Morgunblaðið - 19.03.2019, Page 17

Morgunblaðið - 19.03.2019, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2019 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Lögreglan í Hollandi leitaði í gær 37 ára gamals manns frá Tyrklandi, Gokmen Tanis, en hann var grun- aður um að hafa skotið þrjá til bana og sært níu til viðbótar í skotárás í borginni Utrecht í gærmorgun. Var hann að endingu handtekinn um eft- irmiðdaginn eftir umtalsverða leit. Árásin átti sér stað í sporvagni við fjölfarin gatnamót í borginni laust fyrir klukkan ellefu að staðartíma. Flúði árásarmaðurinn af vettvangi í stolnum bíl sem fannst síðar yfirgef- inn annars staðar í borginni. Sáust sérsveitarmenn umkringja byggingu nálægt þar sem stolni bíllinn fannst, en ekki var víst hvort Tanis væri þar innandyra. Lögreglan sendi í gær frá sér myndir úr öryggismyndavél vagns- ins, sem sýndu Tanis stuttu fyrir árásina, og var almenningur varaður við að nálgast hann, en hafa þegar í stað samband við lögregluna ef sæist til hans. Pieter-Jaap Aalbersberg, yfirmaður hryðjuverkavarna Hol- lands sagði í gær að tilkynnt hefði verið um skotárásir á nokkrum stöð- um og ekki bara í sporvagninum. Á hæsta viðvörunarstigi Borgin lamaðist í kjölfar árásar- innar og lýstu stjórnvöld því yfir að Utrecht væri á hæsta viðvörunar- stigi vegna hryðjuverkaárása meðan árásarmaðurinn væri enn ófundinn. Háskólinn í Utrecht aflýsti öllum fyrirlestrum og sporvagnar borgar- innar voru kyrrsettir. Sjúkrahús borgarinnar setti sérstaka neyðar- áætlun í gang og öryggisgæsla við flugvelli var stóraukin. Þá var örygg- isgæsla aukin við moskur í bæði Ut- recht og í Rotterdam. Héraðsþingkosningar eiga að vera í landinu á miðvikudaginn og sam- þykktu allir flokkar að ljúka kosn- ingabaráttu sinni í virðingarskyni við fórnarlömb árásarinnar. Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, sagði að ekki væri hægt að útiloka að um hryðjuverk væri að ræða. Sagði Rutte að árásin væri árás á hið opna samfélag sem Hol- lendingar hefðu í svo miklum háveg- um. Lofaði hann því að þjóðin myndi aldrei leyfa umburðarleysi að ná völdum í Hollandi. Hollenskum stjórnvöldum bárust samúðarkveðjur víðsvegar að í kjöl- far árásarinnar. Voru Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórn- ar Evrópusambandsins og Jeremy Hunt, utanríkisráðherra Bretlands, í hópi þeirra sem vottuðu samúð sína. Minnst þrír látnir í Utrecht  37 ára gamall Tyrki grunaður um ódæðið  Ekki hægt að útiloka hryðjuverk AFP Hryðjuverk Lögreglumenn rann- saka sporvagn eftir árásina í gær. Óttast er að meira en þúsund manns séu látnir í Mósam- bík eftir hitabeltisstorminn Idai, sem gekk yfir landið fyrir helgi. Þá eru að minnsta kosti 150 manns sagðir látnir í Simbabve, en þessir menn báru í gær ættingja sinn til grafar í bænum Chimanimani í austurhluta landsins. Talið er öruggt að mannfallið sé enn meira. AFP Mannfallið eftir storminn eykst Emmanuel Mac- ron Frakklands- forseti hélt í gær neyðarfund með ríkisstjórn sinni eftir að mótmæli „Gulu vestanna“ svonefndu ollu umtalsverðum skaða. Ákvað ríkis- stjórnin að reka Michel Delpuech, lögreglustjóra Parísarborgar, þar sem lögreglan hefði ekki haldið óeirðaseggjum í skefjum. Um 5.000 lögreglumenn voru á vaktinni í París um helgina, en fjöldi mótmælenda við Ódáinsvelli, Champs-Elysees, var áætlaður um 700 manns. Voru eigendur verslana í nágrenninu sagðir ævareiðir þar sem mótmælendum var gefinn laus taumur til þess að brjóta og bramla. Hefur ríkisstjórnin ákveðið að banna mótmæli við vellina og hækka sektir fyrir óspektir. Lögreglustjórinn rekinn eftir óeirðir Emmanuel Macron FRAKKLAND John Bercow, forseti neðri deildar breska þingsins, til- kynnti í gær að hann myndi ekki leyfa Theresu May forsætisráð- herra að bera samkomulag sitt við Evrópusam- bandið um út- göngu Breta í þriðja sinn undir deildina, nema búið væri að gera efnislegar breytingar á því. May hafði hugsað sér að knýja fram þriðju atkvæðagreiðsluna um samkomulagið á morgun, miðviku- dag, í þeirri von að andstaða við það hefði minnkað eftir að þingið hafnaði að yfirgefa sambandið án samnings í síðustu viku. Samkomu- lagið hefur þegar verið fellt tvisvar sinnum með miklum mun. May mun sækja um frestun á út- göngunni síðar í vikunni. Fær ekki þriðju at- kvæðagreiðsluna John Bercow STÓRA-BRETLAND Ástralinn Brenton Tarrant, sem grunaður er um að hafa skotið 50 manns til bana í moskuárásunum í Christchurch fyrir helgi, hyggst verja sig sjálfur, en hann rak lög- fræðing sinn í gær. Ríkisstjórn Nýja-Sjálands til- kynnti í gær að hún hefði samþykkt að hert yrði á byssulöggjöf landsins. Sagði Jacinda Ahern, forsætisráð- herra landsins, að ríkisstjórnin væri einhuga um ákvörðunina, en sam- starfsflokkur hennar í ríkisstjórn- inni, Nýja-Sjáland fyrst, hefur hing- að til ekki verið hlynntur hertari reglum. Formaður flokksins, Win- ston Peters utanríkisráðherra, sagði hins vegar að heimurinn hefði breyst með árásinni á föstudaginn. Fórnarlamba árásarinnar var minnst með ýmsum hætti í gær. Þannig söfnuðust vinir og ættingjar fórnarlambanna saman við Al Noor- moskuna og báðu saman við sólsetur í gær. Fyrr um daginn höfðu Maór- ar, frumbyggjar Nýja-Sjálands, haldið sérstaka hreinsunarathöfn við moskuna til að sýna samhug sinn. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, var gagnrýndur í gær, en hann notaði myndbandsupptökur þær sem Tarrant gerði af árásunum og setti á Facebook á sérstökum framboðsfundi fyrir sveitarstjórnar- kosningar sem haldnar verða í lok mánaðarins. Sagði Erdogan að stefnuskrá Tarrants sýndi að hér væri um sam- særi að ræða gegn múslimum og minntist Gallipoli, orrustu í fyrri heimsstyrjöld þar sem hersveitir frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi reyndu án árangurs að hertaka tyrknesku sundin. Sagði Winston Peters að um- mæli Erdogans væru til þess fallin að setja líf Nýsjálendinga erlendis í hættu og fordæmdi þau harðlega. Herða á byssu- löggjöfinni  Árásarmaður- inn hyggst verja sig sjálfur AFP Minning Fórnarlamba árásarinnar var minnst víða um landið í gær. Boeing-flugvélaverksmiðjurnar til- kynntu í gær að sjálfvirkt flug- stjórnarkerfi 737 Max-flugvélanna hefði staðist allar öryggiskröfur sem bandarísk yfirvöld hefðu gert og fylgt öllum fyrri fordæmum. Til- kynnt var á sunnudaginn að rann- sókn á flugritum vélarinnar sem fórst í Eþíópíu í síðustu viku hefði leitt í ljós mikil líkindi með því flug- slysi og flugslysi Lion Air í október síðastliðnum þar sem vél sömu gerð- ar fórst. Hafa böndin einkum beinst að kerfi sem á að koma í veg fyrir að vélin ofrísi. Samkvæmt heimildum Wall Street Journal er bandaríska samgönguráðuneytið að rannsaka hvernig kerfið hafi komist í gegnum skoðun bandarísku flugumferðar- stofnunarinnar, FAA. Þá mun dóms- málaráðuneytið vera að kanna hvort eitthvað saknæmt hafi átt sér stað við hönnun Max-vélanna. Fylgdu reglugerð- um FAA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.