Morgunblaðið - 19.03.2019, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 9. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 66. tölublað 107. árgangur
HVAÐ BRENNUR Á
UNGU FÓLKI MEÐ
KRABBAMEIN? ÆTLA AÐ SLÁ Í GEGN
HÆFILEGUR
SKAMMTUR
AF FÚTTI
THE POST PERFORMANCE BLUES BAND 30 BÍLARHULDA HJÁ KRAFTI 12
„Að íhuguðu máli
leyfi ég mér að
efast um að af-
greiðsla MDE
[Mannréttinda-
dómstóls Evrópu]
sé réttarfarslegt
gustukaverk, held-
ur tel ég að niður-
staðan sé ný teg-
und óskapnaðar,
sem aðildarþjóðir hljóti að sameinast
gegn í þeim tilgangi að verja fullveldi
sitt.“ Þetta segir Arnar Þór Jónsson
héraðsdómari í aðsendri grein í
Morgunblaðinu í dag, þar sem hann
gagnrýnir harðlega nýgenginn dóm
MDE um skipan landsréttardómara.
Arnar Þór segir meirihluta MDE
hafa sýnt stjórnskipulegri vald-
temprun hér á landi lítilsvirðingu.
Niðurstaðan hafi sett íslenskt rétt-
arkerfi í algjört uppnám og að öllu
óbreyttu muni eftirskjálftarnir vara
lengi. ,,Enn alvarlegri tel ég þó þá
staðreynd að hér hefur erlendur
dómstóll tekið fram fyrir hendurnar
á lögmætum handhöfum íslensks
ríkisvalds,“ segir m.a. í greininni.
Úrlausn MDE megi jafna til þess að
dómstóllinn ýti til hliðar stjórnskip-
unarhefðum sem hafa verið öldum
saman í mótun. Með því megi segja
,,að MDE taki sér æðsta (og ótempr-
að) vald yfir lögum, stjórnmálum og
lagaframkvæmd á Íslandi“. »19
Arnar
Þór Jónsson
Dómur MDE
ný tegund
óskapnaðar
Yfir eitt hundrað íbúar í Hjalla-
hverfi í Kópavogi hafa ritað undir
mótmæli vegna fyrirhugaðra breyt-
inga á deiliskipulagi við Dalveg, en
þar á að rísa stór skrifstofubygging
með 300 bílastæðum á mótum
Breiðsholtsbrautar og Nýbýlaveg-
ar. Óttast íbúarnir að umferð um
Dalveg aukist mjög í kjölfarið, en
hún er nú þegar þung á álags-
tímum. Dalvegur er aðalumferðar-
leið íbúanna til og frá heimilum sín-
um. Fulltrúar mótmælenda eiga
fund með bæjarstjóra á morgun og
stefnt er að íbúafundi. »10
Áhyggjur af aukinni
umferð um Dalveg
Náttúruminjasafn Íslands hefur
óskað eftir því að fá að láni til langs
tíma beinagrind af Íslandssléttbak
frá Dýrafræðisafni Danmerkur.
Danir eiga tvær slíkar beinagrindur
af fullorðnum dýrum sem voru veidd
hér við land 1891 og 1904.
Ekki er til eintak á Íslandi af teg-
undinni og aðeins örfá söfn erlendis
eiga heila beinagrind Íslandsslétt-
baks. Hilmar J. Malmquist, for-
stöðumaður Náttúruminjasafnsins,
segir að ýmsir möguleikar séu fyrir
hendi varðandi sýningarstað fáist já-
kvætt svar frá Dönum. Nýlega var
lokið nákvæmri þrívíddarskönnun á
beinagrind annars Íslandssléttbaks-
ins í Kaupmannahöfn fyrir Náttúru-
minjasafnið. Hilmar segir að skönn-
unin hafi þegar vakið athygli og
önnur söfn hafi leitað upplýsinga um
verkefnið hjá Náttúruminjasafni og
danska fyrirtækinu Rigsters.
Íslandssléttbakur er talinn vera í
útrýmingarhættu og á heimasíðu
NMSÍ segir að heildarstofninn sé
talinn vera 400-500 dýr. Margt bendi
til að beinagrindurnar af dýrunum
sem varðveittar eru í Kaupmanna-
höfn séu meðal þeirra allra síðustu
af dýrum þessarar tegundar en þau
voru veidd í Atlantshafi. »11
Vilja Íslandssléttbak að láni frá Dönum
Tölvumynd/Rigsters
Þrívídd Mikil nákvæmni er í skönnuninni á Íslandssléttbaknum.
Ýmsir sýningarstaðir koma til greina Þrívíddarskönnun vekur athygli
Veitingastað-
urinn Þrír frakk-
ar hefur verið af-
ar vel sóttur und-
anfarnar vikur. Í
tilefni af 30 ára
afmæli staðarins
hinn 1. mars
ákvað Stefán Úlf-
arsson, mat-
reiðslumaður og
eigandi staðar-
ins, að bjóða upp af 30% afslátt. Að
hans sögn hefur gestum fjölgað um
30% á staðnum. „Við megum ekki
missa túristana og landinn á að
geta haft það það gott að hann geti
farið út að borða 1-2svar í mánuði,“
segir Stefán við Morgunblaðið. »16
Þrír frakkar fjölguðu
gestum um þriðjung
Stefán
Úlfarsson
Þrír eru látnir og fimm slasaðir eftir skotárás í
sporvagni í Utrecht í Hollandi í gær. Forsætis-
ráðherra Hollands segir að ekki sé hægt að úti-
loka að um hryðjuverk sé að ræða. Lögreglan
handtók síðdegis 37 ára gamlan mann sem talinn
er hafa skotið á fólk í sporvagninum. »17
AFP
Mannskæð skotárás í hollensku borginni Utrecht
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
SGS og SA slitu kjaraviðræðum hjá
Ríkissáttasemjara í gær. Björn Snæ-
björnsson, formaður SGS, segir
vinnutímamál orsök slitanna en Hall-
dór Benjamín Þorbergson, formaður
SA, segir kjarasamninga margbrotna
og erfitt að taka einstaka hluti út úr.
Aðalsteinn Baldursson, formaður
stéttarfélagsins Framsýnar á Húsa-
vík, segir viðræðuslitin í gær engu
breyta varðandi fyrirætlun félagsins
um að draga samningsumboð sitt til
baka frá SGS.
„Við verðum með fund í dag kl. 17
með stjórn, trúnaðarráði og trúnaðar-
mönnum á vinnustöðum, alls 60
manns, til þess að fara yfir stöðuna og
kalla fram vilja fólks. Fyrir fundinum
liggur tillaga um að draga samnings-
umboðið frá SGS. Ástæðan er einföld,
við höfum lagst eindregið á móti hug-
myndum SA um breytingar á neyslu-
hléum starfsmanna, lengingu dag-
vinnutímabils og lækkun á
yfirvinnuálagi. Við höfum ekki náð að
fá aðra með okkur í þessa vegferð inn-
an SGS. Við teljum okkur því ekki
eiga samleið með þeim að klára þessa
samninga. Við viljum ekki sjá þessa
kjaraskerðingu fyrir okkar fólk,“ seg-
ir Aðalsteinn og bendir á að hug-
myndir um breytingar á vinnutíma
hafi meðal annars gert það að verkum
að Efling, Verkalýðsfélag Akraness
og Verkalýðs- og sjómannafélag
Grindavíkur héldu sínu samningsum-
boði.
Vinnutíminn eldfimur
Slitnaði upp úr viðræðum SGS og SA Framsýn hyggst fá samningsumboðið
til baka og hefur lagst eindregið gegn hugmyndum SA um breytingar á vinnutíma
Slíta sig frá?
» Ef Framsýn samþykkir í dag
að draga samningsumboð sitt
til baka verður það fjórða fé-
lagið sem slítur sig frá SGS.
» Framsýn hefur að sögn
Aðalsteins Baldurssonar verið
boðin velkomin í bandalag VR
og SGS-félaga sem eru með
eigið samningsumboð.
MVonast eftir viðræðum fljótt » 2