Morgunblaðið - 19.03.2019, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2019
Barnaumgjarðir í miklu úrvali
Leyfðu barninu að njóta frelsis í leik og starfi með
ÓBRJÓTANLEGUM barnaumgjörðum
Margir litir í boði
Hægt að breyta í
íþróttagleraugu
með einu handtaki
Göngugötunni Mjódd, Álfabakka 14a, s. 527 1515, gleraugnabudin.is, opið 10-18, laugardaga 11-16.
Persónu
leg
og fagle
g
þjónusta
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Dömurnar í The Post Performance
Blues Band ætla að gefa sér eitt ár til
að slá í gegn. Ekki aðeins á Íslandi
heldur á heimsvísu. Fyrst er mein-
ingin að koma sér á kortið í London.
„Ef fyrirætlunin gengur ekki eftir
leggjum við árar í bát og hættum,“
segir Álfrún Helga Örnólfsdóttir, ein
fjögurra liðskvenna sveitarinnar, sem
hyggst gera heimildarmynd um veg-
ferðina – þessa tilraun okkar til að
„meika’ða“ eins og hún segir. Og
draga ekkert undan. Ákvörðunin er
vel ígrunduð og óhagganleg.
Álfrún Helga talar fyrir munn
hinna; Sögu Sigurðardóttur, Hrefnu
Lindar Lárusdóttur og Guðrúnar
Heiðar Ísaksdóttur. Þær hafa spilað
saman annað slagið síðastliðin tvö ár,
en síðastnefnd er sú eina sem átti sér
fortíð í tónlist þegar þær hófu leikinn.
Hún var áður bassaleikari í Mammút
og er hljóðupptökumanneskja og
gjörningalistakona. Álfrún Helga og
Hrefna Lind koma úr leiklistinni og
Saga Sigurðardóttir er danslista-
kona.
„Við finnum okkur best í tónlistar-
senunni, þótt við séum allar menntað-
ar í öðrum listgreinum. Í hljómsveit-
inni getum við notað hugmynda-
flugið, gert hvað sem við viljum á
sviðinu; leikið, sungið og dansað.
Sjálfri finnst mér ekkert svo mikill
munur á að leika í söngleik eins og
Mary Poppins eða koma fram með
hljómsveitinni, þar sem við notum
styrkleika okkar, hver með sínum
hætti. Það gerist eitthvað ótrúlega
fallegt þegar við mætumst sem
hljómsveit. Meðfram sinnum við svo
annarri listsköpun,“
Sviðsframkoma er aðalsmerkið
Þær kynntust í meistaranámi í
sviðslistadeild í Listaháskóla Íslands
fyrir þremur árum og því kemur ekki
á óvart þegar Álfrún Helga segir að
sviðsframkoma sé aðalsmerki hljóm-
sveitarinnar.
„Við erum frekar villtar á sviði.
Sumir myndu efalítið segja að sviðs-
framkoman væri hysterísk á köflum
en við erum samt ekkert að ögra fólki
þótt það spyrji stundum „Má þetta?“
Flestum finnst sviðsframkoma okkar
bara hressandi.“
Hvers konar sviðsframkoma kallar
á þessa spurningu?
„Aðallega hvernig við notum lík-
amann. Við erum óhræddar við að
fylla út í sviðsrýmið með líkömunum,
ekki endilega að dansa heldur hreyfa
okkur á áhrifaríkan hátt. Við vinnum
oft með hið óvænta, brothætta og
óreiðukennda og því eru tónleikar
okkar stundum á mörkunum að vera
leiksýning eða listrænn gjörningur.
Stundum með húmorísku ívafi, því
fólk má alveg hlæja líka að hinum
myrku hliðum lífsins, sem heilla okk-
ur einna mest sem viðfangsefni.“
Hvernig myndirðu lýsa músikinni
ykkar?
„Rafpopp, sem við búum til með
tölvu, bassa og söng. Eins og nafn
hljómsveitarinnar gefur til kynna,
vinnum við með blúsinn, en erum þó
ekki blúsband í venjulegum skilningi,
heldur á sömu tilfinningalegu nót-
unum. Tilfinningar eins og spennufall
eru til dæmis mjög í okkar anda.“
Vonbrigði hversdagslífsins
Nýlega settu The Post Perform-
ance Blues Band á netið ábreiðu af
smelli Anastaciu, „I’m Outta Love“.
Og það verður að segjast eins og er
að þar virðist ekki vera sérstaklega
létt yfir þeim stöllum. Depurðin
næstum drýpur af andlitunum. Engu
að síður segir Álfrún Helga að þær
spili alla jafna hressilega tónlist og
lofar meira fjöri á næsta myndbandi.
„Við viljum nefnilega umbreyta
depurðinni í fegurð og gleði, og
myrkri í ljós. Þótt þetta fyrsta mynd-
band okkar sé ábreiða, semjum við
yfirleitt lögin og textana sjálfar og
syngjum oft um okkar persónulegu
reynslu. Í einu laginu, „Dysfunctiona-
lity“ fjöllum við til dæmis á kraftmik-
inn og skemmtilegan hátt um skilnað
einnar í hópnum sem finnst að allt sé
að ganga sér úr greipum. Vonbrigði
hversdagslífsins og það að vera
manneskja eru viðvarandi stef hjá
okkur og getur speglast í sambands-
slitum, því að sumarið sé búið eða
bara að upp sé runninn mánudagur.
Ég held að enginn verði þunglyndur
af að koma á tónleika hjá okkur, held-
ur upplifi þvert á móti von, birtu og
gleði.“
Frá því hljómsveitin var stofnuð
fyrir tveimur árum hefur hún að sögn
Álfrúnar Helgu verið að sækja í sig
veðrið í neðanjarðarsenu borgarinnar
og lítillega þreifað fyrir sér erlendis.
„Við tókum þátt í nútímatónlistar-
hátíð á Álandseyjum í fyrrasumar og
um haustið héldum við tónleika í
London á þekktum og rosalega flott-
um tónleikastað, The Windmill, í
London. Kurt Cobain elskaði þennan
stað og margar stórar hljómsveitir
hófu þar ferilinn. Við keyptum okkur
miða til London án þess að eiga nokk-
urs staðar bókaða tónleika, en gegn-
um facebook tókst okkur að redda
okkur þessum tónleikum,“ segir Álf-
rún Helga og útskýrir að þeim til
bjargar hafi verið maður sem þekkti
mann og annan í bransanum þar ytra.
Neðanjarðarsenan og
meginstraumarnir
„Við slógum það mikið í gegn að
húsráðendur buðu okkur að koma og
halda aðra tónleika 21. september
næstkomandi. Núna þurfum við að
sníða einhverja dagskrá kringum
þessa tónleika, kannski getum við
plöggað okkur á fleiri tónleika í Evr-
ópu. Við látum að minnsta kosti á það
reyna á hvernig umheimurinn tekur
okkur.“ Þótt þær segist tilheyra neð-
anjarðarsenunni hafa þær troðið upp
á helstu tónleikastöðum í Reykjavík,
til dæmis Húrra, Mengi og Gauk á
Stöng. En bara einu sinni á hverjum
stað. Það er regla – eða var það. Al-
veg eins og Álfrún Helga segir það
reglu að æfa aldrei lögin áður en þær
flytja þau á sviði. Hún telur samt að
senn þurfi að brjóta báðar reglurnar
– og kannski fleiri sem sveitin hefur
sett sér.
„Flest lögin okkar verða til á tón-
leikum. Við höfum kannski skrifað
niður smátexta, einhverja hugmynd
að laglínu sem við prófum síðan með
áhorfendum. Ef vel tekst til semur
Guðrún einhvern takt undir og við
prófum einu sinni áður en við spilum
það á næstu tónleikum,“ útskýrir
Álfrún Helga og víkur talinu að
meginstraumum í tónlist, sem The
Post Performance Blues Band fylgir
augljóslega ekki. Fyrir það fyrsta
vegna þess að þær flétti saman ólík-
um listformum.
„Við sækjumst ekki eftir að flytja
áferðarfallegar, sykraðar popp-
ballöður, heldur leyfum við okkur að
fara út fyrir hið venjulega og biðj-
umst ekki afsökunar þegar við ger-
um mistök heldur höldum ótrauðar
áfram. Mörkin milli meginstrauma
og þess sem er á jaðrinum geta ver-
ið býsna óljós, en fólk sem sækist
eftir óhefðbundinni tónlist veit að
við erum ekkert sykurpopp. Lista-
spírurnar eru ekki eini markhópur-
inn því við höfum alveg fengið hrós
frá húsmóður í Grafarvoginum og
gröfukalli úr Vesturbænum, sem
hafa labbað inn af götunni á tón-
leika. Við eigum erindi við fólkið.“
Stórir draumar
Og nú sækist þið eftir sviðsljós-
inu, hafið þið reynt að komast í sjón-
varpið?
„Ég hringdi í Gísla Martein, sem
sagði mér að hringja aftur þegar við
værum orðnar „mainstream“. Og nú
erum við að leita leiða til að auka
sýnileika okkar, sem þýðir að við
verðum kannski að fylgja megin-
straumunum að einhverju leyti.
Okkur finnst að utangarðsfólk eins
og við ætti líka að fá að komast inn í
ljósið. Þótt við séum ekki dæmigerð
sveitaballahljómsveit, værum við
fínar sem skemmtiatriði eða gjörn-
ingur á árshátíðum. Núna erum við
að leita að umboðsmanni, sem gæti
komið okkur áfram. Þeir virðast
ekkert mjög spenntir fyrir okkur,
enda vita þeir ábyggilega ekki hvað
þeir ættu að gera við okkur.“
Hvað sem öllum umboðsmönnum
líður segir Álfrún Helga næstu
skref vera að gefa út fleiri lög, spila
meira, vera sýnilegri og fá borgað
fyrir tónlistarflutninginn. Döm-
urnar í The Post Performance Blues
Band dreymir um frægð og frama
og eru ákveðnar í að slá í gegn. Þær
ætla að gefa sér mánuð í London og
Evrópu. Lengur segir Álfrún Helga
að þær geti ekki verið frá börnunum
sínum.
„Við eigum erindi við fólkið“
Hljómsveitin The Post Performance Blues Band hyggst slá í gegn á heimsvísu Tónleikar
í London í september eru bara byrjunin Heimildarkvikmynd gerð um ætlaða frægðarför
Hljómsveitin F.v. Hrefna
Lind Lárusdóttir, Álfrún
Helga Örnólfsdóttir, Saga
Sigurðardóttir og Guðrún
Heiður Ísaksdóttir.