Morgunblaðið - 19.03.2019, Síða 36

Morgunblaðið - 19.03.2019, Síða 36
Starfsmannafatnaður fyrir hótel og veitingahús Hótelrúmföt og handklæði fyrir ferðaþjónustuna Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Vikapiltinn • Hótelstjórnandann Höfðabakka 9, 110 Reykjavík sími 561 9200 | eddaehf@eddaehf.is www.eddaehf.is Allt lín fyrir: Hótelið • Gistiheimilið • Bændagistinguna • Airbnb Veitingasalinn • Heilsulindina • Þvottahúsið Sérverslunina Kvartett trommuleikarans Péturs Östlund leikur á tónleikum djass- klúbbsins Múlans kl. 21 annað kvöld í Kaldalóni í Hörpu. Pétur fæddist í New York, fluttist 11 ára til Íslands og lærði trommuleik. Hann varð fljótlega þátttakandi í íslensku bítlabyltingunni og síðar í íslensku djasslífi. Árið 1969 fluttist hann til Svíþjóðar, býr þar enn og hefur leik- ið með mörgum heimsþekktum djasstónlistarmönnum. Östlund á Múlanum ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 78. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. ÍBV og Selfoss unnu góða úti- sigra í lokaleikjunum í 18. umferð Olís-deildar karla í handknattleik í gærkvöld. Eyjamenn gerðu góða ferð á Hlíðarenda og unnu sann- gjarnan sigur gegn Valsmönnum og Selfyssingar hrósuðu sigri gegn KA-mönnum á Akureyri. »2-3 ÍBV og Selfoss unnu góða sigra ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Ég hóf fyrst störf hjá Landhelgis- gæslunni í apríl 2018 og byrjaði í janúar síðastliðnum í starfi vélstjóra en fram að þeim tíma gegndi ég ann- arri stöðu innan gæslunnar,“ segir Tinna Magnúsdóttir, 2. vélstjóri á varðskipinu Þór, í samtali við Morgunblaðið. Er hún fyrsta konan í sögu Landhelgisgæslu Íslands til að fá fastráðningu í starf vélstjóra. Þegar Morgunblaðið náði tali af Tinnu var hún önnum kafin við vinnu sína um borð í Þór. Var þá verið að undirbúa þriggja vikna út- hald þar sem Tinna mun standa vaktina í hjarta skipsins ásamt yfir- vélstjóra og 1. vélstjóra, en Þór leggur af stað frá bryggju á morgun, miðvikudag. Tinna brautskráðist frá Vélskóla Íslands í maí 2017, en fyrir var hún blikksmiður. Spurð hvað fékk hana til að læra til vélstjóra kveðst hún ekki vita svarið. „Ég bara hreinlega veit ekki hvað varð til þess að ég fór í þetta nám. Ég er spurð þessarar spurningar svolítið oft en hef eiginlega ekkert svar við henni. Eftir að ég lauk námi í blikksmíði langaði mig til að læra eitthvað meira. Svo bara gerðist það,“ segir hún og bætir við: „Ég hitti aftur á móti á rétt nám!“ Fáar konur lokið sama námi Fyrsta konan til að verða vélstjóri hér á landi hóf nám árið 1974, en það ár var gerð breyting á reglum sem leyfði konum að stunda nám í vél- stjórn. Fram að þeim tíma var það ekki leyfilegt. Aðspurð segir Tinna mjög fáar konur hafa brautskráðst með sama próf og hún, eða innan við tíu konur. „Ég held við séum átta talsins sem höfum útskrifast með þessi réttindi frá því að okkur var leyft að fara í þetta nám. Þetta eru stærstu réttindin,“ segir hún. – En hvernig er að starfa hjá Landhelgisgæslunni? „Það er mjög fínn mórall hérna og frábær hópur sem ég er að vinna með hjá gæslunni,“ segir hún. Þýðingarmikið fyrir gæsluna Ásgeir Erlendsson, upplýsinga- fulltrúi Landhelgisgæslu Íslands, segir það vera „ákaflega ánægju- legt“ að kona skuli nú gegna starfi vélstjóra hjá gæslunni. „Þetta er þýðingarmikið skref fyrir stofnunina enda er yfirlýst markmið hjá Landhelgisgæslunni að auka hlut kvenna í starfseminni. Hér á landi hafa fáar konur útskrif- ast vélstjórar og við erum heppin að fá eina þeirra til liðs við okkur. Núna eru fjórar konur í áhöfnum varðskipanna og við bindum vonir við að þær verði fleiri á komandi ár- um.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Vélstjóri Tinna Magnúsdóttir var önnum kafin um borð í varðskipinu Þór þegar Morgunblaðið tók hana tali. Sú fyrsta í sögu Land- helgisgæslu Íslands  Tinna Magnúsdóttir stendur vaktina í hjarta v/s Þórs Ásgeir Sigurgeirsson ætlar sér að komast í fjórða skipti í úrslit í loft- skammbyssu á Evrópumeistara- mótinu í skotfimi sem nú er hafið í Osijek í Króatíu. Ásgeir varð þýskur meistari með félagsliði sínu í vetur og ætlar sér að komast á Ólympíu- leika í annað skipti á næsta ári en kveðst ekki hafa tekið það mjög nærri sér að missa afar naumlega af því að keppa á leikunum í Ríó árið 2016. » 1 Ætlar sér í úrslitin á EM í fjórða skipti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.