Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.2. 2019 VETTVANGUR Ímyndum okkur auðkýfing semlendir á einkaþotu sinni á Heat-hrowflugvelli í London. Hann er fljótur frá borði í krafti forréttinda sinna en þegar hann ætlar að kom- ast inn í miðborgina kárnar gamanið því einkabílstjórinn hans kemst ein- faldlega ekkert hraðar en við hin. Það eru ekki margir geirar sam- félagsins þar sem svo háttar að ekki er hægt að kaupa sig fram fyrir. Sumir vilja heilbrigðiskerfi sem veit- ir efnafólki forgang, að það fái alla vega að liggja sólarmegin. Á Íslandi hefur samfélagið sem betur fer hafn- að slíku og er nú verið að reyna að vinda ofan af gjaldtöku í kerfinu. Það er í þágu jafnaðar og er vel. En hvað með húsnæðiskerfið? Al- mennt fór húsnæði Íslendinga batn- andi á síðari hluta tuttugustu aldar og er almennt gott. Settir voru staðl- ar og reglur til að stuðla að sem mestum gæðum, góð dagsbirta yrði að ná inn í híbýlin, geymslurými yrði að vera til staðar og í seinni tíð að- gengi fyrir fatlaða. Þessa lágmarks- staðla hefur upp á síðkastið tíðkast að kalla reglugerðarfargan og má að mínum dómi alls ekki rugla saman við breytt fyrirkomulag eftirlits með byggingum, sem hefur fært það upp í hvítflibbann og jafnframt fjarlægt frá þeim sem verkin vinna, og sumt í einkavæddu formi. Reglugerðirnar sem ég vil ekki sjá á bak eru þær sem eiga að tryggja tekjulitlu fólki lágmarks- gæði í húsnæði. Á tímum Sigtúns- húshópsins, húsnæðishreyfingar sem spratt upp á níunda áratugnum, brást þáverandi ríkisstjórn meðal annars við með því að senda sér- fræðinga til Japans til að finna hina einu réttu lausn fyrir Íslendinga í húsnæðismálum. Fram komu til- lögur um agnarsmátt húsnæði, brot af því sem hér tíðkaðist enda Jap- anir almennt smágerðari en Íslend- ingar. Á þessum tíma komst líka í tísku að gera sameiginlegu rými hátt undir höfði og voru í samræmi við það teiknaðir stúdentagarðar með smáum híbýlum en þeim mun stærri sölum með pálmatrjám og borðtenn- isborðum. Á daginn kom að fáir reyndust vilja sitja undir pálmunum eða spila borðtennis með sambýl- ingum sínum, flestir vildu hafa rýmra í kringum sig í eigin íbúð. Á undanförnum árum hafa tals- menn stúdenta verið fyrirferðar- miklir í húsnæð- isumræðunni og er það ágætt fyrir hönd þeirra sem þurfa á tíma- bundnu smáhús- næði að halda eins og náms- menn, þar er jap- anska lausnin ef- laust ágæt. Þegar okkur er hins vegar sagt að fátækt fólk þurfi ekki geymslur eða stæði fyrir bílinn þá hljóta talsmenn lágtekjufólks að sperra eyrun, hvað þá þegar ekki á að gera ráð fyrir að í ódýrari íbúðarhverfum sé fatlað fólk á ferðinni, hvort sem er til búsetu eða í heimsóknum. En gleymum ekki að þótt almennt sé húsnæði gott, þá er nú komið til sögunnar raunverulegt neyðar- ástand. Stór hópur fólks býr í óvið- unandi, ósamþykktu húsnæði og sýnir verkalýðshreyfingin þá lofs- verðu ábyrgð að vilja leysa vanda þessa fólks. En það má ekki gera með því að fórna ávinningum undangenginna áratuga um lágmarks lífsgæði í hús- næði. Þarna þurfa því að koma nokkrir milljarðar frá ríki og sveit- arfélögum sem eiga sjálf að axla ábyrgðina en útvista henni ekki. Og þá aftur að bílaumferðinni í London eða kannski bara í Reykja- vík. Þar er umferðin orðin býsna þung. Hvernig á að leysa þann vanda? Með enn fleiri akreinum og umferðarslaufum eða með betri al- menningssamgöngum? Ég vel síðari kostinn, vil sætta mig við tíma- bundnar tafir í umferðinni eins og gerist í öllum borgum heims, vel vit- andi að þessar tafir munu smám saman hrekja okkur upp í strætisvagninn á álagstímum, óháð efnahag okkar. Það mun einfald- lega gerast vegna þess að við verð- um fljótari í för- um í almennings- vagni með forgang en við er- um á einkabíln- um. Þriðja lausnin er náttúrlega líka til og hún er að taka bílinn af fátæka fólkinu. Hafa engin bílastæði við hí- býli þess og síðan rukka svo ræki- lega á vegunum að tekjulítið fólk hafi ekki efni á að aka um þá. Þetta myndi eflaust kæta ein- hverja sem búa við góð efni og gætu fyrir vikið ekið greiðar á fáfarnari vegum. Þeim kynni að finnast bíl- leysið ágætt – það er að segja fyrir alla hina. Geymslulaus hús og bílalausar götur ’Á tímum Sigtúns-húshópsins, húsnæð-ishreyfingar sem sprattupp á níunda áratugn- um, brást þáverandi ríkisstjórn meðal annars við með því að senda sérfræðinga til Japans til að finna hina einu réttu lausn fyrir Íslendinga í húsnæðismálum. Fram komu tillögur um agnar- smátt húsnæði. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is Morgunblaðið/Eggert Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Skinnhúfa kr. 19.800 Vargur kr. 37.000 Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Hálsmen kr. 13.900 Glæsilegir skartgripir innblásnir af íslenskri sögu G U L L S M I Ð U R & S K A R T G R I PA H Ö N N U Ð U R Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is Rithöfundurinn Þórdís Gísladótt- ir tísti: „Ég í sundklefa áðan (lít ofan í tösku): Ahh já, þessi marokkóska arganolía er örugglega mjög góð fyr- ir hárið í þessum brunagaddi (klíni henni í blautt hárið). Ég núna: Þórdís, þú lyktar eins og skunkur og hárið á þér er eins og þú hafir dýft því í pott með kleinusteik- ingarfeiti.“ Í tilefni frétta um að hand- boltamaðurinn Guðjón Valur Sig- urðsson hefði gert samning við París Saint- Germain tísti Einar Örn Jóns- son íþrótta- fréttamaður: „Sko, yfirleitt tjái ég mig ekki um minn fyrrverandi herbergisfélaga (kenndi honum allt sem hann kann) en … þetta er stærra en fólk átt- ar sig á. Hann verður fertugur og er ennþá betri en allir aðrir í sinni stöðu. Il phenomenon er réttnefni og það er vægt orðað.“ Berglind Pét- ursdóttir, jafnan kennd við Festival, tísti: „Samstarfs- félagar mínir voru allir að stinga sig með einhverjum ketómæli með sömu nálinni. Sinnir Frú Ragnheiður svona tilfellum?“ AF NETINU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.