Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Blaðsíða 23
3.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Franski hönnuðurinn Philippe
Starck hefur hannað húsgagna-
línu fyrir hinn þekkta ítalska
framleiðanda Cassina. Húsögnin
eru öll úr efni sem kallast
„Apple Ten Lork“, nýju efni sem
búið er til úr eplahýði og kjarna
úr eplum og á að koma í stað
leðurs. Hingað til hefur þetta
efni verið úrgangur en ítalska
fyrirtækið Frumat hefur verið
að þróa það.
Alls eru 16 húsgögn í nýju lín-
unni. Þau fást í takmörkuðu
magni í hvítu, appelsínugulu og
svörtu.
Húsgögnin fást í takmörkuðu magni í hvítu, appelsínugulu og svörtu.
Veganhúsgögn frá
Philippe Starck
Skoska hönnunarfyrir-
tækið Timorous Beast-
ies hefur sett á markað
einstaklega litríkt og
óvenjulegt veggfóður.
Mynstrið er margþætt
og sett upp í súlum.
Það er að mörgu leyti
nútímalegt þó það eigi
líka vel heima á herra-
görðum. Veggfóðrið
kallast „Totem Da-
mask“ og fæst í níu
litatónum. Innblást-
urinn fengu hönn-
uðirnir m.a. frá þeim
munstrum sem notuð
eru á mottum frá Mið-
Austurlöndum.
Litríkt veggfóður frá
Skotlandi
Barbie fagnar 60 ára afmæli í ár
sem er ágætis árangur í síbreyti-
legum heimi leikfanga. Lengst af
hefur hún mest sést í ljóskumynd
og verið gagnrýnd fyrir það en
eins og meðfylgjandi mynd sýnir
hefur Barbie mörg andlit. Á
myndinni er að finna prótótýpur
og ekki er víst að þær fari allar í
framleiðslu. Þrátt fyrir mikla
samkeppni í leikfangaiðnaðinum
selur Mattel fleiri en 58 milljón
Barbie-dúkkur á ári í alls 150
löndum.
Alls hafa selst fleiri en einn
milljarður Barbie-dúkka frá því
að hún var fyrst kynnt til sög-
unnar á alþjóðlegri leikfangasýn-
ingu í New York 9. mars 1959.
Hugmyndasmiður dúkkunnar er
Ruth Handler, sem hannaði hana
með hjálp verkfræðingsins Jack
Ryan. Handler fékk hugmyndina
eftir að fylgjast með Barböru,
dóttur sinni, leika sér með papp-
írsdúkkur í hlutverki fullorðinna.
Á þessum tíma voru flestar
barnadúkkur í mynd smábarna.
AFP
Sívinsælt leikfang
Einstaklega fallegt slör á ítölsku
fyrirsætunni Vittoriu Ceretti á
sýningu Chanel. Baðföt eru
óvenjuleg brúðarklæði.
Draumkennt og svífandi frá Jean Paul Gaultier.Plíseraður kjóll frá Zuhair Murad í fallegum litum.
Bæði stutt og sítt frá
Givenchy.
AFP
Fyrirsætan Kaia Gerber
var sem engill í sýningu
Givenchy en listrænn
stjórnandi er Clare
Waight Keller.
Dásamlega léttur og fallegur
sumarkjóll frá Chanel.
Lady Gaga klæddist þessum
sama kjól frá Dior á SAG-
verðlaunahátíðinni, örfáum
dögum eftir að hann var
sýndur á hátískuviku í París.
Það þarf ekki
að vera í kjól til
að skína skært.
Hönnun Zuha-
ir Murad.