þessum turnum. Ég lýsi því öllu og svo sé ég konu sem var að ganga í gegnum krísu, eins og skilnað. Svo fann ég allt í einu eins og þessi kona flygi fram af byggingu. Mér fannst eins og ég væri að detta og spurði and- ann og hún lyftir mér í huganum upp nokkrar hæðir fyrir ofan tuttugustu hæðina. En það er voða dimmt þar sem ég flýg niður. Konan skildi þetta allt og sagði mér að vinkona sín hefði verið myrt með því að henni var ýtt niður ruslalúgu af 27. hæð,“ segir hún og útskýrir að maður konunnar hafi látið drepa hana. „Svo hefur sá yngsti sem lést í brunanum í næturklúbbnum The Station í Rhode Island, Nick O’Neil, komið í gegn, en í þeim bruna dóu hundrað manns. Það var mjög sérstök tilfinning að upplifa í gegnum hann að vera fastur í þessum tónleikasal umvafinn eldglæringum og engin leið út. Eftir að ég kynntist honum kynntist ég for- eldrum hans og hef verið með nokkra stóra fundi með þeim að safna peningum til góðgerðarmála.“ Fann týnda hringinn Fólk er gjarnan forvitið að vita eitthvað um framtíð sína og segir Sirrý marga vilja vita hvenær næsti elskhugi muni birtast. „Ég lít á það þannig að það er meira í lífinu heldur en það og mér finnst það ekki eiga að vera númer eitt, tvö og þrjú. En ég vinn þann- ig að ég nefni hluti sem hafa nýlega gerst í for- tíðinni og lýsi þeim atburðum frekar vel. Svo fer ég í núið og ef fólk skilur það veit ég að ég er tengd. Það er hægt að spá í hvað sem er en nú á dögum tala ég bara. Það er hægt að spá í matardiska, kaffibolla, spil, lyklakippur, ljós- myndir. Það skiptir ekki máli hvað það er, allir hlutir hafa orku af okkur í sér,“ segir hún. Sirrý er einnig oft beðin um að finna hluti sem fólk hefur týnt. „Ég hef fundið demantshringa, mikilvæg bréf, erfðaskrá og allt milli himins og jarðar,“ segir hún. „Eitt sinn bað kona mig um að finna hring; giftingarhring mömmu sinnar. Ég fór með henni í hús móður hennar og gekk um húsið en settist svo í eldhúsið og sagði; hann er einhvers staðar hérna. Svo vildi hún fara með mig á næstu hæð fyrir ofan en ég fann strax að hringurinn væri beint fyrir neðan mig í eldhúsinu, og fór aftur niður. Svo fékk ég vitrun og stóð upp, opnaði skáp og þar blasti hringurinn við á nagla inni í skápnum. Ég sá það, fann og vissi,“ segir hún. Hjálpar fólki í sorg Sirrý er nú farin aftur til Boston en hefur not- að tímann í janúar til þess að vera með skyggnilýsingar og námskeið hér á landi og unnið með öðrum íslenskum miðlum. Eftir hverju er fólk að leita sem kemur til þín? „Það er svo margt í þessu. En ég er aðallega að hjálpa fólki í sorginni. Þegar fólk missir ein- hvern mjög nákominn fer hjartað í mikla sorg og þá getur mjög oft hjálpað ef miðill lýsir hin- um látna og sambandi þeirra,“ segir hún. Sirrý ferðast oft víða um heim og sækir ráð- stefnur en segir að það besta við starfið sé allt fólkið sem hún hittir. „Og að sjá sorgina lyftast.“ Hvað segirðu við fólk sem trúir ekki á miðla eða líf eftir dauðann? „Það er allt í lagi, ég hef verið í þeim spor- um,“ segir hún og hlær. „Ég er aldrei að reyna að sannfæra einn né neinn.“ Morgunblaðið/Ásdís ’Ég var eitilharður guðleys-ingi. Ég trúði ekki á guð,ekki á líf eftir dauðann. Égtrúði bara að maður fæddist og dæi og ekkert meir.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.