Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Side 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Side 37
væri kjörið fyrir Siggu Beinteins. „Og viti menn, nú syngur hún það loksins, fimmtán árum síðar.“ Ýmsar hugmyndir komu upp í vinnsluferlinu og Einar viðurkennir að hann hafi aldrei verið lengur að búa til plötu. „Þórir Úlfarsson, sem stjórnaði upptökum, var alveg að gefast upp á mér – sex sinnum.“ Hann hlær. Á Skítamóral allt að þakka Og útkoman er eins og best verður á kosið, alltént frá sjónarhóli höfund- arins. „Ég hugsaði í einlægri sjálfs- elsku að mig langaði að gera plötu sem ég sjálfur yrði ánægður með. Þess vegna er ég fyrst og fremst að þessu fyrir sjálfan mig en vonandi geta aðrir notið líka.“ Nöfn Einars og Skítamórals eru tengd órofa bönd- um enda flutti sú sívinsæla hljóm- sveit mörg laga hans í kringum sein- ustu aldamót. Einar segir það útbreiddan misskilning að Skítamór- all eigi sér allt að þakka – það sé þveröfugt. „Þegar allt er skoðað í samhengi kemur í ljós að ég á þeim allt að þakka. Hefði Skítamórall ekki gert Farin að fyrstu „einhleypunni“ sinni árið 1998 er ekkert víst að líf mitt hefði þróast eins og það hefur gert. Mögulega hefði það farið í allt annan farveg. Allir sem á eftir hafa komið hafa fætt og klætt lögin mín og fyrir það er ég óendanlega þakk- látur. Ég hefði alls ekki viljað missa af þessum þætti í mínu lífi.“ Hljótt hefur verið um lagahöfund- inn Einar Bárðarson undanfarin ár og misseri en hann er hvergi nærri hættur að færa þjóðinni dægurlög. „Áhuginn hafði kulnað, ég viður- kenni það. Ætli ég hafi ekki verið orðinn saddur og skautaði þess vegna út af brautinni; fannst ég ekki eiga fleiri ástar- og saknaðarljóð inni. Vinnan við þessa plötu hefur hins vegar kveikt neistann að nýju.“ Þess sér raunar strax merki en fyrsta nýja lagið í um áratug er á nýju plötunni, Okkar líf. „Það lag byggist á smásögu úr mínu eigin lífi en á fyrstu tónleikunum sem við konan mín fórum á saman í Loft- kastalanum sáluga flutti Sálin lagið mitt Okkar nótt. Okkar nótt hefur síðan verið okkar lag og núna er það sumsé orðið Okkar líf. Ég fékk Ein- ar Ágúst til að syngja lagið með mér enda er hann mesti Sálaraðdáandi sem ég þekki. Stefán Hilmarsson er svo með leyniinnkomu. Þess má líka geta að ég fékk Braga Valdimar Skúlason til að hjálpa mér við að loka text- anum. Vonandi er tappinn þar með farinn af flöskunni og hellt verður upp á fleiri lög á komandi miss- erum.“ Tvennir tónleikar Höfundurinn ætlar að fagna útgáfu plötunnar með sögustund og „singa- long“ tónleikum í Hvíta húsinu á Sel- fossi föstudagskvöldið 8. febrúar og svo í Bæjarbíói í Hafnafirði laugar- dagskvöldið 9. febrúar, ásamt fríðu föruneyti. Úrval söngvara kemur fram með Einari á tónleikunum og hljómsveit- ina skipa þeir Þórir Úlfarsson á pí- anó og hammond, Eiður Arnarsson á bassa, Hannes Friðbjarnarson á trommur og þeir Kristján Grétars- son og Pétur Valgarð Pétursson á gítara. Miðasala er hafin á hvora tveggja tónleikana á midi.is. ’ Vonandi er tapp-inn þar með farinnaf flöskunni og helltverður upp á fleiri lög á komandi misserum. 3.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Spiced Honey litur ársins 2019 ColourFutures2019 Er Ellen á útleið? Ellen DeGeneres. AFP ÞRASS Frank Bello, bassaleikari Anthrax, og David Ellefson, bassaleikari Megadeth, sögðust báðir í nýlegu spjalli á sjónvarpsstöð- inni SiriusXM vonast til þess að fjögur vin- sælustu þrassbönd sögunnar, þau er þegar hafa verið nefnd, Metallica og Slayer, eigi eftir að koma fram saman á tónleikum áður en síðastnefnda bandið leggur endanlega upp laupana. Slayer er nú á lokatúr sínum um heiminn. Böndin hlóðu fyrst í tónleika saman undir yfirskriftinni „Big Four“ árið 2010 en sameinuðu krafta sína síðast árið 2014. „Fögnum þessari tónlist saman einu sinni enn – fyrir aðdáendurna,“ sagði Bello. Einu sinni enn – fyrir aðdáendurna Kerry King á Slayer-tónleikum fyrr í vetur. AFP Ozzy Osbourne viðurkennir í samtali við tímaritið Metal Hammer að hann hafi hatað að gera sjón- varpsþættina „The Osbournes“ sem nutu mikilla vinsælda frá 2002 til 2005 og urðu upptaktur að frek- ara raunveruleikasjónvarpi í Bandaríkjunum. „Ef einhver býður þér gull og græna skóga fyrir að vera í sjónvarpi værirðu fábjáni að hafna því,“ segir hann í viðtalinu. „Ég hélt að þetta yrði eins og að drekka vatn en hvernig haldið þið að manni líði eftir að upp- tökulið hefur búið heima hjá manni í þrjú ár? Manni líður eins og helvítis tilraunarottu.“ Gamli leðurbarkinn kveðst hafa verið að fara á límingunum andlega vegna þess að útilokað var að slaka á við þessar að- stæður. „Maður gat ekki einu sinni skvett af sér vatni án þess að óttast að myndavél yrði þar hangandi yfir manni.“ Iðrast einskis Þrátt fyrir þetta iðrast Ozzy, sem orðinn er sjötugur, einskis. „Ég skammast mín ekki fyrir þættina, þeir slógu í gegn. Myndi ég gera þetta aftur? Núna er það Kardashianville. Heimurinn hefur breyst, lagsi.“ Skemmst er að minnast þess að Sharon, eiginkona Ozzys, upplýsti nokkrum árum eftir að þáttunum lauk að fjölskyldan hefði ekki verið söm á eftir. Hún hefur líka sagt að eiginmaður hennar hafi verið undir áhrifum áfengis og lyfja allan tím- ann meðan þættirnir voru í fram- leiðslu. Hvern einasta dag. Sjálfur kveðst Ozzy aldrei hafa horft á þættina. Kannski ekki skrýt- ið enda augljóst á líkamstjáningu hans frammi fyrir myndavélunum að hann hafði ekki hugmynd um hvort það var dagur eða nótt. Ozzy og Sharon Osbourne í banastuði, eins og þeim ein- um er lagið. Sjónvarpsþættirnir reyndu á fjölskylduna. Reuters OZZY HAFÐI ÓBEIT Á THE OSBOURNES Leið eins og tilraunarottu Osbourne-fjölskyldan í þáttunum frægu. Reuters RÚV sýnir á laug- ardagskvöldið spennumyndina A Most Violent Ye- ar sem gerist í New York-borg veturinn 1981 og segir frá innflytjandanum Abel Mo- res sem rekur olíuflutningafyrir- tæki ásamt eiginkonu sinni. Aðal- hlutverk leika Oscar Isaac, Jessica Chastain og David Oyelowo. Sjónvarp Sím- ans sýnir á laug- ardagskvöldið myndina 40 Year Old Virgin með Steve Carell. Andy er fertugur og enn hreinn sveinn. Frítíma sín- um eyðir hann að mestu einsamall, spilandi tölvuleiki, horfandi á Survi- vor eða safnandi leikföngum. Einn dag kemur Andy þó upp um sig fyr- ir framan vinnufélagana og heita þeir honum því að koma honum saman við konu. Hlustendaverðlaun 2019 verða á dagskrá Stöðvar 2 á laug- ardagskvöldið í beinni útsendingu frá Háskólabíói. Tónlistarmenn verða verðlaunaðir fyrir framlag sitt á árinu og eru það hlustendur sem sjá um að velja sitt uppáhald. Fjölmörg tónlistaratriði og kynnir er Kjartan Atli Kjartansson. Á SKJÁNUM UM HELGINA SJÓNVARP Diane Shipley, sjónvarpsgagnrýnandi breska blaðsins The Guardian, gerir því skóna í pistli í vikunni að spjallþáttur Ellenar DeGeneres renni brátt skeið sitt á enda en hann hefur notið mikilla vinsælda frá því hann fór fyrst í loftið árið 2003. Shipley hælir Ellen fyrir góðan þátt gegnum tíðina, þar sem áreynslu- laus sjarmi stjórnandans hafi notið sín í samtölum við ólíklegasta fólk, allt frá Barack Obama yfir í Jane Fonda. Þá hafi Ellen haft einstakt lag á því að skemmta áhorfendum sínum og koma þeim í gott skap með látlausri og hlýrri nærveru sinni. Undanfarið hafi hún þó virkað þreytt og uppistandssýningin hennar sem Netflix sýndi í fyrra sé vísbending um að hugurinn leiti nú annað. Samn- ingur Ellenar við NBC rennur út á næsta ári.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.