Morgunblaðið - 16.04.2019, Blaðsíða 6
Vilja „góða blöndu“
„Ég tel ráðherra vera að vinna mjög
gott verk í þessum málum. Við vilj-
um hafa góða blöndu af ríkisrekstri
og sérfræðirekstri og á þeim nótum
hefur ráðherrann einnig talað,“ seg-
ir Willum Þór Þórsson, formaður
þingflokks Framsóknarflokks, og
vísar í máli sínu til heilbrigðis-
ráðherra, en í Morgunblaðinu sl.
daga hefur verið fjallað um lið-
skiptaaðgerðir og þá fjölmörgu sem
bíða á biðlistum eftir slíkri aðgerð.
Hanna Katrín Friðriksson, þing-
flokksformaður Viðreisnar, sagði sl.
mánudag að ríkisstjórnin væri í her-
ferð gegn sjálfstætt starfandi sér-
fræðingum og var þá m.a. vísað til
þess hve margir Íslendingar halda
utan í aðgerðir. Willum Þór segist
ekki kannast við slíka herferð. „Við
viljum auðvitað að fólk fái bót meina
sinna hér heima á Íslandi.“
Birgir Ármannsson, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokks, segir
enga almenna umræðu vera um
þetta mál í þingflokknum.
„Meðal þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins hefur þó auðvitað kraumað
einhver óánægja út af þessu, en það
er í sjálfu sér ekkert nýtt.“
Engin herferð gegn einkarekstri
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019
ÁTVR seldi áfengi og tóbak auk sölu
umbúða fyrir tæpa 35,3 milljarða kr.
í fyrra og nam hagnaður ársins um
1.111 milljónum króna. Það er
nokkru minni hagnaður en á árinu á
undan þegar hann var 1.367 millj-
ónir kr. Heildarveltan á síðasta ári
var rúmlega 45 milljarðar.
Ríkissjóður naut góðs af starfsem-
inni í auknum tekjum af áfengis- og
tóbaksgjöldum, arðgreiðslu og virð-
isaukaskatti. Alls fékk ríkið í sinn
hlut rúmlega 25,1 milljarð af brúttó-
sölu ÁTVR í fyrra. Þar af fékk ríkis-
sjóður einn milljarð kr. í arð.
Þessar upplýsingar koma fram í
nýútkominni ársskýrslu ÁTVR.
Eins og fram hefur komið seldust
tæpar 22 milljónir lítra af áfengi í
Vínbúðunum í fyrra sem er örlítil
aukning frá 2017. En aðsóknin hefur
sjaldan eða aldrei verið meiri; við-
skiptavinirnir voru rúmlega fimm
milljónir talsins yfir árið. ÁTVR rek-
ur 51 áfengisverslun auk vefversl-
unar og þar var í nógu að snúast.
,,Þegar mest var að gera komu 611
viðskiptavinir í Vínbúðina Skeifunni
á einum klukkutíma. Það gerir um
10 viðskiptavini á mínútu. Í versl-
uninni eru fimm afgreiðslukassar og
þennan klukkutíma tók það að með-
altali þrjátíu sekúndur að afgreiða
hvern viðskiptavin á kassa. Það þýð-
ir að á sex sekúndna fresti er einn
viðskiptavinur afgreiddur í gegnum
búðina. Líklega er þetta einn mesti
afgreiðsluhraði sem þekkist í smá-
sölurekstri. Ljóst er að allt þarf að
ganga upp til þess að þetta sé hægt.
Starfsfólkið, afgreiðslukerfin, bíla-
stæði og umferðarflæði. Þrátt fyrir
lengdan afgreiðslutíma á undan-
förnum árum kjósa margir að gera
áfengisinnkaup sín milli klukkan
fimm og sjö á föstudögum,“ segir Ív-
ar J. Arndal, forstjóri ÁTVR, í árs-
skýrslunni.
Framleiddu 45 tonn neftóbaks
Sala á sterku áfengi tók stökk í
fyrra og jókst um 20% milli ára en
sala á léttvíni dróst saman um 3,3%.
Sala á bjór jókst lítillega milli ára. Á
sama tíma og sala á vindlum og síg-
arettum dróst mikið saman jókst
sala neftóbaks um 18,7% í fyrra. Þá
voru framleidd 45 tonn af neftóbaki
og hefur framleiðslan margfaldast á
síðustu árum.
Heildarfjöldi starfsmanna sem
fengu greidd laun á árinu var 700 en
239 voru fastráðnir. Fyrirtækið var
valið fyrirmyndarstofnun af SFR í
fyrra og vakin er athygli á því í árs-
skýrslunni að Vínbúðin státi af
ánægðustu viðskiptavinunum í flokki
fyrirtækja á smásölumarkaði í Ís-
lensku ánægjuvoginni. Áhersla er
lögð á fjölbreyttara vöruúrval og
voru 636 nýjar vörur teknar í
reynslusölu í fyrra.
29 þús. á venjulegum föstudegi
Yfir helmingur viðskiptavina
ÁTVR kemur í Vínbúðirnar á föstu-
dögum og laugardögum. ,,Föstudag-
ar eru stærstir en að jafnaði koma
um 29 þúsund viðskiptavinir á hefð-
bundnum föstudegi,“ segir í árs-
skýrslunni.
Í fyrra heimsóttu flestir viðskipta-
vinir Vínbúðirnar miðvikudaginn 28.
mars, þ.e. daginn fyrir skírdag, eða
tæplega 41 þúsund. Tekið er fram að
í fyrra bar 23. og 30. desember upp á
sunnudag og þá var lokað í Vínbúð-
unum. ,,Þessir dagar hafa að jafnaði
verið annasömustu dagar ársins.
Álagið dreifðist því nokkuð á nær-
liggjandi daga, en þó stendur upp úr
að 31. desember komu tæplega 30
þúsund viðskiptavinir og miðað við
afgreiðslutíma er sá dagur stærsti
dagur ársins. Alls fengu um 5.000
þúsund viðskiptavinir þjónustu á
hverri klukkustund þann dag.“
25,1 milljarður kom í hlut
ríkisins af sölu hjá ÁTVR
Þegar mest var að gera komu 611 viðskiptavinir í vínbúð á einum klukkutíma
Áfengissala í Vínbúðunum
40
35
30
25
20
15
10
5
0
25
24
23
22
21
20
19
18
17
16
15 miðvikudagur
28. mars
föstudagur
3. ágúst
laugardagur
22. desember
laugardagur
29. desember
mánudagur
31. desember2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Heildarsala áfengis 2011-2018
Milljónir lítra
Annasömustu dagar í Vínbúðunum 2018
Þúsundir viðskiptavina
40,7
þús.
síðasti
virki
dagur
fyrir
páska
37,6
þús.
föstudag-
ur fyrir
verslun-
armanna-
helgi
35,0
þús.
síðasti af-
greiðslu-
dagur
fyrir jól
30,3
þús.
næstsíð-
asti af-
greiðslu-
dagur
fyrir ára-
mót
29,9
þús.
síðasti af-
greiðslu-
dagur
fyrir ára-
mót
Hefðbundinn föstu-
dagur árið 2018:
29 þús. viðskiptavinir
22
milljón
lítrar
18,4 milljón
lítrar
Morgunblaðið/Heiddi
Vínbúð 4.000 vörur og 22 milljónir lítra fóru í dreifingu ÁTVR í fyrra.
Sundurliðun á heildarsölu vínteg-
unda í Vínbúðum ÁTVR leiðir m.a. í
ljós að ítalskt rauðvín seldist mest í
lítrum talið í fyrra, líkt og undan-
farin ár, en rauðvín frá Spáni er í
öðru sæti. Ítalskt vín hefur haldið
forystunni frá 2013 en rauðvín frá
Síle hafði þá um árabil verið sölu-
hæst.
Þó að innlendur bjór seljist í mun
meira magni en innfluttur þá lét
hann aðeins undan í fyrra. Í seldum
lítrum talið var hlutdeild innlenda
bjórsins 65% en innflutta 35%.
Gylltur Víking seldist í mesta
magninu af lagerbjórum eða um
tvöfalt meira en næstvinsælasti
bjórinn, Faxe Premium frá Dan-
mörku. Sala á öli og öðrum bjórteg-
undum sýnir að Einstök White ale
seldist langmest í lítrum talið í
fyrra.
Morgunblaðið/Arnaldur
Vín Sala á léttvíni dróst saman um 3,3% í
fyrra frá 2017 en var svipuð og 2016.
Ítalskt rauðvín í
toppsætinu frá 2013
Starfsfólk Vínbúðanna er þjálfað í
að spyrja um aldur viðskiptavina og
við skilríkjaeftirlitið eru einnig
framkvæmdar svokallaðar huldu-
heimsóknir. Þær fara þannig fram
að 20 til 24 ára viðskiptavinir versla
í Vínbúðunum og skila síðan niður-
stöðum um hvort þeir voru spurðir
um skilríki eða ekki.
Í ársskýrslu ÁTVR um árangur-
inn í fyrra segir að hulduheimsókn-
ir séu framkvæmdar í öllum stærri
Vínbúðum, þ.e. á höfuðborgarsvæð-
inu, Selfossi, í Reykjanesbæ og á
Akureyri.
,,Að meðaltali eru þrjár heim-
sóknir í mánuði í hverja Vínbúð.
Árangurinn var góður, betri en
undanfarin ár, eða 87% og rétt und-
ir markmiði ársins sem var 88%.“
Hulduheimsóknir
skiluðu árangri
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
Eldur kom upp í fiskibátnum Æsi
síðdegis í gær. Þrír voru um borð í
bátnum þegar eldurinn kom upp,
en hann var þá staddur vestur af
Flatey á Breiðafirði. TF-LIF,
þyrla Landhelgisgæslunnar, var
þegar kölluð út og flugvél Gæsl-
unnar, TF-SIF, sömuleiðis. Einnig
var leitað liðsinnis varðskipsins
Týs og björgunarsveita Lands-
bjargar á Snæfellsnesi, að því er
fram kom í tilkynningu frá Land-
helgisgæslunni.
Þegar flugvélin kom að bátnum
klukkan 18:09 voru mennirnir
þrír komnir í flotgalla og voru
þeir óhultir. Enginn reykur var
þá sjáanlegur í bátnum, en hiti
engu að síður greinanlegur með
hitamyndavél flugvélarinnar.
Áhöfnin á Hafey tók Æsi í tog á
áttunda tímanum í gærkvöld og
hugðist draga hann til Brjáns-
lækjar.
Björgunarskipinu Björgu frá
Rifi, varðskipinu Tý, flugvél
Landhelgisgæslunnar og þyrlunni
Líf var hins vegar snúið við.
Eldur um borð í báti
Þrír um borð í Æsi en engan sakaði