Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2019, Page 15
24.3. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
segir Laufey en hún notar einnig tónheilun í
kyrrðarjóga. Til þess spilar hún bæði á hörpu
og gong.
Laufey er því núna í 40% starfi á Landspít-
alanum en að auki heldur hún fyrirlestra, er
með vinnustofur og kennir tíma í Yoga Shala.
Algjörlega svart og hvítt
Blaðamanni finnst nóg um og spyr hvort ekki
sé hreinlega of mikið að gera hjá henni.
„Nei, það er nefnilega eitt, þegar maður er
búin að ná tökum á streitu og maður er með
verkfærin og úrræðin, þá er ekki of mikið að
gera. Auðvitað þarf maður að passa sig og
finna jafnvægið. Streita er eitur í mínum bein-
um og um leið og ég finn streituna kemur kvíð-
inn.“
Hvað veldur þér kvíða í dag?
„Að fá ekki nógan svefn veldur mér kvíða.
Ég myndi aldrei fara að vinna næturvaktir aft-
ur og ég fer ekki í næturflug. Svo á ég erfitt
með breytingar eða óvissu. En það gengur
samt betur. Fyrir þremur árum hefði ég aldrei
þorað að halda fyrirlestur eða vera með nám-
skeið en í dag finnst mér það ekkert mál. Ég
kann núna að stjórna kvíðanum og geri það
m.a. með öndunaræfingum sem ég hef lært. Í
Kyrrðarjóga legg ég áherslu á hugleiðslu, önd-
un, djúpslökun og tónheilun,“ segir Laufey
sem segist stöðugt vera að bæta við sig námi
en hún er um þessar mundir að útskrifast úr
þriðja jógakennaranáminu.
„Ég er alls staðar og úti um allt og finnst
það ekkert mál,“ segir Laufey og nefnir að
hennar líðan í dag sé gjörólík líðaninni sem var
árið sem hún örmagnaðist.
„Þetta er algjörlega svart og hvítt. Ég er í
svo mikilli gleði. Ég finn alveg kyrrðina og á
auðvelt með að nálgast hana því ég er vel virk
með mikla orku, eld og ástríðu sem ég þarf oft
að dempa. Þá er gott að hafa þessi úrræði. Það
að stunda hugleiðslu hefur líka fært mér mikið
sjálfstraust, sjálfsþekkingu og sátt. Ég er um-
burðarlyndari og kærleiksríkari og í sterkari
tengingu við tilfinningar mínar. Ég er ekki
sama manneskjan, ég segi oft Laufey fyrir
hrun og Laufey eftir hrun. Ég held að það hafi
verið tilgangur með þessu öllu. Í dag lít ég á
mig sem boðbera hugleiðslu og kyrrðar,“ segir
hún.
„Mín mantra í lífinu er svona: ég treysti
innsæi mínu, ég tala sannleikann og ég hlusta
á hjartað.“
Opna töfraheiminn
Það má segja að hjónin vinni bæði að því að
fólk öðlist betri heilsu; Ingvar læknar fólk lík-
amlega en Laufey andlega. Vissulega eru þau
bæði að vinna með starfsemi heilans þótt á
ólíkan máta sé. Þegar Laufey fór að stunda
hugleiðslu af miklum móð smitaði hún mann-
inn sinn af áhuganum.
„Hann er búinn að fylgjast með mér á þess-
ari vegferð og dáist að árangri mínum. Hann
er mjög stoltur af mér, að hafa farið úr þess-
um dimma dal og á þennan fallega stað sem
ég er á í dag. Hann sem heilaskurðlæknir vildi
kynna sér vísindin á bak við hugleiðslu. Hann
er farinn að halda fyrirlestra með mér um
hvað það er sem gerist í heilanum þegar hug-
leiðsla er stunduð. Hugur og líkami eru sam-
ofnir; þetta er ekki aðskilið. Og það er hægt
hafa mótandi áhrif á heilann sinn ævina út,“
segir hún og nefnir að þau hjón séu gjarnan
beðin um að halda saman vinnustofur og
fyrirlestra.
„Ég tala og leiði hugleiðsluna og hann, þessi
klettur sem er fæddur með innri kyrrð, kemur
með vitneskju úr heimi vísinda. Saman náum
við að matreiða þetta á þann hátt að við náum
að breiða út boðskapinn, boðskap heilsu. Við
erum fullkomin samsetning,“ segir hún og seg-
ist vilja byggja brú á milli vestrænna vísinda
og austrænnar visku.
„Fólk á Vesturlöndum er að átta sig á því
að þessi aldagamla viska er að virka. Hug-
leiðsla er heimspeki og það hafa allir aðgang
að henni. En hún er líka vísindi því það er bú-
ið að sanna ágæti þess að hugleiða. Hug-
leiðsla er mótefnið, ókeypis og án aukaverk-
ana. En það þarf einhver að leiða þig inn í
hana og opna þennan töfraheim og ég geri
það í gegnum jóga nidra. Því þetta er töfra-
heimur,“ segir Laufey.
„Ég hef alltaf litið á mig sem sterka og kraftmikla
konu sem gæti sigrast á öllu. Þessi týpíska ofur-
kona. En þarna hafði ég bara enga orku og í stað-
inn fyrir að leita mér hjálpar dró ég mig í hlé,“
segir Laufey Steindórsdóttir jógakennari, sem fann
leið út úr álagi og streitu í gegnum hugleiðslu.
Morgunblaðið/Ásdís