Morgunblaðið - 16.04.2019, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Úrval af rafdrifnum
hvíldarstólum
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosamargrett@gmail.com
Enn hefur ekkert spurst til Jóns
Þrastar Jónssonar sem hvarf spor-
laust í Dublin á Írlandi en síðast sást
til hans rétt fyrir hádegi 9. febrúar
síðastliðinn.
Davíð Karl Wiium, bróðir Jóns,
segir í samtali við Morgunblaðið að
það sé lítið sem fjölskyldan geti gert
annað en að halda áfram að minna á
málið. „Við erum bara í því að reyna
að halda póstinum gangandi. Það vita
allir af þessu úti. Það er eiginlega
enginn sem hefur ekki heyrt um
þetta. En það er voða lítið sem hægt
er að gera eins og er,“ segir Davíð.
Hann segir að fjölskyldan hafi reynt
eftir bestu getu að skiptast á að fara
út til Írlands.
Davíð hafi þó
þurft að einblína á
nám sitt upp á
síðkastið en hann
kláraði síðasta
lokaprófið í gær.
Þá stefnir hann
að því að fljúga til
Írlands í dag til að
taka við af systur
sinni sem er ný-
komin heim frá Dublin. Hann segist
stefna á að nýta tímann vel úti og vill
reyna að komast í fjölmiðla til að
dreifa upplýsingunum sem víðast.
Þetta telur hann vera það mikilvæg-
asta sem hægt sé að gera í augna-
blikinu. Jafnframt stefnir Davíð á að
funda með írsku lögreglunni á mið-
vikudaginn og reiknar með að fá þá
meiri upplýsingar um hver staða
rannsóknarinnar sé. „Málið er opið
hjá þeim en það er lítið hægt að gera
ef það er ekkert til að vinna með,“
segir Davíð.
Hann segir að ýmsar tilgátur
séu á sveimi um hvað hafi orðið um
Jón en skiptar skoðanir séu á því
hvort hann hafi yfirgefið landið.
„Þetta er allt jafn líklegt og ólík-
legt fyrir mér. Hann var ekki með
vegabréf eða neitt svo maður veit
ekki hversu langt maður kemst án
þess. Það þarf að tékka sig inn sama
hvort maður er innanlands eða utan-
lands. Maður þarf í flestum tilfellum
að hafa eitthvað til þess að staðfesta
hver maður sé. En, eins og ég segi,
þá veit maður ekkert.“
Allt jafn líklegt og ólíklegt
Bróðir Jóns stefnir á fund með írsku lögreglunni
Jón Þröstur
Jónsson
Magnús Heimir Jónasson
Guðmundur Sv. Hermannsson
Þórunn Kristjánsdóttir
„Hún er hjarta Parísar og þess vegna
er þjóðin svona sorgmædd. Hjartað
er að brenna og þegar hjartað brenn-
ur þá hrynur allt,“ segir Laufey
Helgadóttir, listfræðingur og leið-
sögumaður, um stórbrunann í Notre-
Dame kirkjunni í París. Eldur kvikn-
aði í þaki kirkjunnar síðdegis í gær og
var hún í ljósum logum alveg fram á
tíunda tímann í gærkvöldi.
Laufey hefur búið í Parísarborg í
meira en 40 ár og heimsótt kirkjuna
ótal sinnum. „Það eru allir afskaplega
sorgmæddir og fólk er bara grátandi.
Þetta er mjög átakanlegt,“ bætir hún
við.
Hún segir kirkjuna vera tákn Par-
ísarborgar á allt annan hátt en t.d
Eiffel-turninn sem er 19. aldar bygg-
ing enda hefur kirkjan staðið þarna
síðan á miðöldum og borgin byggðist í
kringum hana. „Ég bjó þarna rétt
hjá. Hún er á borgareyjunni sem er
eyjan á Signu, þar sem París byrjaði
að byggjast. Ég bjó í fimmta hverfi
fyrsta árið mitt í París sem er rétt
hjá. Svo bjó ég í 14 ár í Mýrinni, þann-
ig að ég hef búið mjög lengi nálægt
henni. En það er alveg sama þó mað-
ur búi ekki nálægt henni, þessi kirkja
er þannig að návist hennar er svo
gríðarlega sterk. Hún er miðpunkt-
urinn. Það var byrjað að byggja hana
árið 1163 og lokið við hana árið 1330,“
segir Laufey.
Hefur leitt Íslendinga
um kirkjuna
Laufey hefur leitt hundruð Íslend-
inga í ferðir um Notre-Dame kirkj-
una og eflaust eiga margir Íslending-
ar minningar úr þeim ferðum. „Það er
nú þannig að þegar maður sér bygg-
ingar oft þá þykir manni alltaf vænna
og vænna um þær og einnig minn-
isvarða. Ég hef líka farið með ófáa Ís-
lendinga í siglingu um Signu. Þá siglir
maður alltaf meðfram Notre-Dame.
Það er stórkostlegt þegar maður sigl-
ir á kvöldin meðfram Notre-Dame og
horfir á hana upplýsta. Ég held að
ekkert sé eins fallegt eða mér alla-
vega finnst mér ekkert eins fallegt.
Þá sér maður rósagluggana og svif-
stoðirnar sem halda útveggjunum
uppi. Maður er náttúrlega bara að
biðja núna, ég veit ekki til hvers því
maður er ekki trúaður, að þetta fari
ekki allt saman. Það er burðargrind
þaksins sem er að brenna en ég veit
ekki hvort steinninn stendur ennþá.
Ef eldurinn fer í bogana þá hrynur
kirkjan og þá fara gluggarnir og allt,“
sagði Laufey í gærkvöldi. Slökkviliðs-
mönnum tókst að bjarga stærstum
hluta burðarvirkis Notre-Dame frá
eyðileggingu seint í gærkvöld.
Vagga gotneska stílsins
Laufey segir kirkjuna ekki bara
mikilvæga fyrir Parísarbúa heldur
heiminn allan. Endurspeglast það í
því hvernig erlendir þjóðhöfðingar
hafa tjáð sig um brunann.
„Þegar maður heyrir hvað erlendir
þjóðhöfðingar eru að segja þá er nátt-
úrlega bara eins og einhver persóna
sé nýdáin. Það segir líka hvað hún er
mikilvæg fyrir heiminn, kaþólsku
trúna og bara sem bygging. Hún er á
heimsminjaskrá UNESCO og hefur
verið það lengi. Þetta er snemmgot-
nesk bygging. Vagga gotneska stíls-
ins er í Frakklandi. Maður getur
endalaust þulið upp staðreyndir um
mikilvægi hennar. Svo margir merki-
legir sögufrægir atburðir sem hafa
gerst í kirkjunni. Napóleon Bonep-
arte var krýndur þarna, Loðvík fjórt-
andi gifti sig þarna, Mitterrand var
jarðsunginn þarna,“ segir Laufey.
Hún segir að lokum íbúa vera í upp-
námi rétt eins og hún sjálf. „Maður
grætur, ég get sagt þér það, maður
fékk alveg kökk í hálsinn. Ég trúði
þessu ekki, ég hélt að þetta væri apr-
ílgabb. Þegar ég heyrði þetta í út-
varpinu fyrst gat ég ekki trúað þessu.
Svo sá ég náttúrlega þegar ég kveikti
á sjónvarpinu að þetta var satt. Von-
andi ná þeir að stöðva þetta og svo
byggja þeir upp aftur.“
Tap á við brunann í
Kaupmannahöfn árið 1728
Jónas Haraldsson, sem vinnur í ís-
lenska sendiráðinu í París, átti erfitt
með að finna orð til að lýsa mikilvægi
kirkjunnar þegar Morgunblaðið
hafði samband í gær. „Þetta er nátt-
úrlega alveg ótrúlegt satt best að
segja. Mann eiginlega skortir orð til
þess að lýsa þessu,“ sagði Jónas.
Spurður um mikilvægi kirkjunnar,
segir hann kirkjuna vera eitt af
kennileitum Parísar. „Þetta er bara
eins og ef Eiffel-turninn myndi falla.
Öll sagan, menningarverðmætin og
menningarfurinn. Ein fransk-íslensk
stelpa sagði við mig að þetta væri
eins og handritabruninn í Kaup-
mannahöfn,“ segir Jónas og vísar þar
til þess þegar fjöldi íslenskra hand-
rita glataðist í stórbruna í Kaup-
mannahöfn árið 1728.
Drottningin sem stendur keik
Kristín Jónsdóttir, betur þekkt
sem Parísardaman, sagðist vera í al-
gjöru sjokki þegar mbl.is hafði sam-
band við hana í gærkvöldi.
„Þetta er mjög átakanlegt. Ég veit
að þetta er ekki manneskja en ég er
eiginlega hissa á því hversu mikið
þetta fær á mig,“ sagði Kristín í gær-
kvöldi. „Þetta er drottningin sem
stendur þarna keik. Allur heimurinn
á hlutdeild í þessari byggingu. Ég vil
meina að fólk elski Notre-Dame,
bæði ungir og aldnir,“ segir Kristín
og minnist einnig á fjölmargar per-
sónur sem tengjast byggingunni
órjúfanlegum böndum eins og hringj-
arann í Notre-Dame og Esmeröldu.
Sjálf ber hún miklar og sterkar til-
finningar til byggingarinnar. „Ég fæ
alltaf einhvern sting þegar ég sé
Notre-Dame. Sama gamla Parísar-
stinginn. Þessi spennutilfinning fyrir
borginni að vera ástfangin,“ segir
hún.
„Hún er
hjarta
Parísar“
Íslendingar í París horfðu á eitt
helsta kennileiti borgarinnar brenna
Notre-Dame dómkirkjan í París
Heimild: Notredamedeparis.fr
Hæð turnanna
69 metrar
Breidd framhliðar
43,5 metrar
Hæð turnspíru
96 metrar
Hæð framhliðar
fyrir utan turna
45 metrar
Heildarflatarmál
5.500 m2
Hornsteinn kirkjunnar lagður
1163
Lýsing á
torginu
Hlið dómsins
Hlið meyjunnar
Hlið Sainte-Anne
Fjöldi stólpa
75
Norður-
turninn Suður-
turninn
Heildar-
lengd
128 m
Tréverkið
1.300 eikur
eða 21 hektari
skóglendis
1
1
2
2
3
3
Kór
Kirkjuskip
Þverkirkja
Milli 12 og 14 milljónir manna vitja dómkirkjunnar árlega
Forgarður
AFP
Í ljósum logum Turnspíra Notre-Dame kirkjunnar varð alelda og hrundi að
lokum ofan í kirkjuna. Um tíma var óttast að ekki yrði hægt að stöðva eldinn.
Eldur í Notre-Dame