Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2019, Blaðsíða 29
sem honum finnst eiga það skilið
heyra það, hann hagar sér sem sagt
eins og algert fífl. Þannig fjúka
brandararnir; Gervais sem Tony er
með skotleyfi á allt og alla þar sem
hann telur sig hvort sem er ekki hafa
neinu að tapa.
Undir yfirborði hryssings og
svarts húmors býr stórt hjarta og
mikil hlýja og það sem áhorfandinn
býst kannski ekki við; djúp heim-
speki um lífið og dauðann. Undir
dökku gríni Tony leynist nefnilega
stærsta hjartað og á einstakan hátt
nær Gervais að sýna hvað grín og
hlátur er græðandi og þroskasaga
Tony dregur smátt og smátt í ljós
hvað spéfuglinn boðar í raun mikla
mannúð í sínu gríni.
Fjöldi umsagna um þættina snýst
einmitt um tár og hlátur í senn.
Þetta kann að koma á óvart því
meira að segja áður en þættirnir fóru
í loftið voru móðgaðar raddir farnar
að hljóma.
Ástæðan var klippa sem sýndi
Ricky Gervais, í karakter sínum sem
Tony, garga á hrekkjusvín á skóla-
lóð; uppnefndi hann fyrir að vera
þéttholda og rauðhærður.
Í viðtali við Telegraph sagði grín-
istinn: „Ég held að allir þeir brand-
arar sem ég hef sagt séu réttlætan-
legir. Fólk hefur alltaf verið tilbúið til
að móðgast en nú á tímum er þetta
múgur.“ Gervais hefur alltaf lagt
áherslu á að það er ekki efni brand-
ara sem skipti máli, heldur sam-
hengið.
Um After Life og hinn óvægna
Tony sagði Gervais jafnframt í við-
talinu:
„Ég bjó til manneskju sem er
grimm, en það er ekki ég, er það?
Ástæðan fyrir því að fólk hlær að
gríninu er að þú mátt hlæja, það sær-
ir engan. Að vera siðuð manneskja er
að hafa myrkar hugsanir en haga sér
ekki í samræmi við þær,“ segir
Gervais.
Hann telur alla hafa svartan húm-
or og hugsanir sem enginn myndi
þora að nefna upphátt. Munurinn á
honum og öðrum er að hann rann-
sakar þessar hugsanir, kafar ofan í
þær og vinnur með.
Í After Life er efni tekið fyrir sem
er ekki dæmigert fyrir grín; ástvina-
missir, sorg og
sjálfsvígshugsanir. Nokkuð hefur
verið skrifað um nálgun Gervais og
þykir mörgum hún fersk og afdrátt-
arlaus en ekki „vandræðalega tipl-
andi á tánum“ eins og oft vill verða í
umfjöllun um málefnið. Á facebook-
síðu hafa margir þakkað Gervais fyr-
ir þættina og hefur nokkuð borið á að
fólk sem hefur misst maka hafi lagt
orð í belg. „Þú lýsir því nákvæmlega
hvernig mér leið fyrst eftir missinn,“
skrifar ekkill og þakkar honum fyrir
að lýsa svo vel tilveru sorgarinnar.
Í viðtali við New York Times í vik-
unni talar Ricky Gervais um efni
grínsins:
„Fólk heldur stundum að það að
einhver geri grín að þeirra vanda-
málum sé það versta í heimi. Ég grín-
aðist með hnetuofnæmi hjá Jimmy
Fallon og einhver sagði að ég ætti
aldrei að gera grín að fæðuofnæmi.
Ég grínast með alnæmi, hungurs-
neyð, krabbamein og helförina og
einhver segir að ég eigi ekki að grín-
ast með ofnæmi. Áhorfendur þurfa að
vera nógu klárir til að vita hvenær ég
leik fífl og segi eitthvað rangt gríns-
ins vegna. Það er það sem grín snýst
um; hlæja að röngum hlutum vegna
þess að þú veist hvað það rétta er.“
Forvitnilegar persónur,
hver annarri skrautlegri,
birtast í After Life.
Fyrirsagnir um After Life hafa verið í efsta stigi með línum á borð við að þætt-
irnir séu það besta sem Ricky Gervais hefur gert.
24.3. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is
FJÖLPÓSTUR
SEM VIRKAR
*könnun Zenter apríl 2016.
61% landsmanna lesa fjölpóst
70% kvenna lesa fjölpóst
58% neytenda taka eftir tilboðum á
vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst*
Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili
MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR
EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR
Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar
Tónlist Tónlistarkonan Cher
er í öngum sínum og það yfir
ekki hefðbundnum hlut en
hún leitar nú eftirlætisflíkur
sinnar, stuttermabols. Þessi
bolur á þó sögu því Cher hef-
ur átt hann í 40 ár og notað
hann óspart við hin ýmsu til-
efni. Hún auglýsir eftir boln-
um á Twitter en aðdáendur
benda henni á að kannski
hafi einhver stolið honum af henni og ætli sér að selja bolinn á netinu.
„Það væri heimskulegt, því ég myndi alltaf borga skrilljón sinnum meira
en allir aðrir,“ svaraði Cher að bragði.
Frægi bolurinn horfinn
Cher hefur notað bolinn í 40 ár.
Eftir að heimildamyndin Leaving Neverland var sýnd
hafa gömul viðtöl við La Toya Jackson komið aftur upp
á yfirborðið þar sem hún varaði við því að bróðir
hennar væri barnaníðingur. Árið 1991 kom út bókin
Growing Up in the Jackson Family
sem geymir endurminningar La Toya
og lýsingar hennar á því hvernig var að
alast upp á Jackson-heimilinu.
Nýjasta bók Stuart Neville, eins fremsta glæpa-
sagnahöfundar Íra, Vofurnar í Belfast, er nýkomin út
á íslensku. Fórnarlömb morðingjans Garry Fegans
ásækja hann nótt sem dag og hann verður að friða samviskuna.
Lífssögur ungs fólks er bók sem byggist á viðamikilli
langtímarannsókn höfundar, dr. Sigrúnar Aðalbjarnar-
dóttur, þar sem kannaðir eru ýmsir þroskaþættir.
Raktar eru áhugaverðar lífssögur fimm ungmenna frá
því þau eru á sextánda ári og fram á fertugsaldur.
Skoðað er hvernig uppeldisaðferðir foreldra geta haft
áhrif á m.a. samskiptahæfni, sjálfstraust og líðan.
ÁHUGAVERÐAR BÆKUR
Smásögur hafa orðið fyrir valinu
hjá mér að miklu leyti síðastliðin
misseri. Það er skemmtilegt form
þegar fær höfundur heldur um
pennann, og hentugt til lestrar fyr-
ir fólk í erli nútímans. Einnig spilar
eflaust inn í valið hve mörg góð
smásagnasöfn hafa
komið út (frum-
samin og þýdd) und-
anfarin ár, t.a.m.
Bavíani, Takk fyrir
að láta mig vita og
Ástin, Texas. En
smásagnasafni hinnar ungu Fríðu
Ísberg, Kláða, vil ég hrósa sérstak-
lega. Hugsaði hreinlega hvort
stjarna væri fædd
þegar ég las hana. Ef
einhver segir mig al-
veg gaga af þeim
sökum verður svo
að vera.
Frábær ljóðabók
varð á vegi mínum fyrr í vetur,
Vistarverur eftir Hauk Ingvarsson.
Meginþráður bókarinnar er graf-
alvarlegur, skeytingarleysi mann-
skepnunnar í umhverfismálum og
ákveðin speglun þar að lútandi við
stórafglöp fortíðar.
En Haukur sýnir
ótrúlega færni í að
flétta saman hinu
harmræna og ógn-
vekjandi við fegurð
og hárfínan húmor.
Eyland eftir Sigríði Hagalín las
ég loksins um daginn, en hún hafði
í tvö ár borið skarðan hlut frá nátt-
borði vegna smásagnablætisins.
Þetta er þrusudystópía og magnað
fyrsta verk. Vonandi á Sigríður þó
sinn Citizen Kane eftir.
KRISTJÁN HRAFN ER AÐ LESA
Stjarna fædd?
Kristján Hrafn
Guðmundsson
er kennari við
Garðaskóla og
leigubílstjóri í
hjáverkum.
BÓKSALA 13.-19. MARS
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Húðflúrarinn í AuschwitzHeather Morris
2 BlóðhefndAngela Marsons
3 BöndDomenico Starnone
4 Hin ósýnileguRoy Jacobsen
5 Sextíu kíló af sólskiniHallgrímur Helgason
6 Þar sem ekkert ógnar þérSimone van der Vlugt
7 MaestraL.S. Hilton
8 UndrarýmiðSigurlín Bjarney Gísladóttir
9 Independent PeopleHalldór Laxness
10 KvikaÞóra Hjörleifsdóttir
1 Villinorn – blóð ViridíönuLene Kaaberbøl
2 MatthildurRoald Dahl
3 VitinnRóbert Marvin
4
Risasyrpa
– sögur úr Andabæ
Walt Disney
5
Krókódíllinn sem þoldi
ekki vatn
Gemma Merino
6 Fröken BlómafrúEva Jónína og Daníel Snorri
7 Litli prinsinnAntoine de Saint-Exupéry
8 Límmiðafjör – dýr, með litabók
9 Skrifum stafinaJessica Greenwell
10 Gallsteinar afa GissaKristín Helga Gunnarsdóttir
Allar bækur
Barnabækur