Morgunblaðið - 19.03.2019, Blaðsíða 27
um árum. Spilaði sem senter í fót-
bolta og á miðjunni í handboltanum.
Taflfélag Reykjavíkur var á þess-
um árum á Grensásveginum gegnt
Breiðagerðinu og það var því nóg um
að vera hjá mér á þessum árum en ég
hafði lært mannganginn 6 ára gam-
all. Það kom að því að ég þurfti að
velja á milli þessara greina og ég
ákvað að setja skákina í fyrsta sæti
en þá var ég nýlega orðinn Norður-
landameistari í skólaskák í flokki 11-
12 ára á móti sem fór fram í Asker í
Noregi.
Á þessum árum var ég oft á Siglu-
firði yfir sumartímann hjá afa og
ömmu. Ég á þrjú yngri systkini og
mamma og pabbi höfðu þann háttinn
á að keyra með okkur systkinin norð-
ur eftir að skóla lauk á vorin og þar
vorum við Sveinn bróðir minn skildir
eftir og sóttir í lok sumars. Það voru
góðir tímar og frábærar minningar
sem ég á frá þessum árum. Ef maður
var ekki á fótboltavellinum að æfa og
keppa fyrir KS (Knattspyrnufélag
Siglufjarðar ) þá var maður að veiða
annaðhvort á bryggjunni eða í fjör-
unni. Ég tók iðulega taflsettið með í
þessar „sumarferðir“ og nokkrar
skákbækur til að ég gæti haldið mér
við og stúderað skák þegar tími gafst
til.
Ég varð stórmeistari í skák árið
1996 og hafði þá í allmörg árið verið
atvinnumaður í skák og hafði á þess-
um árum lifibrauð af því að ferðast
um heiminn og tefla á skákmótum. Á
þessum árum borguðu mótshaldarar
yfirleitt hótel- og ferðakostnað
ásamt þóknun fyrir að taka þátt í
mótum og síðan var keppt um verð-
launafé. Þetta var ekki stór útgerð
en nóg til að geta haft atvinnu af því
sem mér fannst skemmtilegast að
gera. Á þessum árum sinnti ég líka
skákkennslu og heimsótti bæði
grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og
úti á landi.“
Þröstur hefur 11 sinnum teflt fyrir
Íslands hönd á Ólympiuleikunum í
skák og margoft orðið Íslandsmeist-
ari í atskák og hraðskák auk þess sem
hann varð Íslandsmeistari árið 2012 í
skák með lengri umhugsunartíma.
Þröstur hefur einnig margoft orðið
Norðurlandameistari í skólaskák
bæði í einstaklingskeppni og svo í
liðakeppni með Hvassaleitisskóla,
Verslunarskólanum og Mennta-
skólanum við Hamrahlíð.
Þröstur úskrifaðist sem löggiltur
fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
árið 2000 og hefur unnið við fast-
eignasölu í fjölda ára hjá Mikluborg
fasteignasölu. „Skákin er í seinni tíð
orðin áhugamál eins og golfíþróttin
sem ég byrjaði að stunda fyrir 10 ár-
um síðan.“
Þess má geta að Þröstur keypti
gamla gagnfræðaskólann á Siglufirði
og hefur honum verið breytt í íbúðar-
hús. „Faðir minn og bróðir höfðu veg
og vanda af því verkefni, en ég ákvað
að fara í þetta til minningar um
ömmu og afa sem hvíla í kirkjugarð-
inum á Siglufirði.“ Þröstur er búinn
að selja allar fimmtán íbúðirnar að
undanskildum tveimur sem eru í
leigu til Hótels Depla í Fljótunum.
Fjölskylda
Eiginkona Þrastar er Ásdís María
Thorarensen, f. 24. október 1973,
grafískur hönnuður. Foreldrar henn-
ar eru Ársæll Kjartansson, f. 6. októ-
ber 1945, búsettur í Reykjavík og
Kristín María Thorarensen, f. 22.
október 1949, búsett í Garðabæ.
Börn: 1) Anna Margrét Þrastar-
dóttir, f. 1. janúar 1991, B.S. í sálfræði
og sérkennslustjóri á leikskóla, maki:
Daði Oddberg Einarsson, grafískur
hönnuður. Móðir Önnu er Sigríður
Ása Sigurðardótir, f. 15. desember
1970, tónlistarkennari, búsett í
Reykjavík; 2) Þórhallur Axel Þrastar-
son, f. 20. ágúst 2002, nemi, 3) Kristín
María Þrastardóttir, f. 23. ágúst 2005,
nemi.
Systkini Þrastar eru Sveinn Þór-
hallsson, f. 30.10. 1971, smiður, bú-
settur í Reykjavík; Anna Steinunn
Þórhallsdóttir, f. 21. maí 1974, dag-
foreldri, búsett í Reykjavík, og
Hrund Þórhallsdóttir, f. 5. febrúar
1976, læknir, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Þrastar eru hjónin Þór-
hallur Sveinsson, f. 13. júní 1944,
húsasmíðameistari og Eygló Stefáns-
dóttir, f. 3. apríl 1945, hjúkrunarfræð-
ingur. Þau eru búsett í Reykjavík.
Þröstur
Þórhallsson
Svanborg Egilsdóttir
húsfreyja í Reykjahjáleigu
Egill Jónsson
bóndi í Reykjaháleigu í Ölfusi
Steinunn Egilsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Eygló Stefánsdóttir
hjúkrunarfræðingur í Rvík, stjúpfaðir
hennar var Þórhallur Guðmundsson
Stefán Jónsson
bifreiðarstjóri á Selfossi
Steinunn Stefánsdóttir
húsfreyja á Þönglaskála
Jón Jónsson
bóndi á Þönglaskála á Höfðaströnd
Óskar Rúnar Harðarson
framkvæmdastjóri
Mikluborgar
Eygló Þóra Harðardóttir
fv. félagsmálaráðherra
Svanborg Eygló Óskarsdóttir
framkvæmdastjóri
Guðrún Egilsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Kristjana Arnarsdóttir
íþróttafréttamaður hjá RÚV
ristjana Þórhallsdóttir
húsfreyja á Húsavík
KArnar Björnssoníþróttafréttamaður
á Stöð 2
Helga Friðbjarnardóttir
húsfreyja á Litlubrekku
Björn Þórhallur Ástvaldsson
bóndi á Litlubrekku á Höfðaströnd
Úr frændgarði Þrastar Þórhallssonar
Sveinn Þorkell Jóhannesson
sjómaður á Siglufirði
Sæunn Steinsdóttir
húsfreyja í Glæsibæ og á Siglufirði
Jóhannes Jóhannesson
bóndi í Glæsibæ í Skagafirði,
síðar trésmiður á Siglufirði
Þórhallur Sveinsson
húsasmíðameistari í Rvík
Anna Guðrún Þórhallsdóttir
húsfreyja á Siglufirði
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2019
JEVI NTYRALEGAR
FERMINGARGJAFIR!
SCARP�
MIKIO URVALAF SKOM i OLLUM STJEROUM
Kringlan 7 I Laugavegur 11 I Reykjavtl<urvegur 64 I S: 510 9505 I fjallakofinn.is IJ@
Pétur fæddist í Reykjavík 19.mars 1926. Foreldrar hansvoru hjónin Guðjón Jónsson,
f. 1885 í Búrfellskoti í Grímsnesi, d.
1958. kaupmaður á Hverfisgötu 50 í
Reykjavík og Sigríður Pétursdóttir,
f. 1887 í Austurkoti á Seltjarnarnesi,
d. 1972, húsfreyja.
Um fermingu fór Pétur í siglingar
og tók loftskeytapróf 1943. Hann var
síðan í siglingum til 1950. Að loknum
siglingunum hóf hann nám í Verzl-
unarskóla Íslands og lauk verslunar-
prófi þaðan.
Pétur hóf síðan verslunar- og fast-
eignarekstur í Reykjavík og rak
nokkur fyrirtæki ásamt konu sinni.
Eiginkona Péturs var Bára Sigur-
jónsdóttir, f. 20.2. 1922 í Hafnarfirði,
d. 8.6. 2006. Foreldrar hennar voru
Sigurjón Einarsson, skipstjóri í
Hafnarfirði, og Rannveig Vigfús-
dóttir húsfreyja. Synir Péturs og
Báru eru Sigurjón, f. 1950, og Guð-
jón Þór, f. 1955.
Pétur tók mikinn þátt í stjórn-
málum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
lét sig sjávarútvegsmál miklu skipta
og skrifaði um þau fjölda greina.
Sérstaklega ritaði hann mikið um
landhelgismál og var fylgismaður
vestrænnar samvinnu og áhugamað-
ur um alþjóðamál. Hann sótti flesta
fundir Verslunarráðs Íslands og ráð-
stefnur þess. Þegar Landsnefnd Al-
þjóðaverslunarráðsins var stofnuð
gerðist Pétur stofnfélagi.
Pétur var víðförull, kynntist lönd-
um og þjóðum og stóð þar betur að
vígi en margur annar vegna mála-
kunnáttu sinnar, en hann talaði að
minnsta kosti sjö tungumál reip-
rennandi. Um Ísland ferðaðist hann
vítt og breitt, um fjöll og firnindi,
sumar sem vetur. Hann var skíða-
maður ágætur og náttúruskoðandi.
Hann var mikill fagurkeri, hann
unni öllum fögrum hlutum og var
mjög vel að sér í listasögu. Hann var
hrókur alls fagnaðar hvar sem hann
fór, var mikill ræðumaður og smakk-
aði aldrei áfengi.
Pétur varð bráðkvaddur í skíða-
göngu á Eyjafjallajökli 23. júlí 1983.
Merkir Íslendingar
Pétur
Guðjónsson
90 ára
Ástráður Ólafsson
Björg Kristjánsdóttir
Guðbrandur Kjartan
Þórðarson
Ólafur Tryggvason
Svava Þórdís Baldvinsdóttir
80 ára
Elín Guðmunda
Guðmundsdóttir
Erla Dýrfjörð
Ingibjörg Sigurþórsdóttir
Stefán Ingi Benediktsson
75 ára
Anna Sigurlaug Þorvaldsd.
Helga R. Einarsdóttir
María Kristjánsdóttir
Nataliia Bakulina
Pétur Davíðsson
Sigurbjörg Kristjánsdóttir
70 ára
Alda Jónsdóttir
Hafdís Ágústsdóttir
Jóna Sigurlína Pálmadóttir
Jónbjörn Pálsson
Karl Sigþór Jónsson
Ólafur Davíðsson
Guðmundsson
Ósk Svavarsdóttir
Sigurbjörn Helgason
60 ára
Ásrún Jörgensdóttir
Doris Charlotte Maag
Haraldur Guðmundsson
Hjálmur Pétursson
Jón Leví Grétarsson
Kristjana V. Jónatansdóttir
Sigríður Jóna Jóhannesd.
Sigrún Þorsteinsdóttir
Wieslawa Józefa Tusinska
50 ára
Elísabet Mary Þrastardóttir
Emil Ýmir Vos
Gestur Hjörvar Magnússon
Guðrún Helga Engilbertsd.
Hugrún Sigurjónsdóttir
Jensína Kristín Böðvarsd.
Stefanía Rós Gísladóttir
Svanhildur E. Benjamínsd.
Valdimar Fjörnir Heiðarss.
Þórey Sigríður Erlingsdóttir
Þröstur Þórhallsson
40 ára
Atli Örn Gunnarsson
Ársól Margrét Ólafíudóttir
Bergþór Smárason
Dögg Mósesdóttir
Elísabet Stefánsdóttir
Ernir Kárason
Hjörtur Líndal Hauksson
Jarþrúður Karlsdóttir
Jose Yandy Machado Cajide
Marco Mencarini
Margrét Edda Ragnarsd.
Ólöf Ósk Magnúsdóttir
Ragnheiður L. Erlingsdóttir
Selma Dögg Valgarðsdóttir
Tomasz Baranowski
Ute Stenkewitz
Örvar Þór Sigurðsson
30 ára
Diljá Catherine Þiðriksd.
Fjóla María Jónsdóttir
Guðni Reynir Þorbjörnsson
Haukur Þór Harðarson
Heiða Ösp Árnadóttir
Ívar Orri Ómarsson
Jiaqian Chen
Kristinn Erlingur Árnason
Krzysztof Pawel Lukasik
Margeir Þór Margeirsson
Michal Tomásek
Rayma Titia Amélia Rajá
Sigurbjörg Inga Björnsd.
Wojciech Roman Lisze
Yaowen Wang
40 ára Dögg er frá
Grundarfirði en býr í
Reykjavík. Hún er kvik-
myndaleikstjóri og rekur
Freyja Filmwork.
Maki: Daniel Steven
Schreiber, f. 1975, kvik-
myndagerðarmaður.
Dóttir: Ylfa, f. 2012.
Foreldrar: Móses Geir-
mundsson, f. 1942, fv.
verkstjóri hjá G.Run, og
Dóra Haraldsdóttir, f.
1943, fv. pósthússtjóri,
búsett í Grundarfirði.
Dögg
Mósesdóttir
40 ára Ólöf er frá Hrygg 2 í
Flóa og er bóndi þar.
Maki: Steindór Guðmunds-
son, f. 1975, fasteignasali á
Lögmönnum Suðurlandi og
iðnrekstrarfr.
Börn: Margrét Helga, f.
1996, Guðmunda Bríet, f.
2004, Kári Þór, f. 2007, og
Magnús Ögri, f. 2009.
Foreldrar: Magnús Sig-
urðsson, f. 1948, d. 2017,
og Aðalheiður Björg Birgis-
dóttir, f. 1955. Hún er bús.
á Selfossi.
Ólöf Ósk
Magnúsdóttir
30 ára Sigurbjörg er
Akureyringur og er tann-
smiður hjá Tannverki
Hauks.
Systkini: Rögnvaldur, f.
1981, Ólafur Birgir, f. 1991,
og Björn Helgi, f. 2001.
Foreldrar: Björn Rögn-
valdsson, f. 1956, tann-
læknir á Akureyri, og
Fanney Auður Baldurs-
dóttir, f. 1956, fram-
kvæmdastjóri hjá BR
tannlæknum. Þau eru bú-
sett á Akureyri.
Sigurbjörg Inga
Björnsdóttir
Til hamingju með daginn