Morgunblaðið - 16.04.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.04.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019 9 DAGA HAUSTFERÐIR TAMPA ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS VERÐ FRÁ 196.900 KR. INNIFALIÐ: FLUG, GISTING & MORGUNVERÐUR NÁNAR Á UU.IS SÉRTILBOÐ! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Pirringur í baklandi iðnaðarmanna  Samningaviðræður SA og samflots iðnaðarmanna þokast lítið sem ekkert áfram  Markmiðið að ná samningum en ef ekkert gerist verður gripið til aðgerða, segir formaður Rafiðnaðarsambandsins Magnús Heimir Jónasson Anna Lilja Þórisdóttir „Það er orðið augljóst að það gætir mikils pirrings í baklandinu að vera ekki komin lengra með samninga,“ segir Kristján Þórður Snæbjarnar- son, formaður Rafiðnaðarsam- bandsins, eftir fund með fólki í bak- landi samflots iðnaðarmanna síðdegis í gær. Hann sagði lítið að frétta eftir fund með Samtökum at- vinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í gær. „Það þokaðist ekkert áfram hjá okkur.“ Spurður um hvort pirringur í baklandinu sé til þess fallinn að auka líkurnar á að það verði farið í aðgerðir, segir Kristján það líklegt. „Auðvitað, ef menn fara ekki að ná að semja sem fyrst þá mun það þýða það að menn fari í einhverjar aðgerðir. Markmið okkar er auðvit- að að ná samningum en við munum grípa til einhverra aðgerða ef ekk- ert fer að breytast.“ Spurður hvað það sé sem skilur samningsaðilana að segir Kristján það vera voðalega erfitt að segja. „Þetta er fljótt að gerast þegar menn setjast niður og vinna almennilega. Það þarf ekkert að vera svo svakalega langt bil á milli manna.“ Skipta aðalkröfum í þrennt Kröfur iðnaðarmanna snúast að- allega um þrennt; aukinn kaupmátt launa, styttingu vinnuvikunnar og breytingar á tilteknum ákvæðum kjarasamninga, en nokkrir veikleik- ar hafi komið fram í túlkun samn- inganna. Spurður um nánari útlist- un á kröfunum, segir Kristján þær vera trúnaðarmál, en ljóst sé að laun þurfi að hækka meira en verðlag. Morgunblaðið/Hari Fundur Bakland iðnaðarmanna kom saman til fundar í gær og Kristján ávarpaði hópinn. Næsti fundur með SA hjá ríkissáttasemjara er á morgun. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Komu mjaldra-systranna, Litlu-Grá- ar og Litlu-Hvítar, hefur verið frest- að um óákveðinn tíma. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er lík- legt að mjaldrarnir komi ekki fyrr en í maí eða jafnvel júní. Á föstudaginn var ákveðið að fresta komu mjaldr- anna vegna veðurs og lokunar Land- eyjahafnar en unnið var að því að koma þeim til landsins sem fyrst. Mjaldrarnir áttu að koma til landsins klukkan níu í dag með sér- útbúinni flutningavél Cargolux en ljóst er að ekkert verður úr því. Dýpkun Landeyjahafnar er enn ólokið og olli það mestu um frest- unina ásamt slæmri veðurspá. Að- standendur verkefnisins, Merlin En- tertainment og góðgerðarsamtökin Sealife Trust, treysta mjöldrunum ekki til að þola flutning með Herjólfi frá Þorlákshöfn til Eyja, en sú sigl- ing getur tekið þrjá tíma en sigling úr Landeyjahöfn tekur að jafnaði um hálftíma. Fljúga átti með mjaldrana frá Sjanghæ í Kína til Íslands. Þeir áttu síðan að fara með bílum TVG Zimsen til Vestmannaeyja þar sem þeir myndu verða settir í sóttkví í nokkr- ar vikur áður en þeim yrði síðan komið fyrir í Klettsvík. Engar upp- lýsingar fengust um hvenær þessi ferð verður farin en sem fyrr segir gæti verið mánuður jafnvel tveir mánuðir í það. Ferð mjaldranna til Vest- mannaeyja frestað um sinn  Mjaldrarnir enn í Kína  Koma mögulega í maí eða júní Mjaldrar Litla-Grá og Litla-Hvít eru enn í Sjanghæ í Kína. Hópferðabifreið sem ekið var aftan á fólksbifreið á Suðurlandsvegi vestan Hunkubakka í desember 2017 með þeim afleiðingum að tveir farþegar létu lífið og nokkrir slösuðust alvar- lega var ekið of hratt og hemlageta hennar var of lítil. Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar sam- gönguslysa sem birt var í gær. Í skýrslunni segir að ökumaður hópferðabifreiðarinnar hafi brugðist of seint við eða ekið of nálægt fólks- bifreiðinni miðað við aðstæður. Sömuleiðis hafi ökumaðurinn og nokkrir farþegar, þar á meðal þeir sem létust, ekki verið með öryggis- belti spennt og ökumaðurinn mögu- lega verið þreyttur. 44 ferðamenn voru í bifreiðinni auk leiðsögumanns og ökumanns. Varðandi ástand hópferða- bifreiðarinnar hafi við rannsókn komið í ljós að ástandi hemlakerfis hennar væri ábótavant. Hemlar í hægra framhjóli hafi virkað en engin virkni hafi verið á hemlum í vinstra framhjóli. „Vökvahemlakerfi var í framhjólum og var leki í kerfinu vinstra megin, þannig að enginn vökvi var í dælunni og stimplar í hemladælu fastir. Lekinn var úr hemlaslöngu sem liggur frá forða- búri að höfuðdælu. Gaumljós í mæla- borði sem á að kvikna þegar vökva- magn fer niður fyrir lágmark var bilað.“ Ók of hratt og hemlar ekki í lagi  Skýrsla um bana- slys við Hunkubakka Benedikt Jónsson, sendiherra Íslands í Dan- mörku, afhenti í gær Listasafni Reykjavíkur átján áður óþekkt verk eftir Sölva Helgason. Verkin koma í fyrsta sinn fyrir sjónir almennings á sýn- ingu á verkum Sölva sem opnuð verður á Kjar- valsstöðum 25. maí. Ingrid Nielsen, eigandi verk- anna, hefur ákveðið að gefa íslensku þjóðinni þau. Amma hennar og nafna kom með verkin til Dan- merkur árið 1912. Á myndinni eru Harpa Björns- dóttir sýningarstjóri, Benedikt Jónsson sendi- herra og Sigurður Trausti Traustason, deildarstjóri hjá Listasafni Reykjavíkur. Áður óþekktar myndir Sölva Helgasonar Morgunblaðið/Árni Sæberg Sendiherra Íslands í Danmörku kom færandi hendi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.