Morgunblaðið - 25.03.2019, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2019
TRÉSMÍÐAVÉLAR
Vélar fyrir
atvinnumenn
og
handverksfólk
Yfir 40 ára frábær
reynsla á Íslandi
Rennibekkur
Lata
Verð 158.300
Opið virka daga 9-18
laugardaga 10-16
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
Spónsuga 2 stærðir
Verð frá 89.800
Slípivél BTS800
Verð 38.490
Fræsari HF50
Verð 58.400
Súluborvél
2 stærðir
Verð frá 27.460
Smergill BG150
Verð 19.960
Rennibekkur DMT 460
Verð 69.340
Iðnaðarsuga
HA1000
Verð 25.200
Bandsög
2 stærðir
Verð frá 54.660
Slípivél
OSM100
Verð 39.900
Borðsög TS310
Verð 81.940
Borðsög HS120
TILBOÐ 55.480
Hefill
2 stærðir
Verð frá 64.290
Tifsög 2 stærðir
Verð frá 22.620
Slípivél
OSM600
Verð 52.900
Vefverslun brynja.is Fagmennska í 100 ár
STUTT
● Kínversk stjórn-
völd hafa neitað að
verða við þeirri
kröfu Bandaríkja-
manna að aflétta
hömlum á við-
skiptum með staf-
ræna þjónustu. FT
segir frá þessu og
hefur eftir heim-
ildarfólki sem
þekkir til samningaviðræðna ráða-
manna í Washington og Peking.
Þykir stjórnvöldum í Bandaríkjunum
að í Kína séu erlendum seljendum
skýjaþjónustu settar of miklar skorður,
m.a. vegna kröfu um að gögn séu
geymd innanlands og þak sett á það
gagnamagn sem senda má úr landi.
Ýmis þjónusta í tölvuskýinu er orðin
mikilvæg tekjulind margra stærstu
fyrirtækja Bandaríkjanna, s.s. Amazon,
Google, Microsoft og IBM.
Að sögn FT eru ýmis deilumál til við-
bótar sem eftir er að útkljá og fara
áhyggjur vaxandi af að samninga-
viðræður landanna kunni að fara út um
þúfur, þó að Donald Trump Bandaríkja-
forseti hafi fullyrt að viðræðurnar gangi
vel. ai@mbl.is
Viðræður stranda á
stafrænni þjónustu
Donald Trump
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Tap flugfélagsins WOW air nam 22
milljörðum króna í fyrra. Þar af var
EBITDA félagsins (afkoma fyrir fjár-
magnsliði, afskriftir og skatta) nei-
kvæð sem nam 10 milljörðum króna.
Þetta herma heimildir Morgunblaðs-
ins. Tap sem varð í tengslum við sölu
fjögurra nýlegra Airbus-þota til Air
Canada undir lok síðasta árs hafði
mikil áhrif á afkomuna. Þar hafi mun-
að mest um að tveir þotuhreyflar sem
fylgdu með í sölunni hafi ekki staðist
söluskoðun og að það hafi rýrt mjög
söluandvirði vélanna.
Hlutfallið neikvætt um 83%
Afleit afkoma félagsins veldur því
að eigið fé félagsins er um þessar
mundir neikvætt sem jafngildir
rúmum 13,3 milljörðum króna. Það
þýðir að eiginfjárhlutfall félagsins
er neikvætt um 83%. Gera áætlanir
félagsins ráð fyrir að enn muni stað-
an versna og að eigið fé verði nei-
kvætt um mitt ár sem nemur 14
milljörðum króna. Það jafngildir því
að eiginfjárhlutfall félagsins verði
neikvætt um 87%. Sömu gögn sýna
að í lok árs er gert ráð fyrir að eig-
infjárhlutfall félagsins verði nei-
kvætt um 101%.
Isavia lánar til tveggja ára
Heimildir Morgunblaðsins
herma að Isavia hafi komið til móts
við erfiða stöðu WOW air og breytt
kröfum vegna lendingargjalda, sem
komnar voru yfir gjalddaga, í lán til
tveggja ára. Nemur upphæð lánsins
um 1,8 milljörðum króna og ber það
6% vexti. Lendingargjöld sem kom-
in eru fram yfir gjalddaga bera alla
jafna dráttarvexti, eða 10,25%.
Skuldir WOW air nema um þess-
ar mundir 20 milljörðum króna.
Ásamt skuldinni við Isavia er Arion
banki stór lánardrottinn félagsins.
Upplýsingar sem Morgunblaðið
hefur undir höndum sýna að lang-
tímalán sem bankinn hefur veitt
standa í tæpum 1,6 milljörðum
króna. Lánin eru öll veitt til þriggja
ára. Tvö þeirra eru á gjalddaga á
næsta ári en þriðja lánið var veitt á
þessu ári og verður gert upp árið
2022. Aðrir stórir lánveitendur
WOW air eru flugvéla- og hreyfla-
leigufyrirtæki. Stærsta skuldin er
við Avolon eða jafnvirði 1,9 millj-
arða króna. Þá er einnig 1,6 millj-
arða skuld við flugvélaleigufélagið
ALC sem á flestar þeirra þota sem
WOW air notast við enn í dag.
Skortir mjög lausafé
Upplýsingar sem Morgunblaðið
hefur séð sýna að þörf er á að
minnsta kosti 10 milljarða innspýt-
ingu í félagið á þessu ári, eigi það að
eiga sér viðreisnar von. Sem stend-
ur er lausafjárstaða félagsins nei-
kvæð sem nemur ríflega 11 millj-
ónum dollara. Á öðrum
ársfjórðungi er gert ráð fyrir að
hún versni enn og verði tæpar 40
milljónir dollara.
Neikvætt eigið fé hjá WOW
WOW air tapaði 22 milljörðum í fyrra Eigið fé félagsins er neikvætt sem
nemur ríflega 111 milljónum dollara Félagið þarf 10 milljarða innspýtingu í ár
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vélar Sala véla til Air Canada losaði um talsvert fjármagn en bókhaldslegt tap af viðskiptunum reyndist gríðarlegt.