Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2019, Blaðsíða 2
Hvernig tilfinning var að láta í sér
heyra á loftslagsmótmælunum? Á
miðvikudeginum í nestistímanum byrjaði ég
að tala um mótmælin við vini mína. Við ákváðum
að gera veggspjöld og hengja upp í skólanum, til að fá
hina krakkana til að skrópa á föstudeginum. Það var rosalega
skemmtilegt og við þurfum eiginlega að stelast til að teikna þau og
hengja þau upp. Þegar við fórum á mótmælin var ég ekki búin að
ákveða að tala. Vinkonur mínar voru að grínast með að ég ætti
segja eitthvað, svo ég ákvað að gera það. Þegar ég stóð fyrir fram-
an mannfjöldann var ég bæði kvíðin og leið vel. Þegar ég var búin
að tala var ég mjög glöð og stolt af sjálfri mér.
Hugsarðu mikið um umhverfið?
Undanfarið hef ég mikið hugsað um það. Ég kaupi minna rusl-
fæði og plastdót, út af plastinu sem er í því og utan um það. Ég
flokka alltaf ruslið mitt og þegar ég sé rusl á götunni tek ég það
upp og hendi því í næstu ruslatunnu. Ég reyni líka að ganga eins
mikið og ég get á milli staða til að minnka bílamengun.
Hvað geta börn og ungmenni gert til að snúa þró-
uninni við? Þau geta gert það sama og ég, eða fundið aðrar að-
ferðir til að passa upp á umhverfið. Mjög margir krakkar eru að
pæla í loftslagsbreytingum og afleiðingum þeirra. Börn þurfa líka að
gera hlutina þótt fullorðna fólkið segi að þau geti ekki haft nein
áhrif. Þau er af kynslóð sem kom okkur í þessar ógöngur.
Áttu einhverja fyrirmynd í þessum málum? Já, ég
myndi segja Greta Thunberg sem byrjaði á þessum mótmælum.
Mér finnst þetta alveg frábært hjá henni, en ég geri þetta samt á
minn eigin hátt.
Hvernig verður framtíðin? Ef við gerum ekki eitthvað í
málunum, stoppum gráðuga fólkið, kapítalistana, sem þetta er að
kenna, verður allt verra. Ég held að í sumum löndum verði allt of
margir íbúar af því að það verður ólíft í heitustu löndunum. Lífið á
jörðinni verður verra en það er núna, en síðan mun það batna.Morgunblaðið/Hari
SINÉAD EYJA MARA
SITUR FYRIR SVÖRUM
Stoppum
gráðuga fólkið
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.3. 2019
Langar þig í ný gleraugu!
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Það fyrsta sem Marilyn Monroe leikkona tók eftir þegar
hún hitti Arthur Miller rithöfund, voru gleraugun!
Til er fólk sem vill frekar spyrja annað fólk á Facebook hvaða sjúkdómaþað sé mögulega með og fá greiningar almennings á heilsufari sínu, enað leita læknis. Hundveikur í nokkra daga, með útbrot og illt neðar-
lega vinstra megin í maganum – „hvað mynduð þið gera?“
Það er eins og það færist í vöxt að fólk telji persónulegt álit sitt og annarra
vega jafn þungt og staðreyndir, bara ef það hefur aðra skoðun en „stað-
reyndin“ snýst um.
Fróðleikur um staðreynd. Samkvæmt skilgreiningu á hugtakinu þá er það
eitthvað sem er sannreynt. Eitthvað
sem er raunverulegt.
Meiri fróðleikur, nú um skoðun.
Sem á ekkert skylt við staðreynd,
heldur er skoðun persónuleg trú
fólks, eitthvað sem fólk heldur, án
þess að hafa sannanir. Eða eins og
Ricky Gervais segir réttilega í uppi-
standi sínu Humanity; „Þú getur
haft þínar eigin skoðanir, en þú get-
ur ekki átt þínar eigin staðreyndir.
Sannleikur snýst ekki um lýðræði.“
Staðreyndir eiga undir högg að
sækja. Bæði óbreyttur almenningur
sem og hátt settir ráðamenn heims-
ins segjast ætla að hafa eigin skoð-
anir á sannreyndum staðreyndum,
þeir segjast einfaldlega ekki sammála staðreyndinni.
Þetta birtist sterkt í umræðunni um bæði bólusetningar og svo loftslags-
mál, verri staði er varla hægt að ímynda sér til að „skoðanafólkið“ skjóti upp
kollinum. Þrætur skoðanafólks við vísindasamfélagið hafa virkað eins og far-
artálmi á leið til beinna aðgerða í að bæta loftslagsmálin. Þrætur „skoð-
anafólks“ við heilbrigðisvísindin hafa orðið til þess að sjúkdómar sem ætti að
vera búið að útrýma eru nú orðnir ógn á ný, ein stærsta heilsufarsógn okkar
aldar. Það er ótrúlega flókið og orkukrefjandi að þræta við fólk sem telur að
„persónulega finnst mér“ hafi vægi á við niðurstöðu vísindalegrar tilraunar.
En það þarf virðist þurfa að taka þessa umræðu. Svipað og það þarf að fá
skoðanir rasista fram; til að geta tekið við þá umræðuna, því við vonum og
trúum að hyggjuvit og rökræður hafa alltaf betur þar.
Mótmæli unga fólksins á Austurvelli síðustu tvo föstudaga hafa stað-
reyndir með sér. Kröfuspjöld þeirra hafa verið einföld og skýr; „Hlustið á
vísindin“.
Ofmetið
almenningsálit
Pistill
Júlía Margrét
Alexandersdóttir
julia@mbl.is
’ Það er eins og þaðfærist í vöxt að fólktelji persónulegt álit sitt ogannarra vega jafnt þungt
og staðreyndir, bara ef það
hefur aðra skoðun en
„staðreyndin“ snýst um.
Valva Árnadóttir
Helst aldrei.
SPURNING
DAGSINS
Hvað
hreyfir þú
þig oft í
viku?
Haraldur Ómarsson
Ég geng alla daga vikunnar eitthvað
en er lítið í ræktinni.
Ólafía Skarphéðinsdóttir
Mjög sjaldan, eða kannski einu
sinni, tvisvar í viku.
Baldur Sverrisson
Svona sex sinnum í viku. Ég æfi
karate og fer út að skokka.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
Sinéad Eyja Mara er
nemandi í 7. bekk
Austurbæjarskóla
og talaði á fyrsta
loftslagsverkfallinu.
Mótmælin eru hald-
in á Austurvelli, kl.
12 alla föstudaga.