Morgunblaðið - 19.03.2019, Page 6

Morgunblaðið - 19.03.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2019 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '*-�-��,�rKu�, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI Iðnaðareiningar í miklu úrvali Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við fluttum út úr húsnæðinu 1. des- ember sl., en starfsmenn glímdu margir hverjir við veikindi og alvar- leg einkenni vegna myglu í húsinu, sem er mjög illa farið,“ segir Elín Sigrún Jónsdóttir, framkvæmda- stjóri Útfararstofu kirkjugarðanna. Það húsnæði sem um ræðir er við Vesturhlíð 2 í Fossvogi í Reykjavík og eru umfangsmiklar framkvæmdir hafnar þar vegna myglu. Starfsemi hefur nú verið flutt tímabundið í Vesturhlíð 9 og standa vonir til að hægt verði að flytja aftur í gamla húsnæðið 1. júní næstkomandi. „Við erum svo heppin að hægt var að leigja húsnæði í sömu götu í sex mánuði,“ segir Elín Sigrún og bætir við að viðgerðirnar séu afar um- fangsmiklar. „Það þarf til að mynda að skipta um alla glugga, þak, setja upp nýtt loftræstikerfi og nýja klæðningu ut- an á húsið. En það fannst mygla í þaki, þaksperrum og mikil mygla í kjölfar leka frá ónýtum gluggum.“ Bólgur og langvinn sýking Hjá Útfararstofu Kirkjugarðanna starfa níu manns. Að sögn Elínar Sigrúnar var húsnæði starfseminnar heilsuspillandi og fundu starfsmenn fyrir miklum einkennum vegna mygluvandans. „Á síðasta ári voru langvinn veik- indi hjá starfsmönnum og það er ástæða þess að farið var í skoðun á húsnæðinu sem að lokum leiddi þetta í ljós.“ Aðspurð segir hún tvo starfsmenn hafa fundið mest fyrir einkennum. „Það lýsti sér meðal annars í miklum og langvarandi bólgum og sýking- um,“ segir hún en einkennin minnk- uðu þegar flutt var út. Útfararstofa flúði mygluhús  Starfsmenn glímdu við langvinn veikindi á síðasta ári Morgunblaðið/Kristinn Útför Húsnæðið er í Fossvogi. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Það er ekki fallegt um að litast á Austurvelli um þessar mundir. Gras- ið er eitt drullusvað og umgangur allur subbulegur. Þetta er svona eins og eftir slæma útihátíð,“ segir Ey- þór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálf- stæðisflokksins, við Morgunblaðið. Vísar hann í máli sínu til mótmæla hælisleitenda og stuðningsfólks þeirra á Austurvelli í hjarta Reykja- víkur. Hefur hópur þessi dögum saman verið með mótmælastöðu á vellinum og m.a. slegið þar upp stóru tjaldi í skjóli leyfis frá um- hverfis- og skipulagssviði Reykja- víkurborgar. Morgunblaðið hefur undir hönd- um umrætt leyfi borgarinnar til af- nota af landinu og er þar m.a. kveðið á um að ekki megi berast hávaði frá hópnum eftir klukkan 23. Um tjaldið stóra sem hópurinn sló upp segir: „Fjarlægja þarf ofangreint tjald af Austurvelli fyrir kl. 20:00 á kvöld- in ásamt öðrum búnaði sem fylgir mótmælendum. Leyfishöfum ber að tryggja góða umgengni á svæðinu á meðan á mótmælunum stendur og skila því í því ástandi sem tekið var við því.“ Ekki var staðið við þessi skilyrði og segir Eyþór leyfisveit- inguna skapa slæmt fordæmi. „Ef borgarstjóri vill hafa þetta svona þá get ég ekki ímyndað mér hvernig þetta endar,“ segir hann. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgar- fulltrúi Samfylkingar, segir borgina hafa gert hópnum það ljóst að þeir væru ekki að uppfylla sett skilyrði. „Það er mjög óheppilegt að þeir fylgdu ekki þeim reglum sem þeim voru settar,“ segir Heiða Björg. Fjölmargar kvartanir bárust Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlög- regluþjónn hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu, segir fjölmarga hafa sett sig í samband við lögreglu vegna slæmrar umgengni á svæðinu. „Okkur hafa borist kvartanir í gegnum samfélagsmiðla og meira að segja í gegnum Neyðarlínuna. Margir hafa verið að finna að um- gengni, sérstaklega öllu því dóti sem lá hér og þar á Austurvelli. Þessum erindum beindum við hins vegar öll- um til borgarinnar – þetta er hennar mál,“ segir Ásgeir Þór. Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, segir kvartanir einnig hafa borist þjón- ustuveri Reykjavíkurborgar og að ekki standi til að framlengja leyfi borgarinnar. Rann það út klukkan 20 í gærkvöldi. „Það var veitt leyfi fyrir kaffitjaldi sem átti að taka nið- ur klukkan 20 á kvöldin,“ segir hún og bætir við að mótmælendur hafi ekki staðið við það. Morgunblaðið/Hari Austurvöllur Hópur hælisleitenda og stuðningsfólk þeirra stóð dögum saman fyrir mótmælum fyrir framan Al- þingi. Leyfi hópsins fyrir þessu hvíta tjaldi rann út klukkan 20 í gærkvöldi og var búið að fjarlægja það þá. Mótmælendur brutu skilmála borgarinnar  Tjald og búnaður máttu ekki vera á Austurvelli eftir kl. 20 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við vorum boðuð á fund í fjár- málaráðuneytinu og þar var okkur kynnt sú ákvörðun að í fjármála- áætlun sem á að leggja fram á næstu dögum væri þessi frysting framlaga ríkisins til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna. Ráðherra gat reyndar bara set- ið hluta fundar- ins en það var mjög erfitt að misskilja starfs- menn ráðuneytis- ins. Ég vona hins vegar að um mis- skilning sé að ræða og þetta verði leiðrétt,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra lýsti þeirri skoðun sinni í Morgunblaðinu í gær að bókun Sambands íslenskra sveitarfélaga um þetta efni væri „óþarfa upp- hlaup af litlu tilefni“. Ekki sé komin fram nein tillaga um málið en rétt sé að umrædd skerðing hafi verið nefnd og hafi hún verið hugsuð sem framlag sveitarfélaganna til þeirrar stöðu sem er uppi í efnahagsmálum. Bindur vonir við þingmenn Aldís segir í samtali við Morg- unblaðið að sveitarfélögin séu tilbú- in að fara í viðræður við ríki og ráð- herra um hvernig hægt sé að finna lausn á þessu máli. „Við græðum auðvitað ekkert á að vera í svona orðaskaki,“ segir hún og kveðst þegar hafa óskað eftir fundi með bæði Bjarna Benediktssyni fjár- málaráðherra og Sigurði Inga Jó- hannssyni, ráðherra sveitarstjórn- armála. Formaðurinn segist reyndar binda vonir við að málið taki breytingum í meðförum Al- þingis. „Ég hef trú á því að þing- menn sjái að þetta er mjög van- hugsuð ákvörðun.“ Skerðing kemur sér illa Aldís telur málið allt hið sér- kennilegasta, enda sé þá verið að breyta því fyrirkomulagi að framlög ríkisins ráðist af sveiflum í hagkerf- inu. Ef framlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna verði fryst næstu tvö árin sé þar um skerðingu að ræða sem nemi 3,3 milljörðum króna, jafnvel þótt reikna megi með því að hér verði ágæt hagsæld. „Slík skerðing kemur verst við verst settu sveitarfélögin. Þetta eru til dæmis sveitarfélögin sem eru nú að fá skell út af loðnunni. Það verð- ur átak fyrir sveitarfélög að efna kjarasamninga ef laun eru að fara að hækka auk þess sem við höfum séð tekjuskerðingu á mörgum svið- um.“ Hafa tekið á sig auknar byrðar Aldís nefnir sömuleiðis að sveit- arfélögin hafi á undanförnum miss- erum stigið fjölmörg skref íbúum til hagsbóta, til að mynda lækkun leik- skólagjalda, að greiða skólagögn, niðurgreiða mat og sitthvað fleira. „Við höfum tekið á okkur meiri og meiri byrðar og okkur finnst að rík- isvaldið eigi að virða það við okkur en ekki láta okkur gjalda fyrir það.“ Skerðing „van- hugsuð ákvörðun“  Sveitarfélög tilbúin í viðræður við ríkið Aldís Hafsteinsdóttir Fylgi Sjálfstæðisflokksins jókst um eitt prósentustig milli fylgi- skannana MMR og mælist nú 23,6% en var 22,7% í síðustu könn- un sem gerð var. Flokkurinn hlaut 25,2% atkvæða í þingkosn- ingunum. Vinstri græn bæta við sig 0,3 prósentustigum í könnuninni og mælast nú með 11,4% fylgi en Framsóknarflokkurinn tapar nokkru fylgi og mælist nú með 11,1% en var með 13,5% fylgi í könnun MMR í febrúar. Píratar eru hástökkvarar á milli fylgiskannana MMR Þá segjast 41,8% styðja ríkis- stjórnina í könnuninni, en 42,8% sögðust styðja ríkisstjórnina við síðustu mælingu. Samfylkingin mælist næst- stærsti flokkur landsins í könnun MMR með 13,8% fylgi en hefur tapað tveimur prósentustigum frá seinustu könnun. Píratar eru hástökkvarar könn- unarinnar og hafa bætt við sig rúmlega þremur prósentustigum frá seinustu könnun og mælist flokkurinn núna með 13,6% fylgi. Viðreisn mælist með 9,4% en fylgi flokksins var 8,1% í síðustu könnun. Miðflokkurinn bætir einnig við sig fylgi og fer úr 6,1% í 8%. Flokkur fólksins mælist nú með 4,7% fylgi og Sósíalistaflokk- urinn með 2,5%. Könnunin var framkvæmd dag- ana 11.-14. mars og var heildar- fjöldi svarenda 1.025 að því er fram kemur á vefsíðu MMR. 41,8% stuðningur við ríkisstjórnina Steingrímur J. Sigfússon, forseti Al- þingis, segir fólk hafa fullan rétt til mótmæla á Íslandi í þeirri von að reyna að vekja athygli á sínum mál- stað. Mikilvægt sé þó að mót- mæli fari friðsamlega fram og valdi sem minnstum núningi. „Þetta snýr fyrst og fremst að borginni og í einhverjum til- fellum lögreglunni fremur en Alþingi. Við erum ekki aðilar að því að veita leyfi fyrir fund- um eða öðru slíku,“ segir hann. „En sem stjórnmála- menn þá hlustum við auðvitað á svona lagað og það er þá í okkar höndum að bregðast við.“ Valdi litlum núningi FORSETI ALÞINGIS Steingrímur J. Sigfússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.