Morgunblaðið - 16.04.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
VOR
2019
Hæstiréttur Íslands hefur tekið til
greina beiðni þrotabús Saga Capital
hf. um leyfi Hæstaréttar til að kæra
úrskurð Landsréttar frá 5. mars sl. í
máli nr. 66/2019: Þrotabú Saga Capi-
tal hf. gegn Hildu ehf., á grundvelli 2.
mgr. 179. gr. laga nr. 21/1991 um
gjaldþrotaskipti og fl. Var kæruleyf-
ið samþykkt í Hæstarétti Íslands sl.
fimmtudag.
Með úrskurði Landsréttar var
staðfestur úrskurður héraðsdóms
um ógildingu ákvörðunar kröfuhafa-
fundar við slitameðferð Saga Capital
hf. um að greiða slitastjórn
40.000.000 krónur í þóknun. Sú nið-
urstaða er byggð á því að fyrir þenn-
an fund hafi slitastjórnin haft þann
hátt á að tiltaka í lok hvers kröfu-
hafafundar að boðað yrði til þess
næsta með tölvubréfum og hafi því
ekki, þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 79.
gr. laga nr. 21/1991, verið nægilegt
að boða til þessa fundar eingöngu
með auglýsingu í Lögbirtingablaði.
Fyrri afgreiðsla sögð röng
„Leyfisbeiðandi byggir á því að
úrskurður Landsréttar sé bersýni-
lega rangur og myndi dómur Hæsta-
réttar í málinu hafa fordæmisgildi
um skýringu reglna 3. mgr. 79. gr.
laga nr. 21/1991 um boðun skipta-
funda. Leyfisbeiðandi vísar einnig til
þess að gagnaðili hafi ekki átt kröfu
á hendur sér þegar ákvörðunin sem
hann vill fá hnekkt var tekin og telur
að niðurstaða héraðsdóms, sem
Landsréttur lét standa óraskaða, um
áhrif kröfuframsals valdi verulegri
réttaróvissu. Hafi málið þannig víð-
tæk áhrif varðandi framkvæmd
gjaldþrotaskipta og sé því mikilvægt
að fá úrlausn Hæstaréttar um kæru-
efnið,“ segir Hæstiréttur.
Saga Capital
í Hæstarétt
Þrotabú kærir úrskurð Landsréttar
Morgunblaðið/Golli
Dómur Hæstiréttur Íslands mun
fjalla um slitameðferð Saga Capital.
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
„Þegar ég skrifaði þetta bréf leit út
fyrir að hún fengi enga kennslu og
yrði hvergi í skóla, staðan var rosa-
lega óljós. Um leið og bréfið birtist
heyrði ég frá borginni,“ segir
Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmda-
stjóri Bíós Paradísar, í samtali við
mbl.is.
Hrönn skrifaði Svandísi Svavars-
dóttur heilbrigðisráðherra opið
bréf sem birtist í Fréttablaðinu á
föstudag þar sem hún lýsir veik-
indum ellefu ára dóttur sinnar, sem
er með einhverfugreiningu, og
glímu fjölskyldunnar við að fá þá
þjónustu og aðstoð sem hún þarfn-
ast en stúlkan gengur ekki lengur í
skóla.
Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla-
og frístundasviðs, og Heiða Björg
Hilmisdóttir, formaður velferðar-
ráðs Reykjavíkurborgar, settu sig í
samband við Hrönn og fjölskyldu á
föstudag. „Þeim fannst þetta ótækt
og að það gæti ekki staðist lög að
barn væri látið bíða heima svo að
þau fóru á fullt að finna úrræði,“
segir Hrönn.
Borgaryfirvöld ræddu við skóla-
stjórnendur í Vesturbæjarskóla,
þar sem dóttir Hrannar hefur
stundað nám, og farteymi borgar-
innar, sem sjá um úrræði fyrir nem-
endur með alvarlegan fjölþættan
vanda í grunnskólum. Niðurstaðan
varð sú að veita stúlkunni skólavist
í Hamraskóla frá og með 6. maí. Í
skólanum er starfrækt sérdeild fyr-
ir einhverfa sem ætluð er börnum
með einhverfugreiningu.
Hrönn segir það vissan létti að
lausn sé í sjónmáli, það eigi hins
vegar eftir að skýrast betur hvað
felist í skólavistinni og hvort hún
henti dóttur Hrannar. „Auðvitað er
það léttir að hugsa með sér: Ókei,
þá erum við ekki utanveltu utan
skóla til sumarfrís. Mér finnst
skipta svo miklu máli að hún sé í
daglegu starfi.“
Dóttir Hrannar er einnig á bið-
lista í Brúarskóla, sérskóla sem er
rekinn af borginni fyrir nemendur í
5.-10. bekk sem eiga við alvarlegan
geðrænan og tilfinningalegan
vanda að etja. „En mér er sagt að
það sé langsótt og muni ekki gerast
á næstunni.“
Frá því að Hrönn birti bréfið hef-
ur hún fengið mikil viðbrögð frá
foreldrum sem eru í svipaðri stöðu.
„Það er fullt af fólki sem hefur
neyðst til að vera með börnin sín ut-
an skóla því þau passa hvergi inn,“
segir hún.
Lengri útgáfa af viðtalinu við
Hrönn er á mbl.is.
Morgunblaðið/Eggert
Gleðifréttir Dóttir Hrannar Sveinsdóttur fær skólavist frá 6. maí.
Dóttirin fær skóla-
vist í Hamraskóla
„Léttir að lausn sé í sjónmáli“
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Kærunefnd útboðsmála hefur hafn-
að kröfu Andrúms arkitekta ehf.
um að felld verði úr gildi ákvörðun
forsætisráðuneytisins og Fram-
kvæmdasýslu ríkisins um að veita
arkitektastofunni Kurt og Pí ehf.
fyrstu verðlaun í samkeppni um við-
byggingu við Stjórnarráðshúsið og
um greiðslu skaðabóta vegna máls-
ins. Þetta kemur fram í úrskurði
sem birtur hefur verið á vef nefnd-
arinnar.
Kærunefndin ákvað í lok janúar
að stöðva samningsgerð við Kurt og
Pí ehf. þar sem verulegar líkur
væru á því að framkvæmd hönn-
unarsamkeppninnar og val tillögu
hefði verið ólögmæt. Í úrskurði
nefndarinnar segir að þótt hún telji
enn sem fyrr að annmarkar hafi
verið á framkvæmd samkeppninnar
af hálfu dómnefndar hafi athugun
málsins ekki leitt í ljós að vinnu-
brögð dómnefndarinnar hafi í reynd
leitt til þess að þátttakendur hafi
skilið forsendur hönnunarsam-
keppninnar með svo ólíkum hætti
að jafnræði þeirra hafi verið raskað
og brotið hafi verið gegn reglum um
tilhögun hönnunarsamkeppni.
Öll starfsemi undir sama þaki
Samkvæmt frumathugun sem
Framkvæmdasýsla ríkisins gerði
árið 2017 má ætla að kostnaður við
byggingu 1.200 fermetra húss við
Stjórnarráðshúsið geti numið allt að
milljarði króna. Það á þó eftir að
skýrast frekar. Í fyrra var gert ráð
fyrir því að útboðsgögn vegna
verksins yrðu tilbúin á vormánuð-
um 2020 og að vígsla byggingarinn-
ar gæti orðið um áramótin 2021/22.
Viðbyggingin verður um 1.200
fermetrar og á að hýsa flestar skrif-
stofur forsætisráðuneytisins, funda-
rými og aðstöðu fjölmiðla. Í
tengslum við verkið er gert ráð fyr-
ir því að endurskoðað verði innra
skipulag Stjórnarráðshússins og
húsið tengt við viðbygginguna. Auk
starfsemi í Stjórnarráðshúsinu hef-
ur forsætisráðuneytið leigt húsnæði
við Hverfisgötu, samtals tæplega
1.200 fermetra. Námu leigu-
greiðslur ráðuneytisins árið 2017
um 2,6 milljónum króna á mánuði.
Þá var í byrjun þessa árs tekið á
leigu tímabundið viðbótarskrifstofu-
húsnæði í miðbænum vegna flutn-
ings jafnréttismála til forsætisráðu-
neytisins.
Fornleifarannsókn
Fyrirhuguð er fornleifarannsókn
á byggingarsvæðinu áður en fram-
kvæmdir hefjast. Á lóðinni eru 23
skráðar fornleifar. Þar sem bíla-
stæði er nú við Stjórnarráðshúsið
stóðu byggingar frá því um alda-
mótin 1800 til ársins 1976. Fyrir
vestan og norðan húsið eru ekki
þekktar byggingar en þar voru
grjóthlaðnir göngustígar og grjót-
garðar, líklega til að varna því að
Lækurinn flæddi inn á lóðina. Þar
voru auk þess stórir kál- og skraut-
garðar í gegnum tíðina. Agnes Stef-
ánsdóttir hjá Minjastofnun sagði í
gær að enn hefði engin umsókn um
rannsókn á lóðinni borist stofnun-
inni og því óljóst hvenær hún fer
fram.
gudmundur@mbl.is
Kröfu um ógildingu
vinningstillögu hafnað
Viðbygging við Stjórnarráðshúsið tilbúin 2021 eða 2022
Stjórnarráðshús Vinningstillaga um viðbyggingu við gamla húsið sem tek-
ið var í notkun 1770. Kanna á fornleifar á lóðinni áður en lengra er haldið.
Viðbygging
» Ríkisstjórnin ákvað að láta
reisa viðbyggingu við gamla
Stjórnarráðshúsið.
» Þar verða skrifstofur og
fundarými. Húsið verður tengt
gömlu byggingunni.
» Kurt og Pí ehf. hlaut fyrstu
verðlaun í samkeppni um
hönnun viðbyggingarinnar.