Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.2. 2019
HÖNNUN OG TÍSKA
eins og lítill heimur. Hugmyndin
er að hringlaga formið tákni heim-
inn; heim þar sem þú ferð í bestu
föt þín til að sýna persónuleika
þinn,“ sagði hún eftir sýninguna
við Vogue. Myndin sem dregin var
upp var af sirkusbúningum sem
notaðir væru aftur og aftur í
hringnum. Þarna var boðið upp á
„handverk sem er klárað en ekki
fullkomið, föt sem eru notuð aftur
og aftur. Mér finnst vera fegurð í
hlutum sem eru notaðir lengi.“
Þessi kjóll frá Valentino færi
einhverri Hollywood-stjörnunni
vel á rauða dreglinum.
Pífur og
plíseringar
Mikið var um dýrðir á hátískuviku í París þar
sem helstu tískuhús sýndu hátísku sumarsins
í ár. Þar mátti sjá pífur úr efni í kílómetravís
og nostrað var við hvert smáatriði.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Viktor Horsting og Rolf Snoeren stofnuðu Viktor & Rolf en það er
oft húmor eða skilaboð í hönnun þeirra.
Óvenjuleg lita-
blanda hjá Gior-
gio Armani.
Iris Van Herpen kann að töfra fram
hátískukjólana.
Léttleikandi slá frá Dior. Maria
Grazia Chiuri er listrænn stjórnandi
þessa þekkta franska tískuhúss.
Er þetta höfuðskraut eða hattur
hjá Giorgio Armani? Víst er að
það er skrautlegt.
Dýrðlegt frá Dior. Ákveðin „sund-
hettu“-tíska skaut upp kollinum á
hátískusýningunum.
Þetta slör er ekkert slor. Hönnun
Stephane Rolland.
Það er hvergi eins mikið umdásamlega kjóla og á há-tískuviku í París. Núna
sýndu tískuhúsin það sem koma
skal í vor og sumar í hátískuheim-
inum en þar eru vörurnar ekki
fjöldaframleiddar. Þessi fatnaður
er því á færi fárra en getur veitt
mörgum innblástur.
Kjólarnir voru margir í bleik-
um tónum en silfur, gull og
hvítt passar hátískunni alltaf
vel en hefð er fyrir því að sýna
brúðarkjóla á hátískusýn-
ingum.
Höfuðföt sem minntu á
sundhettur sáust í nokkrum
sýningum en þá þarf að
minnsta kosti ekki að hafa
áhyggjur af hárgreiðslunni.
Sýningarnar voru margar
hverjar mikilfenglegar, ekki síst
hjá Chanel og Dior. Sýning
Chanel fór fram samkvæmt hefð í
Grand Palais en í þetta skipti
var Karl Lagerfeld búinn að
endurskapa umhverfi ítalskrar
villu.
Maria Grazia Chiuri kaus
að hafa sirkusþema á sýn-
ingu Dior. „Sirkusinn er
Pierpaolo Piccioli er
við stjórnvölinn hjá
ítalska tískuhúsinu
Valentino en hér er
listræn útgáfa af
blómakjól.
AFP
Tískuhúsið Valentino er með
langa hefð í gerð pífukjóla.
Listaverk frá Iris
Van Herpen.
Fallegt höfuðskraut með perlum og
óskasteinum hjá Givenchy.