Morgunblaðið - 19.03.2019, Side 11

Morgunblaðið - 19.03.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2019 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Vinsælasti haldarinn okkar Misty Dekraðu við línurnar Skálastærðir: B-J Verð 8.650 kr. Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Buxna- leggings Kr. 3.990 Str: S-XXXL 4 litir Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Náttúruminjasafn Íslands hefur unnið að því að fá að láni til langs tíma beinagrind af íslandssléttbak frá Dýrafræðisafni Danmerkur. Þá hefur Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra meðal annars rætt þennan möguleika við danska kollega sína. Ekki er til eintak á Ís- landi af tegundinni og aðeins örfá söfn erlendis eiga heila beinagrind íslandssléttbaks. Hilmar J. Malm- quist, forstöðu- maður safnsins, segir að beina- grindin sé í raun hluti af íslenskum náttúruarfi, en tegundin er talin í útrýmingarhættu. Beinagrindur af tveimur full- orðnum íslandssléttbökum eru í vörslu Zoologisk Museum í Kaup- mannahöfn. Annar var veiddur út af Vestfjörðum 1891 og hinn við Aust- firði 1904. Þriðja beinagrindin í vörslu Dana er af ungviði sem drapst við strendur Spánar 1854. Hilmar segir að þeir hafi augastað á eldri beinagrindinni, m.a. vegna þess að hún hefur verið þrívíddar- skönnuð á nákvæman hátt á vegum NMSÍ, en það sé þó ekki aðalatriði málsins. Með skönnuninni sé stofn- unin komin með gögn í hendur og ná- kvæmar upplýsingar um hvert ein- asta bein. Því sé tiltölulega auðvelt að endurgera einstök bein ef þau eru of viðkvæm til að sýna. Skönnun vekur athygli Spurður hvort hann sé búinn að velja beinagrindinni sýningarstað fá- ist jákvætt svar frá Dönum segir Hilmar að ýmislegt komi til greina í þeim efnum. Hugsanlega yrði hægt að koma henni fyrir í hálfum eða heilum vatnstanki í Perlunni verði fleiri vatnstankar tæmdir. Fleiri staðir komi til greina á höfuðborg- arsvæðinu eða úti á landi, en óneit- anlega sé mikið af ferðamönnum og skólafólki í þéttbýlinu á suðvestur- horninu. Fyrrnefndri þrívíddarskönnun á beinagrind íslandssléttbaks fyrir Náttúruminjasafnið lauk sl. sumar í Kaupmannahöfn. Meginmarkmiðið með skönnunarverkefninu er staf- ræn varðveisla á beinagrind af afar fágætri hvalategund sem áður var algeng við Ísland en er nú í útrým- ingarhættu, segir á heimasíðu Nátt- úruminjasafnsins. Öðrum þræði er skönnunin hugs- uð til margs konar miðlunar á upp- lýsingum og fróðleik um tegundina, og jafnvel til að búa til eftirgerð af beinagrindinni með því að fræsa hana út eða prenta í þrívídd að hluta eða öllu leyti. Við skönnun beina- greindarinnar hjá tæknifyrirtækinu Rigsters var beitt vél- og hugbúnaði sem starfsmenn þróuðu sjálfir að verulegu leyti. Hilmar segir að verkefnið hafi verið viðamikið og gæðin séu ein- stök. Skönnunin hafi þegar vakið at- hygli og önnur söfn hafi leitað upp- lýsinga hjá Náttúruminjasafninu og danska fyrirtækinu með það í huga að gera eitthvað sambærilegt með sín beinasöfn, meðal annars Náttúrufræðisafnið í London. Beinin geymd í kjöllurum Íslandssléttbakurinn sem Nátt- úruminjasafnið lét skanna var veidd- ur 1891 og unninn í hvalstöð Victors- félagsins norska á Höfðaodda eða Framnesi við Dýrafjörð. Um haustið var siglt með beinagrindina til Kaup- mannahafnar, til umsjónar og vörslu Dýrafræðisafns Danmerkur, Zoolog- isk Museum. Þar hefur beinagrindin verið í geymslu, fyrst í kjallara í miðborg- inni þar sem Hafnarháskóli hafði að- setur, en síðar í kjallara við Uni- versitetsparken í Nørrebro þar sem Zoologisk Museum er nú til húsa. Í aðfangabók Zoologisk Museum dags. 13. september 1891 er fært að beina- grindin sé komin og að hún hafi mælst 13,7 m á lengd, þar af haus 4,2 m og hryggur 9,5 m. Dýrið var með öðrum orðum fullvaxið þegar það var veitt, segir á heimasíðunni. Og ennfremur: „Og þeir eru fleiri íslandssléttbakarnir sem leynast í kjallara Zoologisk Museum. Þar eru tvær beinagrindur til viðbótar af þessari tegund, þar af önnur, sú stærri (11,5 m), af hval sem einnig var veiddur við Ísland árið 1904 af norskum hvalföngurum. Hin beina- grindin er af ungviði sem drapst við strendur Spánar árið 1854.“ Lausnir fyrir söfn og setur Á morgun, miðvikudaginn 20. mars, verður haldin málstofa í Þjóð- minjasafninu undir heitinu Stafræn- ar lausnir fyrir söfn og setur - MMEx. Meðal fyrirlesara verður Aleksandr Jakovlev, framkvæmda- stjóri Rigsters, sem annaðist skönn- unina á beinagrind sléttbaksins. Að málstofunni standa Borgarsögusafn Reykjavíkur, Þjóðminjasafn Íslands og Félag íslenskra safna og safn- manna (FÍSOS) í samstarfi við danska fyrirtækið MMEx. Falast eftir íslandssléttbak frá Dönum  Danir eiga tvær beinagrindur af fullorðnum sléttbak  Hluti af íslenskum náttúruarfi  Nákvæm þrívíddarskönnun á beinagrind gerð í Kaupmannahöfn  Til miðlunar á upplýsingum og fróðleik Ljósmynd/Náttúruminjasafn Íslands. Mörg bein Íslandsslétttbakurinn hefur verið í umsjón og vörslu Dýrafræðisafns Danmerkur frá haustinu 1891. Ljósmynd/Úr bók Smára Geirssonar, Stórhvalaveiðar við Ísland til 1915. Hvalveiðar Íslandssléttbakur kominn á land í hvalstöð Victorsfélagsins á Höfðaodda (Framnesi) í Dýrafirði. Myndin er tekin árið 1891, en það er sama ár og hvalurinn veiddist sem Náttúruminjasafnið hefur látið skanna. Hilmar J. Malmquist Kristján Þór Júlíusson og Högni Hoydal, sjávarútvegsráðherrar Ís- lands og Færeyja, hafa náð sam- komulagi um fiskveiðisamning á milli Íslands og Færeyja. Samningurinn felur í sér end- urnýjun á samningi frá 2018 sem veitir Íslandi aðgang að lögsögu Færeyja til að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld og samhliða fá Færeyjar aðgang að lögsögu Ís- lands fyrir sömu tegundir. Ísland fær 1.300 tonn af makríl frá Færeyjum og Færeyjar fá 5.600 tonn af bolfiski og allt að 30 þúsund tonn af loðnu frá Íslandi, háð því að loðna finnist í veið- anlegu magni í lögsögu Íslands. Samkomulagið gildir fyrir árin 2019 og 2020. Fram kemur í fréttatilkynningu að ráðherrarnir hafi jafnframt sammælst um að halda áfram vinnu að gerð rammasamnings um fiskveiðisamstarf þjóðanna og til- nefna hvor um sig sérfræðinga til að meta verðmæti aflaheimilda og aðgangs sem nýtist við gerð fisk- veiðisamnings þjóðanna. Gert er ráð fyrir að þessari vinnu verði lokið um mitt ár 2020. Samið við Færeyinga um fiskveiðar  Halda áfram vinnu við rammasamning

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.