Morgunblaðið - 25.03.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2019
Tilboðsblöð og nánari upplýsingar má finna á reykjavik.is/lodir
Nýjar lóðir í Árbæ
Lóðir til sölu
Reykjavíkurborg óskar eftir kauptilboðum í byggingarétt íbúðarhúsnæðis
á tveimur lóðum við Hraunbæ.
Við Hraunbæ 133, er heimilt að byggja 58 íbúðir á 6.160 m2.
Við Hraunbæ 143, er heimilt að byggja 58 íbúðir á 6.176 m2.
Skilafrestur tilboða til þjónustuvers Reykjavíkurborgar að
Borgartúni 12-14, er til kl. 14:00 þann 10. apríl 2019.
Hraunbær 133
Hraunbær 143
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við erum mjög ánægðir með hvernig
aðsóknin hefur verið,“ segir Óskar
Magnússon, einn rekstraraðila Kers-
ins í Grímsnesi.
Aðgangseyrir hefur verið inn-
heimtur af gestum síðan árið 2013 og
hefur gefist vel, að sögn Óskars.
Gjaldið hefur verið notað til að fjár-
magna framkvæmdir á svæðinu og
bæta aðstöðuna fyrir ferðamenn, en
þeim hefur fjölgað ár frá ári. Um 150
þúsund komu í Kerið árið 2016, gest-
irnir voru um 240 þúsund árið 2017 og
í fyrra voru þeir yfir 300 þúsund.
Óskar segir að um 95% gestanna séu
erlendir ferðamenn.
„Aðsóknin er farin að dreifast
betur, það er sífellt að aukast aðsóknin
yfir vetrarmánuðina og það er ástæð-
an fyrir því að við getum tekið á móti
svo mörgum gestum ár hvert. Við höf-
um í raun þurft að taka upp óform-
legar aðgangstakmarkanir yfir há-
annatímann á sumrin. Það gerum við
þegar hópferðarfyrirtæki og stærri
aðilar sem eru í reikningsviðskiptum
hjá okkur skipuleggja ferðir. Þá reyn-
um við að stilla ferðir af svo þær séu á
heppilegum tíma. Ef stórt fyrirtæki
vildi koma með fjórar rútur á dag á
versta tíma, þá er ekki víst að hægt
væri að verða við því,“ segir Óskar.
Ýmsar framkvæmdir hafa verið við
Kerið síðustu ár, svo sem gerð göngu-
stíga og tröppur hafa verið lagðar
niður að vatninu. Reglulega er keyrð
rauðamöl í stígana. Eingöngu heima-
menn vinna við Kerið og þegar best
lætur er vakt þar 13-14 tíma á dag, að
sögn Óskars.
Um þessar mundir er verið að
vinna deiliskipulag fyrir svæðið.
Þegar það liggur fyrir hefjast frekari
framkvæmdir við Kerið. „Annars
vegar hefur Vegagerðin í hyggju að
færa aðkomuna austar, í áttina að
Laugarvatni. Þá verði beygt út af á
stað sem er með betri sjónlínum. Við
erum alveg sammála því og þetta kall-
ar á einhverjar breytingar á svæðinu
líka,“ segir Óskar. Auk þessa verður
ráðist í byggingu húss með aðstöðu
fyrir starfsfólk og nýrrar salernis-
aðstöðu. „Þetta tvennt hefur forgang.
Síðan getur verið að meira verði
byggt í framtíðinni enda býður svæð-
ið upp á ýmsa möguleika, til að mynda
verslun og veitingasölu,“ segir Óskar
sem vonar að þessar framkvæmdir
geti hafist síðar á árinu.
Yfir 300 þúsund gestir
komu í Kerið í fyrra
Aðgangstakmarkanir á sumrin Huga að framkvæmdum
Morgunblaðið/Eggert
Áfangastaður Kerið í Grímsnesi.
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Aðgerðanefnd Starfsgreinasam-
bands Íslands lauk við drög að verk-
fallsaðgerðum á miðvikudaginn í síð-
ustu viku. Í dag verða þær tillögur
kynntar samninganefnd félagsins.
„Ég á hálfpartinn von á því að menn
labbi út með plan,“ segir Sverrir Mar
Albertsson, formaður aðgerða-
nefndarinnar. Seinnipartinn kemur í
ljós hvort tilkynnt verður um aðgerð-
ir eftir fundinn og ef svo fer eru
næstu skref þau að formenn aðildar-
félaga SGS fari í baklandið og kanni
viljann fyrir verkföllum, haldi at-
kvæðagreiðslu.
Aðgerðanefnd SGS hefur í sjálfu
sér ekki völd heldur gerir tillögur að
aðgerðum. Hún er skipuð fimm
fulltrúum úr aðildarfélögunum frá
ólíkum landshlutum. Sverrir er þann-
ig einnig framkvæmdastjóri AFLs
Starfsgreinafélags á Austurlandi.
„Þetta mun taka dálítinn tíma,“ segir
Sverrir. Hann segir að SGS flýti sér
hægt og að aðstæður aðildarfélag-
anna séu ekki alls staðar hinar sömu.
Til að mynda séu Austfirðingar enn
að reyna að átta sig á stöðunni eftir að
í ljós kom að þar yrði engin loðna.
Stutta stund taki að framkvæma at-
kvæðagreiðslurnar í félögunum en
hitt sé það, hvar sé ráðlegt að fara í
vinnustöðvanir. Öll félög munu þó, að
óbreyttu, fara í atkvæðagreiðslu, að
sögn Sverris. Verkfallssjóðir eru að
hans sögn mismunandi hjá félögun-
um og enn á eftir að koma í ljós hvort
samvinna verði höfð á milli félaga
SGS um sjóði, enda aðildarfélögin
rekin ólíkt.
Björn Snæbjörnsson, formaður
Starfsgreinasambandsins, á fund
klukkan ellefu í dag við aðgerða-
nefndina í húsakynnum ASÍ. Hann
sagði við Morgunblaðið í gær að ekki
væri endilega víst að eitthvað yrði
gefið út í dag um aðgerðirnar en stað-
festi að fundað yrði. Hann fullyrti
ekkert í gær um hvaða aðgerðir
kynnu að standa til en sagði nefndina
hafa fengið nokkuð frjálsar hendur
og nú yrði farið yfir hugmyndir
hennar. Hvert félag í SGS þyrfti í
kjölfarið að að greiða atkvæði um að-
gerðirnar, sem verða sameiginlegar.
SGS á ekki fund hjá ríkissáttasemj-
ara í vikunni en líklegt er að sátta-
semjari boði hann í dag.
Pressan orðin mjög mikil
Í dag eiga VR, Efling, VLFA, LÍV,
Framsýn og VLFG fund við Samtök
atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara.
Viðar Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri Eflingar, segir ekki liggja fyrir
hvort höfðað verði mál fyrir Fé-
lagsdómi á hendur meintra verkfalls-
brjóta í vikunni. „Við höfum í mörg
horn að líta. Nú erum við á sama tíma
með verkfallsaðgerðir í lok vikunnar
og erum komin í samningaviðræður
af meiri alvöru en verið hefur,“ segir
hann. Hann segir þó að verið sé að
skoða verkfallsbrotin eftir föngum en
eftir verkfallið á föstudaginn sökuðu
forsvarsmenn Eflingar rekstraraðila
ýmsa um að hafa framið verkfalls-
brot. Viðar er í fjölmiðlabanni en seg-
ir þó ljóst að verkfallsaðgerðirnar
hafi „loksins skapað raunverulegan
samningsvilja“. Áfram er fundað og
tveggja sólarhringa verkfall hefst á
fimmtudaginn kl. 00.01.
Samflot iðnaðarmanna teiknar á
sama tíma upp aðgerðir, segir Krist-
ján Snæbjörnsson, formaður Rafiðn-
aðarsambandsins og talsmaður iðn-
aðarmanna. Aðgerðaáætlun iðnaðar-
manna skýrist í vikunni, gerir
Kristján ráð fyrir. Hann segir engan
fund hafa enn verið boðaðan en að
hann geri þó ráð fyrir því í vikunni,
það sé í höndum ríkissáttasemjara.
„Pressan er orðin mjög mikil að ná
samningum og við þurfum að auka
pressuna á viðsemjendur okkar til að
skrifa undir,“ segir hann. Kristján
bendir loks á, að ef stjórnvöld eigi að
koma að deilunni, gæti það aukið
pressuna á að allir hóparnir semji á
sama tíma.
Morgunblaðið/Hari
Verkföll Svo gæti farið að samninganefnd SGS, sem Björn Snæbjörnsson
formaður (fyrir miðju) á sæti í, kynni í dag áætlun um verkföll.
Aðgerðir SGS
kynntar innan
sambandsins
Aðgerðanefnd SGS kynnir tillögur
Iðnaðarmenn teikna upp aðgerðir
„Staðan er sú akkúrat núna að það hefur ekki verið
grundvöllur fyrir því að leggja fram miðlunartillögu.
Fyrir því eru ýmsar ástæður sem er flókið að útskýra en
það hefur alls ekki komið til tals fram að þessu,“ segir
Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari. „Þetta er ekki
komið að þeim stað, að mínu mati,“ segir hún.
Bryndís segir aðspurð að aukinn þrýstingur sé kom-
inn á viðsemjendur. „Þegar vinnustöðvanir eru komnar
inn í deilu er hún að sjálfsögðu komin á alvarlegra stig.
Það finnum við, öll sem sitjum við samningaborðið,“
segir Bryndís. Síðustu fjórar vikur hafa verið bókaðar
390 fundarstundir hjá sáttasemjara. Málið sé því ekki að fólk „nenni
ekki“ að semja.
390 stundir síðustu 4 vikur
MIÐLUNARTILLAGA EKKI KOMIÐ TIL TALS
Bryndís
Hlöðversdóttir