Morgunblaðið - 19.03.2019, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2019
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
DVERGARNIR
Þungar og öflugar undirstöður
DVERGARNIR R
HNERRIR
DURGURJÖTUNN
DRAUPNIR
ÞJARKUR
Þessir dvergar henta vel sem
undirstöður þar sem þung og
öflug festing er aðalatriði.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þetta er ekki rétti dagurinn til að
sitja heima. Láttu alla sjálfsvorkunn lönd
og leið og gakktu í þau verk sem þér ber
að leysa hverju sinni.
20. apríl - 20. maí
Naut Það hefur ekkert upp á sig að vera
stöðugt að sífra um hluti sem ekkert fær
breytt. Vinur sýnir sitt rétta andlit þegar
hann er beðinn um aðstoð.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Kannski er ekkert sem þú getur
gert til að breyta áliti einhvers á þér.
Skapandi greinar eru það sem heillar þig,
sinntu þeim betur en þú hefur gert hing-
að til.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það getur reynt á þig að halda
heimilisfriðinn. Láttu því ekkert komast
upp á milli þín og vinar þíns og allra síst
viðskiptamál.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Áhyggjur tengdar vinnu eiga rétt á
sér í dag. Varastu að grípa til hvítrar lygi
því hún er engu betri en önnur. Stígðu
varlega til jarðar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu ekki útlit fólks og blíðan róm
blekkja þig því að enn sannast hið forn-
kveðna að oft er flagð undir fögru skinni.
Ný verkefni bíða þín.
23. sept. - 22. okt.
Vog Óvænt uppákoma verður þess
valdandi að gamlar minningar koma upp
á yfirborðið. Gríptu tækifærið ef þú átt
tök á því að bregða þér í stutt frí.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þótt það sé freistandi að
flýja vandamálin græðirðu lítið á því sé til
lengri tíma litið. Ekki kaupa köttinn í
sekknum þegar þú skiptir um bíl.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gamlir kærastar eða kær-
ustur gætu skotið upp kollinum að nýju.
Leitaðu leiða til að láta draum þinn um
stærra húsnæði rætast.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Dagurinn í dag gæti orðið sér-
staklega skemmtilegur í vinnunni. Stór
hópur stuðningsmanna er besta leiðin til
þess að tryggja að þú missir ekki móð-
inn.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hikaðu ekki við að standa á
þínu og verja rétt þinn. Stundum er gott
að láta sig fljóta með straumnum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Viðræður skila miklum og hag-
nýtum árangri í dag. Reyndu að umbera
duttlunga og sérvisku annarra. Aðgát skal
höfð í nærveru sálar.
Helgi R. Einarsson orti fyrirhelgi og var yrkisefnið
„Hún“:
Hún var maður með mönnum,
en sig missteig í dagsins önnum.
Sumir komast í feitt,
en fatta’ ekki neitt
fyrr en skellur í tönnum.
Og síðan sagði hann „Örsögu“
undir limrulagi:
Skrítið að ráða og ríkja,
við reynslubolta sér líkja,
komast á koppinn,
klifra’ upp á toppinn,
hrasa og verða að víkja.
Á miðvikudaginn birtist odd-
hendukrans hér í vísnahorni og átti
Björn Ingólfsson fyrsta blómið í
kransinum:
Burt er hríðin, betri tíð
bætir kvíða og trega,
sólin fríða björt og blíð
brosir gríðarlega.
Þetta gaf Ólafi Stefánssyni tilefni
til að segja, að Björn kenni helst
sólinni um, að hún hafi hlaupið í
hina ágætu oddhendu sem hann
segist hafa gert óforvarandis á dög-
unum:
Sólin hún glampaði’ á Grenivík,
gerði í blóðið sitt, – heillarík.
Svo gerði hún meira,
galdraði fleira:
gekk inn í ljóðið, sem hlaupatík.
Friðrik Steingrímsson yrkir um
bankastjóralaun:
Á sultarlaunum sitja þær,
síst um slíkt má þrátta,
fengu áður fjórar tvær
en fá nú þrjár komma átta.
Helgi Ormsson skrifaði mér fyrir
helgi og sagðist hafa hlustað á vísu
margsungna í þeim þætti, er afhent
voru tónlistarverðlaun fyrir þetta
ár:
Veröld fláa sýnir sig ,
sú mér spáir hörðu,
flestöll stráin stinga mig,
stór og smá á jörðu.
Hann spyr um höfund vísunnar.
Um hann veit ég ekki en við sung-
um þessa vísu ævinlega á söngsal
Menntaskólans á Akureyri.
Faðir minn kenndi mér þessa
vísu og er úr annarri átt:
Næðir fjúk um beran búk
byltist skafl að hreysi;
tunglið yfir Hekluhnjúk
hangir í reiðileysi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Henni, reynslu-
boltum og hlaupatík
„hann er kominn aftur.”
„ÞETTA ER STÓRKOSTLEGT! ÉG Á FULLT
Í FANGI MEÐ AÐ FYLGJAST MEÐ ALLRI
ÞESSARI NÝJUSTU TÆKNI.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að njóta
næturhiminsins.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
SPÁIN FYRIR
DAGINN Í DAG …
LEIÐINLEGUR MEÐ 50%
LÍKUM Á LÁDEYÐU
HÆ,
GRETTIR
LEIÐRÉTT, MEÐ
100% LÍKUM
PABBI, MÁ ÉG FARA
MEÐ Í NÆSTU
SIGLÍNGU?
VIÐ ERUM MEÐ
STRANGAR REGLUR
SEM BANNA KVENFÓLK
UM BORÐ
ÞANNIG AÐ ÞÁ ÞARF ÉG
AÐ LEITA HUGGUNAR Í
FANGI UNNUSTA MÍNS
LÚTS …
ÉG SKAL
ENDURSKOÐA
REGLURNAR
Um miðjan tíunda áratug liðinnaraldar heillaði hollenska fótbolta-
liðið Ajax knattspyrunuunnendur
með frábærum leik. Hátindinum náði
liðið þegar það vann meistarakeppni
félagsliða í Evrópu 1995. Liðið vakti
ekki síst aðdáun þar sem í kjarna
þess voru leikmenn, sem voru upp-
aldir hjá félaginu og síðar áttu eftir
að setja svip sinn á knattspyrnu með
félagsliðum um alla Evrópu. Utan-
umhald um unga leikmenn hjá félag-
inu þótti til fyrirmyndar og skila sér
með afgerandi hætti.
x x x
Nú er lið Ajax aftur komið á fljúg-andi ferð. Í liðinni viku sló liðið
út Real Madrid úr meistaradeild
Evrópu og er þar með komið í átta
liða úrslit. Madridingar hafa verið
með meistaratitilinn í áskrift og
þannig að úrslit viðureignarinnar
þótti sæta verulegum tíðindum. Ajax
tapaði reyndar fyrri leiknum, en í
þeim síðari á útivelli í Madrid vann
liðið stórsigur, 4:1, og skildi heima-
menn eftir í upplausn. Leið Ajax í
átta liða úrslitin hefur verið löng.
Liðið þurfti að slá út þrjú lið til þess
eins að komast í riðlakeppnina og síð-
an að komast upp úr sínum riðli. Það
er ekki sjálfgefið að sigra Real Mad-
rid, þótt liðið hafi átt í vandræðum
upp á síðkastið, og í næstu umferð
bíður Juventus frá Torino, sem
margir telja að muni fara alla leið.
x x x
Það skemmtilega við árangur Ajaxer að hann er byggður á sömu
uppskrift og skilaði stjörnuliðinu fyr-
ir tæpum aldarfjórðungi. Aftur kem-
ur kjarninn úr ungmennastarfi liðs-
ins. Knattspyrnustjarnan Johan
Cruyff tók árið 2011 að sér að endur
reisa gamla knattspyrnuskólann
þar sem hann lærði sjálfur að fara
með bolta. Markmið hans var að
rækta framúrskarandi einstaklinga
með það að leiðarljósi að byggja upp
frábært lið. Í þjálfunarbúðunum eru
12 vellir, sem eru skammt frá aðal-
velli félagsins. Átta útsendarar eru í
fullri vinnu við að leita að efnilegum
knattspyrnumönnum auk 90 sjálf-
boðaliða. Nú er spurningin hvort
þetta kerfi er að skila nýrri gull-
kynslóð hollenskra knattspynu-
manna. vikverji@mbl.is
Víkverji
En það er hið eilífa líf að þekkja þig,
hinn eina sanna Guð, og þann sem þú
sendir, Jesú Krist.
(Jóh: 17.3)