Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2019, Page 22
Fyrir 1-2
2 egg
3 eggjahvítur
2⁄3 dl mjólk (vilji maður
gera vel við sig er hægt að
nota rjóma)
sveppir
skinka
ferskt brokkolí
rifinn ostur (líka hægt að
nota ferskan mozzarella
ost eða brie ost, skorinn í
bita)
smör eða olía til steikingar
½ tsk. basilika
½ tsk. oregano
salt og pipar
Setjið egg og eggjahvít-
ur í skál ásamt mjólk og
pískið þetta létt saman.
Bætið kryddinu út í.
Skerið sveppina fremur
gróft og steikið þá á
pönnu. Því næst er
eggjahrærunni hellt út á
pönnuna. Skinkan er
skorin niður í bita ásamt
brokkolíi og hvoru
tveggja bætt út í ásamt
ostinum. Látið eggja-
kökuna malla á með-
alhita, gætið þess að
hafa hann ekki of háan
þannig að eggjakakan
brenni ekki. Pikkið í
hræruna á meðan hún er
að þykkna til að flýta
fyrir.
Þegar kakan
hefur stífnað
vel er henni
snúið við
og hún
steikt á
hinni
hliðinni
í nokkr-
ar mín-
útur. Það
er hægt að
snúa við kök-
unni til hálfs (í
hálfmána) ef maður
treystir sér ekki til að
snúa henni við í heilu
lagi. Einnig er hægt að
sleppa því að snúa henni
við, setja lok á pönnuna
og fullelda eggjakökuna
þannig á annarri hlið-
inni. Einnig er gott að
klára eldunina inni í bak-
arofni í nokkrar mínútur
ef pannan kemst inn í
ofn. Berið fram með
avókadó, góðum osti og
grænmeti eða ávöxtum
að eigin vali.
Frá eldhussogur.com
Klassísk
ommeletta
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.3. 2019
LÍFSSTÍLL
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Spiced Honey
litur ársins 2019
Fyrir 6-8
olía og smá smjör
púrrulaukur, smátt
skorinn
2 meðalstórar bök-
unarkartöflur, smátt
skornar
1 krukka grilluð papr-
ika (smá af olíunni
líka, ca 2 msk.)
10 egg, léttþeytt
100 g rifinn ost-
ur
handfylli rifinn
Parmesan
ostur
salt og
pipar
Hitið olíu og smjör á
26 cm pönnu, sem
má fara inn í ofn.
Látið laukinn malla
í olíunni/smjörinu í
smá stund eða þar til
hann verður mjúkur í
gegn. Bætið þá kart-
öflum og steikið í 1-2
mínútur, því næst
bætið þið grilluðu
paprikunum út á
pönnuna. Blandið
öllu vel saman og
kryddið til með salti
og pipar, steikið á
pönnunni í 3-4 mín-
útur.
Á meðan létt písk-
ið þið 10 egg og
kryddið til með salti
og pipar. Bætið rifn-
um osti saman við
eggin og hellið eggja-
blöndunni út á pönn-
una.
Steikið á lágum
hita í 4-5 mínútur eða
þar til eggjakakan er
að verða stíf og flott.
Setjið eggjakökuna
inn í ofn við 180°C og
látið bakast í 15-20
mínútur eða þar til
hún er stíf í gegn og
gullinbrún.
Berið eggjakökuna
fram með fersku sal-
ati og stráið gjarnan
rifnum Parmesan-
osti yfir.
Frá evalaufeykjaran.is
Ítölsk eggjakaka í ofni
Fyrir 12
½ bolli ólífuolía
5 meðalstórar kart-
öflur, skornar í 2-3 cm
kubba
1 stór laukur, skorinn
8 egg
salt og nýmalaður
pipar
steinselja til skrauts,
valfrjálst
Hitið olíu á 30 cm
teflonhúðaðri pönnu.
Steikið kartöflurnar
þar til þær eru stökk-
ar og gullinbrúnar.
Bætið lauknum út
á pönnu og steikið
þar til glær. Hellið
allri umframolíu af
pönnunni.
Setjið laukinn og
kartöflurnar aftur á
pönnuna og dreifið
fallega á pönnuna.
Lækkið hitann.
Sláið eggin saman
með salti og pipar.
Hellið hrærunni á
pönnuna og ýtið kart-
öflum og lauknum til
og frá með sleif.
Hrærið annað slagið í
eggjunum sem um-
lykja kartöflurnar svo
að eggin eldist á
botninum. Takið
stóran disk og setjið
yfir pönnuna og hvolf-
ið omelettunni á disk-
inn. Setjið eggjakök-
una varlega aftur á
pönnuna. Haldið
áfram að elda og
hristið pönnuna af og
til þar til fulleldað.
Takið disk og setjið
hann ofan á pönnuna
og hvolfið eggjakök-
unni á diskinn.
Skreytið með
steinselju. Berið fram
með salati.
Spænsk ommeletta
Ómissandi
ommelettur
Það ættu allir að kunna að búa til ommelettu
enda ekki flókin eldamennska. Komdu fjöl-
skyldunni skemmtilega á óvart um helgina
með einni ítalskri, spænskri eða klassískri.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is