Morgunblaðið - 16.04.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019
FALLEG OG VÖNDUÐ
LEIKFÖNG
úr náttúrulegum efnivið,
tré og silki
ERUM FLUTT
!
á Nýbýlaveg
8
– Portið
Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Your Shoes strigaskór
Margar gerðir
Leður
Leðurstrigaskór
Verð 12.995
Stærðir 36-42
emmessis.is
páskunum
Í YFIRRÉTTI (E. HIGH COURT OF JUSTICE)
CR-2018-007944
FYRIRTÆKJA- OG EIGNADÓMSTÓLAR
(E. BUSINESS AND PROPERTY COURTS)
ENGLANDS OGWALES
FYRIRTÆKJADÓMSTÓLL (E. COMPANIES COURT)
VARÐANDI
MARKEL INTERNATIONAL INSURANCE COMPANY
LIMITED
og
VARÐANDI
MARKEL INSURANCE SOCIETAS EUROPAEA
og
VARÐANDI VII. HLUTA BRESKRA LAGA FRÁ ÁRINU 2000
UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU OG -MARKAÐI
(E. FINANCIAL SERVICES AND MARKETS ACT 2000)
HÉR MEÐ TILKYNNIST að Markel International Insurance
Company Limited (framseljandi) og Markel Insurance Societas
Europaea (framsalshafi) lögðu fram beiðni til fyrirtækja- og
eignadómstóla Englands of Wales, fyrirtækjadómstólnum í
London (e. Business and Property Courts of England and
Wales, Companies Court), (umsóknin) skv. VII. kafla laga um
fjármálaþjónustu og -markaði frá árinu 2000 (e. Financial
Services and Markets Act 2000) (FSMA), um úrskurði:
(1) samkvæmt 111. gr. laganna, sem heimilar áætlun
(áætlunin) um framsal til framsalshafa á:
(a) öllum vátryggingum (að undanskildum endur-
tryggingum) sem hafa verið veittar og/eða yfirteknar
af eða fyrir hönd framseljanda gegnum útibú hans í
Þýskalandi, Hollandi og á Spáni,
(b) tilteknum almennum vátryggingum (að undan-
skildum endurtryggingum) sem hafa verið veittar
og/eða yfirteknar af eða fyrir hönd framseljanda
gegnum útbú hans á Írlandi, aðeins að því marki sem
slíkar vátryggingar varða í heild eða að hluta áhættu
sem er staðsett innan Evrópska efnahagssvæðisins
(EES-ríki) (öðru en Bretlandi), og
(c) tilteknum almennum vátryggingum (að undan-
skildum endurtryggingum) sem hafa verið veittar
og/eða yfirteknar af eða fyrir hönd framseljanda á
grundvelli þjónustufrelsis eða með öðrum hætti
gegnum höfuðstöðvar hans í Bretlandi, aðeins að því
marki sem slíkar vátryggingar varða í heild eða að
hluta áhættu sem er staðsett í EES-ríki (öðru en
Bretlandi),
((a), (b) og (c), sem saman mynda framsalið), og
(2) sem mæla fyrir um viðbótarákvæði í tengslum við
áætlunina skv. 112. gr. og 112. gr. A í lögunum.
Umsóknin fór fyrir hr. Snowden, dómara, hinn 28. mars 2019,
sem kvað upp úrskurði til staðfestingar á áætluninni, með
viðbótarákvæðum í tengslum við áætlunina. Samkvæmt
úrskurði hr. Snowden dómara tók áætlunin gildi kl. 00:01
GMT hinn 29. mars 2019.
Auk hvers kyns réttar til ógildingar sem kveðið er á um í
skilmálum vátrygginga sem falla undir framsalið kunna lög í
viðkomandi EES-ríki að veita þér rétt til að ógilda vátryggingu
þína á grundvelli áætlunarinnar, ef vátryggingin heyrir undir
framsalið með beinum hætti og áhættan sem hún varðar er
staðsett í öðru EES-ríki en Bretlandi. Eigir þú slíkan rétt verður
þú að nýta hann innan 30 daga frá dagsetningu þessarar
tilkynningar eða (sé munur þar á) innan þess tímafrests sem
lög viðkomandi EES-ríkis kveða á um.
16. apríl 2019
Norton Rose Fulbright LLP
3 More London Riverside, London SE1 2AQ, Bretland
Lögmenn framsalshafa
Ekkert bólar á tillögum frá starfs-
hópi sem umhverfisráðherra skip-
aði í lok desember um það hvort og
þá með hvaða hætti takmarka ætti
notkun flugelda og hvernig hægt
væri að tryggja að slík takmörkun
hefði sem minnst neikvæð áhrif á
fjármögnun þeirra verkefna sem
björgunarsveitir, aðalsöluaðilar
flugelda, inna af hendi í þágu al-
mennings. Sigríður Víðis Jóns-
dóttir, aðstoðarmaður ráðherra,
sagði í gær að vinna starfshópsins
hefði dregist vegna anna. Í lok
mars sagði hún að von væri á tillög-
unum fljótlega.
Átti að skila 15. febrúar
Starfshópnum var ætlað að skila
tillögum sínum fyrir 15. febrúar sl.
en vegna dráttarins verða engar
breytingar á flugeldasölu fyrir
næstu áramót og væntanlega
óbreytt ástand hvað varðar loft-
mengun frá flugeldum. Í reglugerð
um skotelda segir að halda skuli
fund með innflytjendum skotelda
fyrir lok febrúar ár hvert um
mögulegar breytingar á sölu. Þar
sem það hefur ekki verið gert verð-
ur fyrirkomulagið óbreytt í ár.
Í starfshópnum eru Sigurbjörg
Sæmundsdóttir, deildarstjóri í um-
hverfisráðuneytinu, sem er formað-
ur, Jón Gunnarsson alþingismaður
og Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir.
Svifryksmengun frá flugeldum
var mjög mikil um áramótin 2017-
2018 og loftgæði um tíma langt yfir
heilsuverndarmörkum, en minni
um síðustu áramót.
gudmundur@mbl.is
Segir annir tefja flugeldatillögur
Morgunblaðið/Hari
Flugeldar Af þeim stafar mikil svif-
ryksmengun og slysahætta.
UNICEF á Íslandi selur nú páska-
egg sem fyllt eru með hjálpar-
gögnum fyrir börn í neyð. Eggin eru
hluti af Sönnum gjöfum, sem eru
gjafir seldar á vefsíðu UNICEF, og í
fréttatilkynningu er haft eftir Stein-
unni Jakobsdóttur, kynningarstjóra
UNICEF á Íslandi, að eggin hafi
fengið afar góðar viðtökur. „Það er
virkilega gaman að sjá hvað margir
hafa kosið að kaupa eggin okkar,
ýmist sem gjöf eða handa sjálfum
sér sem viðbót við gamla góða
súkkulaðieggið, enda engin nauðsyn
að velja bara annað hvort,“ er haft
eftir Steinunni.
Í boði eru þrjú mismunandi
páskaegg. Neyðareggið breytir
óhreinu vatni í drykkjarvatn, en það
inniheldur 3.500 vatnshreinsitöflur
sem hreinsa samtals 17.500 lítra af
vatni. Töflurnar verða sendar á
svæði þar sem hreint vatn er af
skornum skammti.
Hjálpareggið læknar vannæringu,
það er fyllt með vítamínbættu jarð-
hnetumauki sem inniheldur öll nær-
ingarefni og vítamín sem vannærð
börn þurfa.
Þriðja eggið kallast einfaldlega
Páskaeggið og það inniheldur 1.500
vatnshreinsitöflur, 15 skammta af
jarðhnetumauki, 4 lítra af næringar-
mjólk og 50 skammta af næringar-
dufti.
Páskaegg full af hjálpargögnum
Ljósmynd/UNICEF
Hjálpareggið Í því er vítamínbætt
jarðhnetumauk ætlað börnum.
Karlmaður var
sýknaður af
ákæru um heim-
ilisofbeldi í Hér-
aðsdómi Reykja-
ness á miðviku-
daginn í síðustu
viku. Eiginkona
hans kom fyrir
dóminn og naut
aðstoðar túlks
við að lýsa því yf-
ir að hún hefði
ekki greint rétt frá atvikum máls-
ins fram að þessu og hefði hug á því
að draga kæru sína í málinu til
baka.
Henni var þá tjáð að það væri
ekki hægt, en þá sagðist hún ekki
vilja ræða málið frekar, þetta hefði
verið erfiður tími fyrir hana og eig-
inmann hennar, þau hefðu bæði
gert mistök sem þau hefðu lært af.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa, 7. janúar 2017, misþyrmt kon-
unni á margvíslegan hátt. Konan
kærði eiginmann sinn eftir atvikið
og var maðurinn handtekinn.
Hún fór síðar fram á nálgunar-
bann gagnvart manninum, sem var
í gildi auk þess sem hann sætti
brottvísun af heimili þeirra í sjö
mánuði eftir atvikið. Þau búa þó
saman í dag.
Mat dómara var að þar sem kon-
an hefði breytt framburði sínum og
engir sjónarvottar væru að verkn-
aðinum þætti sekt mannsins ekki
nægilega sönnuð.
Sýknaður af ákæru
um heimilisofbeldi
Héraðsdómur
Maðurinn var
sýknaður.