Morgunblaðið - 19.03.2019, Síða 4

Morgunblaðið - 19.03.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2019 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Veður víða um heim 18.3., kl. 18.00 Reykjavík 7 rigning Hólar í Dýrafirði 7 súld Akureyri 7 skýjað Egilsstaðir 6 skýjað Vatnsskarðshólar 7 rigning Nuuk -10 snjókoma Þórshöfn 6 skýjað Ósló 4 heiðskírt Kaupmannahöfn 5 léttskýjað Stokkhólmur 1 snjókoma Helsinki 2 skýjað Lúxemborg 7 heiðskírt Brussel 8 heiðskírt Dublin 9 súld Glasgow 8 skýjað London 9 skúrir París 9 skýjað Amsterdam 7 léttskýjað Hamborg 5 skúrir Berlín 6 skúrir Vín 7 skýjað Moskva 3 heiðskírt Algarve 17 léttskýjað Madríd 14 heiðskírt Barcelona 13 léttskýjað Mallorca 13 skýjað Róm 13 léttskýjað Aþena 17 heiðskírt Winnipeg -2 alskýjað Montreal -3 léttskýjað New York 4 heiðskírt Chicago 3 léttskýjað  19. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:33 19:40 ÍSAFJÖRÐUR 7:37 19:45 SIGLUFJÖRÐUR 7:20 19:28 DJÚPIVOGUR 7:02 19:09 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á miðvikudag Suðvestan 15-23 m/s norðvestantil fram eftir degi, annars 8-15 m/s. Á fimmtudag Suðvestan og sunnan 10-15 m/s. Él sunnan- og vestanlands, léttskýjað norðaustantil. Sunnan og síðar suðvestan 8-15 m/s. Rigning sunnan- og vestantil, en fer síðan yfir í skúrir eða slydduél, fyrst vestanlands. Úrkomulítið og bjart með köflum á norðausturhorninu. Kólnar. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Nýr dómsmálaráðherra Þórdís, Kol- brún Reykfjörð Gylfadóttir, ætlar að nálgast dóm Mannréttindadómsstóls Evrópu (MDE) vegna skipunar dóm- ara í Landsrétt af yfirvegun, þetta sagði hún í umræðum sem fram fóru um dóminn og viðbrögð við honum á Alþingi í gær. Þórdís sagði að verkið væri vanda- samt og í hennar huga væri það ekki endilega spurning um annaðhvort eða. Það þyrfti að eiga sér stað hags- munamat með heildarhagsmuni ís- lenskrar stjórnskipunar og réttar- kerfisins í huga. Þórdís sagði að í stöðunni sem nú væri uppi væri mik- ilvægt að löggjafarvaldið á Alþingi legði sig fram um að hefja málið upp úr skotgröfum hinna hefðbundnu stjórnmála og treysta stoðir íslensks réttarkerfis. Það væri mikilvægt að þingmenn tækju höndum saman um að leysa úr stöðunni sem upp væri komin vegna Landsréttar. Í máli Þórdísar kom fram að í augnablikinu væri engin ein augljós leið með augljósum fararskjóta á augljósan áfangastað sem hægt væri að fara á. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra sagðist er hún flutti munnlega skýrslu um dóm MDE á þinginu í gær ekki líta svo á að ráðherrar sem tjáð hefðu sig um dóminn og viðrað sjónarmið um inntak hans hefðu ver- ið að tala niður Mannréttindadóm- stólinn. Katrín telur að leyfa þurfi samtal um það hvaða mat löggjafar- valdið leggi á rökstuðning fyrir dómnum. Katrín sagði að henni hefði verið bent á það að dómur Mannréttinda- dómstólsins hefði verið mjög fram- sækinn í þeirri merkingu að hann væri fordæmalaus og færi aðrar leið- ir en áður hefði sést. „Þá er mikilvægt að við gefum okkur þetta svigrúm til að eiga það samtal. Erum við sammála þeim rök- semdum sem þarna eru undir og er þetta af þeim orsökum mál sem væri eðlilegt að skjóta áfram til efri deild- ar Mannréttindadómstólsins?“ spurði Katrín og svaraði því til að hún teldi að Alþingi ætti að gefa sér svigrúm til þess að ræða það. Dómurum fjölgar mögulega Katrín sagði einnig í umræðunum að mögulega þyrftu þingmenn að vera undir það búnir, þrátt fyrir að það lægi ekki fyrir nú, að fjölga á næstunni dómurum í Landsrétti. Fjölgunin yrði gerð til þess að tryggja eðlilegt starfsumhverfi dóm- stólsins í kjölfar dóms Mannréttinda- dómstólsins. Leitað til erlendra séfræðinga Í máli Katrínar kom einnig fram að ekki væri ólíklegt að kallaður yrði til erlendur sérfræðingur til þess að fara yfir dóminn með forsætis- og dómsmálaráðherra og skoða það ít- arlega hvort tilefni væri til þess að láta á það reyna hvort yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu tæki málið fyrir. Katrín taldi einnig að full ástæða væri til þess að skoða minni- hlutaálit Mannréttindadómstólsins gaumgæfilega. Í máli Katrínar kom fram að hún teldi að Sigríður Á. Andersen, fyrr- verandi dómsmálaráðherra, hefði axlað pólitíska ábyrgð á málinum með því að biðjast lausnar frá emb- ætti sínu. Katrín lagði áherslu á að gefa þyrfti tíma til þess að fara yfir dóminn og vega hann og meta. Þingið fengi nú tækifæri til þess að takast á við dóminn þannig að sómi yrði að. Logi Einarsson, formaður Sam- fylkingarinnar, fagnaði því að for- sætisráðherra hefði gefið út yfirlýs- ingu um að vinna við skoðun á dómi Mannréttindadómstólsins yrði í sam- ráði við alla flokka. Logi sagði Sam- fylkinguna tilbúna til þess að koma að þeirri vinnu á þeim forsendum að hún yrði byggð á vandvirkni og virð- ingu fyrir Mannréttindadómstóln- um. Ræða rökstuðning dómsins „Vonandi verður þessi dómur til þess að nú heyri sögunni til að ráð- herrar freistist til að skipa í dómstóla af geðþótta fólk sem er ekki hæfast úr röðum umsækjenda. Vitandi að það geti kallað yfir skattborgarana skaðabætur en viðkomandi dómarar sitji sem fastast,“ sagði Logi og spáði því að kostnaður vegna dóms Mann- réttindadómstólsins yrði mikill. Lík- lega myndi kostnaður vegna klúðurs fyrrverandi dómsmálaráðherra hlaupa á hundruðum milljóna króna. Logi sagði dýrt að halda úti óháð- um og góðum dómstólum og dóms- kerfi og það væri fyllilega fjárfest- ingarinnar virði. En skipanir fyrrverandi dómsmálaráðherra í Landsdóm hefðu hins vegar verið fjáraustur og hægt hefði verið að spara og nota umrætt fé á betri hátt. Morgunblaðið/Hari Athygli Umræða um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu fór fram á Alþingi í dag og fylgdust þingmenn og ráðherrar vel með umræðunni. Engin augljós áfangastaður  Dómur MDE til umræðu á Alþingi í gær  Treysta þarf stoðir réttarkerfisins  Katrín vill samtal um rök dómsins  Logi fagnaði yfirlýsingu um samráð Hervör Þorvalds- dóttir, forseti Landsréttar, greiddi atkvæði gegn bókun stjórnar dóm- stólasýslunnar vegna dóms Mannréttinda- dómstóls Evrópu í síðasta mánuði þar sem fram kom að meta skyldi áhrif málskots til yfir- deildar dómstólsins áður en slík ákvörðun yrði tekin. Þetta staðfestir Ólöf Finnsdóttir, framkvæmdastjóri Dómstólasýslunnar, í samtali við mbl.is í gær en Hervör svaraði ekki skilaboðum til að upplýsa um efni bókunar hennar. Farið er einnig fram á það í bókun meirihluta Dómstólasýslunnar að dómsmálaráðuneytið „hlutist til um lagabreytingu um að heimilt verði að fjölga dómurum við Landsrétt. Þetta tekur mið af því að fjórir dómarar við réttinn geta að óbreyttu ekki tekið þátt í dómstörfum. Án þess að gripið verði til þessa úrræðis mun álagið við réttinn aukast verulega með tilheyr- andi drætti á meðferð mála.“ Hervör er einn fimm fulltrúa í stjórn Dómstólasýslunnar en eins og fram kemur í Morgunblaðinu í gær var ekki einhugur innan stjórnar- innar um að lýsa ætti yfir slíkri af- stöðu í fréttatilkynningu. Benedikt Bogason, hæstaréttardómari og for- maður stjórnar Dómstólasýslunnar, sagði í blaðinu að stjórnvöld hefðu farið nokkuð geyst í að fullyrða það að vísa ætti dómi Mannréttinda- dómstólsins til yfirdeildar hans áður en faglegt mat yrði lagt á slíkt. hjorturjg@mbl.is Greiddi at- kvæði gegn bókuninni  Stjórn Dómstóla- sýslunnar ósammála Hervör Þorvaldsdóttir Ökumaður sem lögreglan á Suður- nesjum tók úr umferð vegna gruns um fíkniefnaakstur um helgina reyndist hafa fleira á samviskunni því meint fíkniefni fundust í farang- ursrými bifreiðar viðkomandi, seg- ir í dagbók lögreglunnar. Um tíu ökumenn aðrir voru einn- ig teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefnaakstur. Einn þeirra ók bifreið sem var óskoðuð, auk þess sem öryggisbúnaði hennar var verulega áfátt og voru skráningar- merki tekin af henni. Þá voru höfð afskipti af fáeinum ökumönnum sem óku sviptir ökuréttindum. Tvö umferðaróhöpp voru á Suðurnesjum um helgina. Með fíkniefni í farangursrýminu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.