Morgunblaðið - 19.03.2019, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 19.03.2019, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2019 Barnaumgjarðir í miklu úrvali Leyfðu barninu að njóta frelsis í leik og starfi með ÓBRJÓTANLEGUM barnaumgjörðum Margir litir í boði Hægt að breyta í íþróttagleraugu með einu handtaki Göngugötunni Mjódd, Álfabakka 14a, s. 527 1515, gleraugnabudin.is, opið 10-18, laugardaga 11-16. Persónu leg og fagle g þjónusta Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Dömurnar í The Post Performance Blues Band ætla að gefa sér eitt ár til að slá í gegn. Ekki aðeins á Íslandi heldur á heimsvísu. Fyrst er mein- ingin að koma sér á kortið í London. „Ef fyrirætlunin gengur ekki eftir leggjum við árar í bát og hættum,“ segir Álfrún Helga Örnólfsdóttir, ein fjögurra liðskvenna sveitarinnar, sem hyggst gera heimildarmynd um veg- ferðina – þessa tilraun okkar til að „meika’ða“ eins og hún segir. Og draga ekkert undan. Ákvörðunin er vel ígrunduð og óhagganleg. Álfrún Helga talar fyrir munn hinna; Sögu Sigurðardóttur, Hrefnu Lindar Lárusdóttur og Guðrúnar Heiðar Ísaksdóttur. Þær hafa spilað saman annað slagið síðastliðin tvö ár, en síðastnefnd er sú eina sem átti sér fortíð í tónlist þegar þær hófu leikinn. Hún var áður bassaleikari í Mammút og er hljóðupptökumanneskja og gjörningalistakona. Álfrún Helga og Hrefna Lind koma úr leiklistinni og Saga Sigurðardóttir er danslista- kona. „Við finnum okkur best í tónlistar- senunni, þótt við séum allar menntað- ar í öðrum listgreinum. Í hljómsveit- inni getum við notað hugmynda- flugið, gert hvað sem við viljum á sviðinu; leikið, sungið og dansað. Sjálfri finnst mér ekkert svo mikill munur á að leika í söngleik eins og Mary Poppins eða koma fram með hljómsveitinni, þar sem við notum styrkleika okkar, hver með sínum hætti. Það gerist eitthvað ótrúlega fallegt þegar við mætumst sem hljómsveit. Meðfram sinnum við svo annarri listsköpun,“ Sviðsframkoma er aðalsmerkið Þær kynntust í meistaranámi í sviðslistadeild í Listaháskóla Íslands fyrir þremur árum og því kemur ekki á óvart þegar Álfrún Helga segir að sviðsframkoma sé aðalsmerki hljóm- sveitarinnar. „Við erum frekar villtar á sviði. Sumir myndu efalítið segja að sviðs- framkoman væri hysterísk á köflum en við erum samt ekkert að ögra fólki þótt það spyrji stundum „Má þetta?“ Flestum finnst sviðsframkoma okkar bara hressandi.“ Hvers konar sviðsframkoma kallar á þessa spurningu? „Aðallega hvernig við notum lík- amann. Við erum óhræddar við að fylla út í sviðsrýmið með líkömunum, ekki endilega að dansa heldur hreyfa okkur á áhrifaríkan hátt. Við vinnum oft með hið óvænta, brothætta og óreiðukennda og því eru tónleikar okkar stundum á mörkunum að vera leiksýning eða listrænn gjörningur. Stundum með húmorísku ívafi, því fólk má alveg hlæja líka að hinum myrku hliðum lífsins, sem heilla okk- ur einna mest sem viðfangsefni.“ Hvernig myndirðu lýsa músikinni ykkar? „Rafpopp, sem við búum til með tölvu, bassa og söng. Eins og nafn hljómsveitarinnar gefur til kynna, vinnum við með blúsinn, en erum þó ekki blúsband í venjulegum skilningi, heldur á sömu tilfinningalegu nót- unum. Tilfinningar eins og spennufall eru til dæmis mjög í okkar anda.“ Vonbrigði hversdagslífsins Nýlega settu The Post Perform- ance Blues Band á netið ábreiðu af smelli Anastaciu, „I’m Outta Love“. Og það verður að segjast eins og er að þar virðist ekki vera sérstaklega létt yfir þeim stöllum. Depurðin næstum drýpur af andlitunum. Engu að síður segir Álfrún Helga að þær spili alla jafna hressilega tónlist og lofar meira fjöri á næsta myndbandi. „Við viljum nefnilega umbreyta depurðinni í fegurð og gleði, og myrkri í ljós. Þótt þetta fyrsta mynd- band okkar sé ábreiða, semjum við yfirleitt lögin og textana sjálfar og syngjum oft um okkar persónulegu reynslu. Í einu laginu, „Dysfunctiona- lity“ fjöllum við til dæmis á kraftmik- inn og skemmtilegan hátt um skilnað einnar í hópnum sem finnst að allt sé að ganga sér úr greipum. Vonbrigði hversdagslífsins og það að vera manneskja eru viðvarandi stef hjá okkur og getur speglast í sambands- slitum, því að sumarið sé búið eða bara að upp sé runninn mánudagur. Ég held að enginn verði þunglyndur af að koma á tónleika hjá okkur, held- ur upplifi þvert á móti von, birtu og gleði.“ Frá því hljómsveitin var stofnuð fyrir tveimur árum hefur hún að sögn Álfrúnar Helgu verið að sækja í sig veðrið í neðanjarðarsenu borgarinnar og lítillega þreifað fyrir sér erlendis. „Við tókum þátt í nútímatónlistar- hátíð á Álandseyjum í fyrrasumar og um haustið héldum við tónleika í London á þekktum og rosalega flott- um tónleikastað, The Windmill, í London. Kurt Cobain elskaði þennan stað og margar stórar hljómsveitir hófu þar ferilinn. Við keyptum okkur miða til London án þess að eiga nokk- urs staðar bókaða tónleika, en gegn- um facebook tókst okkur að redda okkur þessum tónleikum,“ segir Álf- rún Helga og útskýrir að þeim til bjargar hafi verið maður sem þekkti mann og annan í bransanum þar ytra. Neðanjarðarsenan og meginstraumarnir „Við slógum það mikið í gegn að húsráðendur buðu okkur að koma og halda aðra tónleika 21. september næstkomandi. Núna þurfum við að sníða einhverja dagskrá kringum þessa tónleika, kannski getum við plöggað okkur á fleiri tónleika í Evr- ópu. Við látum að minnsta kosti á það reyna á hvernig umheimurinn tekur okkur.“ Þótt þær segist tilheyra neð- anjarðarsenunni hafa þær troðið upp á helstu tónleikastöðum í Reykjavík, til dæmis Húrra, Mengi og Gauk á Stöng. En bara einu sinni á hverjum stað. Það er regla – eða var það. Al- veg eins og Álfrún Helga segir það reglu að æfa aldrei lögin áður en þær flytja þau á sviði. Hún telur samt að senn þurfi að brjóta báðar reglurnar – og kannski fleiri sem sveitin hefur sett sér. „Flest lögin okkar verða til á tón- leikum. Við höfum kannski skrifað niður smátexta, einhverja hugmynd að laglínu sem við prófum síðan með áhorfendum. Ef vel tekst til semur Guðrún einhvern takt undir og við prófum einu sinni áður en við spilum það á næstu tónleikum,“ útskýrir Álfrún Helga og víkur talinu að meginstraumum í tónlist, sem The Post Performance Blues Band fylgir augljóslega ekki. Fyrir það fyrsta vegna þess að þær flétti saman ólík- um listformum. „Við sækjumst ekki eftir að flytja áferðarfallegar, sykraðar popp- ballöður, heldur leyfum við okkur að fara út fyrir hið venjulega og biðj- umst ekki afsökunar þegar við ger- um mistök heldur höldum ótrauðar áfram. Mörkin milli meginstrauma og þess sem er á jaðrinum geta ver- ið býsna óljós, en fólk sem sækist eftir óhefðbundinni tónlist veit að við erum ekkert sykurpopp. Lista- spírurnar eru ekki eini markhópur- inn því við höfum alveg fengið hrós frá húsmóður í Grafarvoginum og gröfukalli úr Vesturbænum, sem hafa labbað inn af götunni á tón- leika. Við eigum erindi við fólkið.“ Stórir draumar Og nú sækist þið eftir sviðsljós- inu, hafið þið reynt að komast í sjón- varpið? „Ég hringdi í Gísla Martein, sem sagði mér að hringja aftur þegar við værum orðnar „mainstream“. Og nú erum við að leita leiða til að auka sýnileika okkar, sem þýðir að við verðum kannski að fylgja megin- straumunum að einhverju leyti. Okkur finnst að utangarðsfólk eins og við ætti líka að fá að komast inn í ljósið. Þótt við séum ekki dæmigerð sveitaballahljómsveit, værum við fínar sem skemmtiatriði eða gjörn- ingur á árshátíðum. Núna erum við að leita að umboðsmanni, sem gæti komið okkur áfram. Þeir virðast ekkert mjög spenntir fyrir okkur, enda vita þeir ábyggilega ekki hvað þeir ættu að gera við okkur.“ Hvað sem öllum umboðsmönnum líður segir Álfrún Helga næstu skref vera að gefa út fleiri lög, spila meira, vera sýnilegri og fá borgað fyrir tónlistarflutninginn. Döm- urnar í The Post Performance Blues Band dreymir um frægð og frama og eru ákveðnar í að slá í gegn. Þær ætla að gefa sér mánuð í London og Evrópu. Lengur segir Álfrún Helga að þær geti ekki verið frá börnunum sínum. „Við eigum erindi við fólkið“  Hljómsveitin The Post Performance Blues Band hyggst slá í gegn á heimsvísu  Tónleikar í London í september eru bara byrjunin  Heimildarkvikmynd gerð um ætlaða frægðarför Hljómsveitin F.v. Hrefna Lind Lárusdóttir, Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Saga Sigurðardóttir og Guðrún Heiður Ísaksdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.