Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Qupperneq 40
SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2019
LÚXUS
baðsloppar, þykkir
L og XL
Aðeins6.494 kr.
Fullt verð: 9.990 kr.
35%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
SPA
baðsloppar, þunnir
L, XL og XXL
Aðeins 2.396 kr.
Fullt verð: 5.990 kr.
60%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
Aðeins 172.425kr.
TIVOLI
svefnsófi
Tveggja sæta vandaður svefnsófi.
Orange, grátt eða dökkblátt
áklæði. Stærð: 194 x 103 x 91 cm.
Svefnsvæði: 140 x 195 cm
Fullt verð: 229.900 kr.
25%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
STILLANLEGTHEILSURÚM
með Shape heilsudýnu
SHAPE
B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G
C&J stillanleg rúm:
• Inndraganlegur botn
• 2x450 kg lyftimótorar
• Mótor þarfnast ekki
viðhalds
• Tvíhert stál í burðar-
grind
• Hliðar- og enda-
stopparar
• Hljóðlátur mótor
30%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
afShapedýnumog 20%
afsláttur af botni
Aðeins 260.260 kr.
Verðdæmi:
SHAPE OG C&J SILVER
2 x 90 x 200 cm
Fullt verð 337.800 kr.
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
Janúar
útsalan
í fullumgangi
ALLTAÐ
60%
AFSLÁTTUR
Afgreiðslutími Rvk
Mán. til föst. kl. 10–18 (Holtagörðum)
Mán. til föst. kl. 11–18:30 (Smáratorgi)
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
OP
IÐ
Á
SU
NN
UD
ÖG
UM
Í
DO
RM
A
SM
ÁR
AT
OR
GI SÍÐUSTU DAGAR
60%
AFSLÁTTUR
ÚTSALAFullt verð Útsöluverð
GARNDHANDKLÆÐI 50x100cm 795 318
GARNDHANDKLÆÐI 70x140 cm 1.495 598
GARNDHANDKLÆÐI 90x170 cm 2.495 998
GARNDÞVOTTAPOKI 30x30 cm 175 70
GRAND
kremlit handklæði og þvottapokar
Davíð Stefánssyni þykir vænt
um nafna sinn Davíð Stefánsson
frá Fagraskógi. Eftir því sem
árin liðu þótti honum óþægi-
legra að bera nákvæmlega sama
nafn, þar sem hann sjálfur er
líka ljóðskáld og rithöfundur.
Hann hefur því tekið sér nafnið
Davíð Hörgdal Stefánsson. „Ég
hef hugsað um þetta lengi og
haft mikinn vilja til þess en verið
eitthvað hikandi. Núna er komið að því að ég veit að ég
mun vera að skrifa þangað til ég drepst! Betra seint en
aldrei,“ segir Davíð. Áður hafði hann gefið út nokkrar
bækur undir nafninu Davíð A. Stefánsson en segir það
ekki hafa verið góða ákvörðun heldur hálfkák til að að-
greina sig frá Fagraskógarmeistaranum.
Davíð fékk ritlaun í annað skipti í ár, bæði skiptin í
þrjá mánuði. Takmarkið er að senda frá sér eina bók í ár,
helst tvær. Í vinnslu er skáldsaga um Djáknann, bók um
skapandi skrif og jafnvel ljóðabók eða leikrit.
Hörgárdalurinn er honum kær en þaðan kemur nafn-
ið. „Móðuramma mín ólst upp á Myrká og ef það er ein-
hver staður sem maður lítur á sem heima þá er það þessi
dalur,“ segir hann um staðinn þar sem sterkustu rætur
hans liggja.
„Þar trónir Hraundranginn glæstur og dramatískur
yfir allri tilvistinni, þar ólst amma Dísa upp á Myrká,
þar bjó afi Búi á Ásgerðarstöðum, þar stofnuðu þau
nýbýlið Myrkárbakka, þar ólst mamma mín upp ásamt
stórum systkinahópi, þar bjó ég fyrstu tvö ár ævi
minnar, þar og á Myrká var ég í sveit um árabil og
lærði að snúa og garða og keyra ævagamlan Land
Rover.“
Myndin er tekin af hlaðinu
á Myrká en vinstra megin
sést glitta í Myrkárbakka.
Ljósmynd/Davíð Hörgdal Stefánsson
Davíð frá Myrká
Skáldið Davíð Stefánsson hefur tekið sér nafnið Hörgdal til aðgreiningar frá
Fagraskógarskáldinu. Sterkustu rætur hans liggja í Hörgárdalnum.
Davíð Hörgdal Stefánsson
Ljósmynd/Ragnheiður Arngríms
„Dýrtíðin hérna hefir orðið
mörgum manninum skálkaskjól
til þess að setja ránsverð á vörur
og vinnu sína, ekki hvað síst þeg-
ar viðskiftavinirnir eru neyddir
til að skifta, hvað sem það kost-
ar. Mörgum er einnig ógeðfelt
að „prútta“, vilja heldur borga
það sem upp er sett þegjandi,“
sagði í frétt í Morgunblaðinu fyr-
ir réttri öld.
„Samkeppnin er í mörgum at-
vinnugreinum engin, en í öðrum
eru samtök um dýrleikann,“
sagði ennfremur. „Eitt af ófegri
dæmum af þessu tægi er athæfi
líkkistusmiðanna hérna í bæn-
um. Vegna inflúenzusóttarinnar
fengu þeir, er atvinnu hafa af
dauðsföllum, ærinn starfa um-
fram það sem venjulegt er, enda
var verðið, sem þeir settu upp,
þá svo hátt, að tekur út yfir allan
þjófabálk. Sagt er vönduðustu
líkkisturnar hafi kostað alt að
700 krónum, líkvagn og önnur
aðstoð marga tugi króna. Verð-
munurinn hér og í Hafnarfirði er
mjög mikill og munurinn á því
að kaupa líkkistur og láta smíða
þær sjálfur er margfaldur. Til
samanburðar má geta þess, að í
Kaupmannahöfn er útfarar-
kostnaður tvisvar til þrisvar
sinnum lægri en hér.“
GAMLA FRÉTTIN
Dýrar
líkkistur
Verð á líkkistum í Reykjavík þótti taka út yfir allan þjófabálk árið 1919.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Tim Curry
leikari
Tom Jones
tónlistarmaður
Tryggvi P. Líndal
þjóðfélagsfræðingur og skáld