Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Blaðsíða 27
Rúmenía, sem var undir komm- únistastjórn til ársins 1989, trekkir nú til sín ferðalanga sem vilja skoða miðaldabæi og kastala, en sá frægasti þeirra er Bran-kastali þar sem hin uppskáldaða persóna Drakúla er sögð hafa búið. Í Rúmeníu er hægt að fara í al- vöru fjallgöngur í Karpatafjöll- unum en einnig er hægt að njóta strandlífsins við Svartahafið. Gaman er að skoða hinn sjarm- erandi miðaldabæ Brasov sem er við rætur fyrrnefndra fjalla. Höfuðborgin Búkarest er þekkt fyrir góðan mat og frábært nætur- líf. Þarna blandast arkitektúr frá gamla kommúnistatímanum sam- an við art nouveau. RÚMENÍA Á heima- slóðum Drakúla 3.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki. Ekki láta nágrannana í norðri stöðva þig að fara til Suður- Kóreu þar sem má finna þjóð- garða, fjöll og eyjar. Þarna eru líka skíðasvæði á heimsmæli- kvarða enda voru haldnir vetrar- ólympíuleikar þarna á síðasta ári. Ef þú vilt borgarstemningu er nóg um að vera í höfuðborginni Seoul og þar er hægt að versla enda búðir og markaðir á hverju strái. Nauðsynlegt er að skoða Changdeokgung-höllina í Seoul, en hún er frá 15. öld og er á heimsminjaskrá UNESCO. Í Seoraksan-þjóðgarði er fal- leg náttúra en þar má finna þriðja hæsta fjall Suður-Kóreu en einnig heitar náttúrulaugar og óvenjulegar steinamyndanir. Á landamærunum við Norður-Kóreu er að finna hlut- lausa svæðið (The Demilitarized Zone) sem er 257 kílómetra langt og 4 kílómetra breitt. Þessi landamæri eru best vörðu landamæri heims og vin- sæll ferðamannastaður. Ferðamenn þurfa að hafa sig hæga þarna og bannað er að benda í norður eða draga að sér athygli á nokkurn hátt. SUÐUR-KÓREA Ekki benda í norður Kókoseyjar, sem eru undir yfirráðum Ástralíu, liggja í Indlandshafi. Þær eru 27 talsins en aðeins tvær þeirra eru byggðar og aðeins búa um 600 manns á eyjunum. Eyjarnar eru sannkölluð paradís en þarna er hægt að stunda ýmsar vatnaíþróttir eins og köf- un, snorklun, siglingar og veiði og einnig er hægt að fara bæði á brimbretti og flugdrekabretti (kitesurf- ing). Svo er notalegt að njóta lífsins á fámennri strönd eða sigla á kanó til eyðieyjanna í kring. Þarna er mikið fuglalíf sem hægt er að skoða og einnig er þarna golfvöllur. Fólkið þarna sem kallast Cocos Malay hefur verið einangrað frá umheiminum lengi, en fyrstu íbúarnir komu árið 1826 og hafa síðan myndað sína eigin siði, langt fjarri öðru byggðu bóli. KÓKOSEYJAR Á brimbretti við eyðieyjar Fyrir þá sem kjósa ekki týpískar sólarlandaferðir er hægt að skella sér til Nýfundnalands. Þar má finna tæpa þrjátíu þúsund kílómetra af óspilltri strandlengju. Um 200 gönguleiðir er að finna við ströndina og hægt er að sigla á kajak á milli ísjaka. Á milli maí og september má sjá þarna 22 tegundir hvala. Landið er tilvalið fyrir náttúruunnendur og víða er hægt að kaupa sér skoðunarferðir með bátum. Tilvalið er að heimsækja Gros Morne-þjóðgarðinn sem liggur við stórbrotinn fjörð. Í sjónum þar má finna neonlitaðar marglyttur. NÝFUNDNALAND Ísjakar í fjörðum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.