Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.2. 2019
LESBÓK
SUKK Tímaritið Guitar World rifjar í nýjasta hefti sínu
upp stóðlífið í kringum hármálmsenuna á níunda ára-
tugnum og þar segir söngkonan Lita Ford eftirfarandi
sögu: „Ég sá Poison oft draga stelpur upp úr áhorfenda-
skaranum og þeir voru með óteljandi stelpur baksviðs.
Það var eins og helvítis gripahjörð! Stelpur rifu utan af
sér fötin og hentu sér í fangið á þessum gaurum. Það
var kynlíf út um allt. Ég meina, ég skildi þetta svo sem
alveg en það fór samt úr böndunum. Mig langaði bara að
segja við stelpurnar: Verið ekki svona vitlausar.“ Phil
Collen úr Def Leppard segir sveitina hafa upplifað það
að stúlkur fleygðu sér í fangið á þeim. „Það voru mjög
undarlegar aðstæður.“ Sem kunnugt er kaffærðu grúv-
ið og grönsið hármálminn upp úr 1990.
Kynlíf út um allt
Lita Ford hress á eitís-tímanum.
KVIKMYNDIR Margir bíða með eftirvænt-
ingu eftir nýjustu Quentin Tarantino-
myndinni, Once Upon a Time in Hollywood,
sem verður frumsýnd í júlí næstkomandi.
Sögusviðið er Hollywood sumarið 1969, rétt
áður en hin alræmdu Manson-morð voru
framin en frægasta fórnarlambið var leik-
konan Sharon Tate, sem gengin var átta
mánuði með fyrsta barn þeirra Romans Pol-
naskis leikstjóra sem var að heiman er ódæð-
ið var framið. Margot Robbie leikur Tate en í
öðrum helstu hlutverkum eru Leonardo Di-
Caprio, Brad Pitt, Al Pacino og Damon
Herriman sem leikur Charles Manson.
Styttist í sýn Tarantinos á Manson-morðin
Margot Robbie þykir líkjast Sharon Tate.
„Mig hafði lengi langað að taka
lögin mín sem fengið hafa mesta at-
hygli og raða þeim upp á nýtt, þann-
ig að úr yrði einhvers konar heildar-
áhrif. Ég hef komið víða við gegnum
tíðina og alltaf fengið góða með-
höndlun hjá færum flytjendum og
engin breyting hefur orðið á því nú.
Í stað þess að vera hér og þar eru
lögin hins vegar núna á einum og
sama staðnum.“
Hann segir áferð plötunnar ljúfa
og afslappaða – og með kántríblæ.
„Fólk á að geta hlustað á þessa plötu
í samhengi án þess að verða létt-
skitsófrenískt.“
Féll fyrir kántríinu
Spurður um kántríáhuga sinn svarar
Einar: „Það er löng saga en stutta
útgáfan er sú að rætur íslenskrar
dægurtónlistar og amerískrar
kántrítónlistar liggja ótrúlega ná-
lægt hverjar öðrum. Eins ólíklega og
það hljómar. Nægir þar að nefna
Björgvin Halldórsson, sem kynnt
hefur þessa tegund tónlistar fyrir ís-
lensku þjóðinni, og eins vinsælar
hljómsveitir eins og Sálina og SS Sól
Jú, ég er bara góður, þakka þérfyrir. Er hérna í uppvaskinu,“segir Einar Bárðarson á hinum
enda línunnar á þessum hrímkalda
vetrarmorgni. Í bakgrunni glamrar í
glösum og diskum.
Það kemur svo sem ekki á óvart;
Einari fellur sjaldnast verk úr hendi.
Og hann er að sýsla með diska í fleiri
en einum skilningi um þessar mund-
ir en á föstudaginn í næstu viku
kemur út ný plata, ellegar diskur,
með vinsælustu lögunum hans frá
tuttugu ára höfundarferli. Og öll
verða þau í nýjum búningi, flutt af
öðrum söngvurum en upphaflega.
„Þegar maður er í þeirri skrýtnu
stöðu að hafa komið við á öllum svið-
um íslensks tónlistarlífs nema að
vera flytjandi þá þarf maður annað
slagið að minna á sig og tuttugu ára
höfundarafmæli er ekkert verra til-
efni en hvað annað,“ segir Einar.
Hann kveðst mikið hafa velt því
fyrir sér hvernig best yrði að halda
upp á þessi tímamót, dyggilega
hvattur til dáða af Páli Eyjólfssyni,
sem fleiri þekkja líklega undir nafn-
inu Palli í Prime.
sem sótt hafa í gullkistu kántrísins
gegnum árin, ekki síst samtímasög-
urnar í textunum. Þegar ég bjó í
Bandaríkjunum fyrir um tuttugu ár-
um fór ég sjálfur að hlusta for-
dómalaust á kántrítónlist og féll fyr-
ir henni. Ekki síður textunum en
tónlistinni en þeir eru fullir af litlum
myndum af lífinu. Og það tileinkaði
ég mér í minni sköpun. Lögin mín
eru þúsund litlar myndir.“
Nafn plötunnar er einmitt Myndir
en það er um leið tilvísun í eitt
þekktasta lag Einars. Meðal flytj-
enda eru Jóhanna Guðrún, Klara
Elíasdóttir, Sigga Beinteins, Magni,
Birgitta Haukdal, Friðrik Ómar,
Stefán Hilmarsson, Einar Ágúst,
Gunni Óla, Ingó, Karítas Harpa,
Birgir Steinn og þá syngur Klara
dóttir Einars lag á plötunni sem
upprunalega var flutt af Nylon-
flokknum. Einar er þar sjálfur í bak-
röddum, dóttur sinni til halds og
trausts.
„Allir hafa þessir flytjendur
tengst mér gegnum tíðina og flestir
þeirra sungið lögin mín áður, þó ekki
allir. Tvö lög eru þegar komin í spil-
un í útvarpi; Annars vegar Farin,
sem núna heitir reyndar Farinn, í
flutningi Klöru Elíasdóttur. Ég
bjóst ekki við að hægt yrði að gera
meira fyrir það en Klara fann svo
sannarlega leið. Hins vegar er það
Ég sé þig sem Björgvin Halldórsson
söng upphaflega árið 2002 en Jó-
hanna Guðrún tekur nú meist-
aralega upp á sína arma.“
Þegar Nylon-flokkurinn söng lag-
ið Tætt árið 2004 mun Friðrik Karls-
son hafa haft á orði við Einar að það
Einar Bárðarson er
byrjaður að semja lög
af fullum krafti eftir
nokkurra ára hlé.
Ljósmynd/Arnold Björnsson
Þúsund litlar
myndir
Einar Bárðarson lokar tuttugu ára höfundar-
afmæli sínu með því að gefa út plötu með nýjum
útgáfum af vinsælustu lögum sínum og efna til
tvennra tónleika, á Selfossi og í Hafnarfirði.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra, dreifa, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til inntöku, Panodil Brus
freyðitöflur. Inniheldur paracetamól. Við vægum verkjum. Hitalækkandi. Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Veldu Panodil
sem hentar þér!
Verkjastillandi og
hitalækkandi