Morgunblaðið - 16.04.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019
Skrítnustu upplýsingar síðustuvikna um orkupakkamálið
voru þær, að spjall íslenskra yfir-
valda við einn af kommissörum
ESB hefði einungis verið innantómt
hjal, að vísu uppáskrifað.
Í því spjalli varð enginn vendi-punktur, eins og gefið var til
kynna.
Fundargerð staðfesti að þettavar spjall um ekki neitt og
hlaut því að taka tíma. Ekki minnst
á fyrirvara sem ráðherrar sögðu
þjóðinni að breyttu málinu.
Nú er látið í veðri vaka að fyrir-vararnir verði síðar dregnir
upp úr hatti og breyti þá málinu.
Þessir skrítnu vitnisburðir umvonda samvisku hafa síðar ver-
ið kallaðir „lofsverðar blekkingar“.
Það hafi verið lofsvert framtakað blekkja þingflokk Sjálf-
stæðisflokksins með endaleysu og
hetjudáð og bíræfni að fá hann til
að gleypa svo ólystugt agn.
Kenningasmiðurinn sá réð þóekki við að kalla það lofsvert
af öflugasta þingflokki landsins að
láta fara svona með sig.
Þingflokkurinn stendur óneitan-lega laskaður eftir. Deilan
snýst þó eingöngu um það hvort
málið sé stórhættulegt fyrir Ísland
eða bara vita gagnslaust fyrir Ís-
land!
Og samt deila þeir
STAKSTEINAR
Embætti héraðssaksóknara vinnur
nú að því að reyna að fá sem
gleggsta mynd af því sem gerðist
aðfaranótt þriðjudags í síðustu viku,
er kona á þrítugsaldri lést skömmu
eftir að lögregla hafði afskipti af
henni.
Ólafur Þór Hauksson héraðssak-
sóknari sagði í samtali við mbl.is í
gær að embættið skoðaði nú allt
sem gæti varpað ljósi á atburði um-
rætt kvöld. Hann gat ekkert gefið
nánar upp um framgang rannsókn-
arinnar, né áætlað hversu langan
tíma hún mundi taka.
Saksóknaraembættið rannsakar
málið á grundvelli 35. gr. lögreglu-
laga, en þar segir að héraðssak-
sóknara beri að
rannsaka kæru á
hendur starfs-
manni lögreglu
fyrir ætlað refsi-
vert brot við
framkvæmd
starfa hans og
einnig atvik sem
eftirlitsnefnd telji
þörf á að taka til
rannsóknar þeg-
ar maður lætur
lífið, hann verður fyrir stórfelldu
líkamstjóni eða lífi manns er hætta
búin, í tengslum við störf lögreglu,
óháð því hvort grunur er um refsi-
vert brot.
Reyna að fá glögga
mynd af atburðum
Ólafur Þór
Hauksson
Umhverfisráðherra hyggst ekki
leggja fram frumvarp um breytingar
á náttúruverndarlögum á vorþinginu.
Þetta staðfestir Sigríður Víðis Jóns-
dóttir, aðstoðarmaður ráðherra.
Frumvarpsdrög, sem lúta að al-
mannarétti, útivist og umgengni og
þeim kafla gildandi laga sem fjallar
um innflutning og dreifingu á lifandi
framandi lífverum, voru kynnt á sam-
ráðsgátt stjórnvalda í febrúar og
mars. Fjöldi umsagna barst, einkum
um almannaréttarþáttinn. „Ráðu-
neytið telur mikilvægt að vinna vel úr
þeim ábendingum og athugasemdum
sem því bárust. Ráðherra hyggst
leggja frumvarpið fram á næsta lög-
gjafarþingi,“ segir Sigríður Víðis.
Í frumvarpsdrögunum voru lagðar
til tilteknar breytingar á lögunum í
því skyni að styrkja almannarétt ein-
staklinga sem ferðast um óræktuð
eignarlönd í byggð.
Lagt er til að ekki verði heimilt að
meina einstaklingum að fara um slík
svæði nema nauðsynlegt sé að tak-
marka umferð vegna nýtingar eða
verndunar svæðisins. Jafnframt er
lagt til að ekki verði heimilt að tak-
marka umferð um slík svæði með
gjaldtöku fyrir aðgang. Aftur á móti
eiga landeigendur að hafa meiri rétt
en áður til að ákveða hvort land
þeirra í byggð sé nýtt undir endur-
teknar skipulegar hópferðir í at-
vinnuskyni. gudmundur@mbl.is
Náttúruverndarfrumvarp á haustþingi
Lýtur einkum að almannarétti Fjöldi umsagna barst Úrvinnslan eftir
Morgunblaðið/Ómar
Ferðir Styrkja á almannaréttinn.
LISTHÚSINU
Opið virka daga kl. 11-18, lokað á laugardögum í sumarListhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
Síðustu dagar útsölunnar
á vínylmottunum
40% afsláttur
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Kosningu er lokið í sex aðildar-
félögum Landssambands ís-
lenskra verslunarmanna um ný-
gerðan kjarasamning við Samtök
atvinnulífsins og Félag atvinnu-
rekenda, svokallaðan lífs-
kjarasamning. Á kjörskrá um
samning VR og SA voru 34.070
og greiddu 7.104 atkvæði, eða
20,85%.
„Þetta er mjög ásættanleg
niðurstaða. Það er stígandi í þátt-
töku innan félagsins,“ sagði
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, í samtali við mbl.is.
Kosingaþátttaka hjá Framsýn
stéttarfélagi var 10,58% en hjá
Verkalýðsfélagi Þórshafnar var
hún 60%. Hjá Stéttarfélaginu
Samstöðu var þátttakan 18,31%
en hjá Verslunarmannafélagi
Skagfirðinga var hún 16,67%.
Síðustu kosningum innan LÍV
lýkur 23. apríl næstkomandi.
Niðurstöður kosninganna verða
kynntar 24. apríl.
Kjörsókn 20,85% hjá félögum í VR