Morgunblaðið - 16.04.2019, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019
Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna,
verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið.
Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent
12in Wall fan Hi-line Sabre Plate
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Hreint loft og vellíðan
Það borgar sig að nota það besta
VENT–AXIA VIFTUR
AFP
Súdan Mótmælendur flykktust að höfuðstöðvum hersins í höfuðborginni
Khartoum og komu í veg fyrir að setuverkfall þar yrði leyst upp.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Skipuleggjendur fjöldamótmælanna
í Súdan kröfðust þess í gær að her-
foringjaráðið, sem steypti Omar al-
Bashir af stóli í síðustu viku, segði
af sér og að í stað þess kæmi borg-
aralegt ráð, þar sem fulltrúar hers-
ins sætu við borðið. Þá var þess
einnig krafist að ríkissaksóknari og
aðrir yfirmenn dómsmála í landinu
færu frá, þar sem þeir hefðu verið
skipaðir af Bashir.
Herinn reyndi í gær að dreifa
mótmælendum sem hafa tekið sér
stöðu við höfuðstöðvar hans í höf-
uðborginni Khartoum undanfarna
tíu daga. Hvöttu skipuleggjendur
mótmælanna fólk til þess að fjöl-
menna að bækistöðvum hersins og
„verja byltinguna“ en herforingja-
ráðið hefur lagst gegn því að of-
beldi verði beitt gegn mótmælend-
um.
Irfan Siddiq, sendiherra Bret-
lands í Súdan, fundaði jafnframt
með Mohammad Hamdan Daglo,
sem er hægri hönd Abdel Fattah
al-Burhan, leiðtoga herforingjaráðs-
ins. Sagði Siddiq að helsta ósk rík-
isstjórnar sinnar væri að engin til-
raun yrði gerð til að leysa
setuverkfall mótmælenda við her-
búðirnar með ofbeldi.
Þá sögðust Bretar styðja kröfur
um að mynduð yrði borgaraleg
stjórn sem fyrst, en það var í sam-
ræmi við yfirlýsingu sem sendiráð
Breta, Bandaríkjamanna og Norð-
manna sendu frá sér á sunnudag-
inn, þar sem hvatt var til viðræðna
um að koma á borgaralegri stjórn
að nýju.
„Frelsi, réttlæti og lýðræði“
Herforingjaráðið fundaði með
fulltrúum helstu stjórnmálaflokka
landsins á sunnudaginn, degi eftir
að Burhan sór embættiseið sem nýr
leiðtogi ráðsins. Þar lofaði hann því
að markmið sitt væri að móta stofn-
anir ríkisins upp á nýtt og „upp-
ræta“ stjórn og stefnumál Bashirs.
Undirhershöfðinginn Yasser al-
Ata sagði á fundinum á sunnudag
að markmið herforingjaráðsins
væri að búa til „borgaralegt ríki
sem byggir á frelsi, réttlæti og lýð-
ræði“. Óskuðu herforingjarnir eftir
því að stjórnmálaflokkarnir myndu
koma sér saman um „óháðan ein-
stakling“ til þess að gegna starfi
forsætisráðherra landsins í bráða-
birgðastjórn.
Framsal Bashirs talið ólíklegt
Verkalýðssamtökin SPA, sem
hafa haft sig einna mest í frammi í
mótmælunum, hafa krafist þess að
Bashir og helstu embættismenn í
leynilögreglu hans verði dregnir
fyrir dómstóla til að standa skil á
brotum sínum.
Heimildarmenn AFP-fréttastof-
unnar greindu hins vegar frá því að
þó að nær öruggt væri að réttað
yrði yfir Bashir í Súdan, yrði hann
ekki framseldur til Alþjóðastríðs-
glæpadómstólsins fyrir meint brot í
Darfur-héraði, þar sem nokkrir
innan herforingjaráðsins væru of
nátengdir herferð stjórnarinnar
þar.
Vilja að herforingjaráðið víki
Ýtt á herinn að fela borgaralegum öflum völdin í Súdan Tilraun til þess að dreifa mótmælendum
rann út í sandinn Herforingjarnir vilja að stjórnmálaflokkarnir komi sér saman um forsætisráðherra
Örplastmengun
mælist á fjöllum
Afskekkt fjallasvæði, sem talið var
laust við plastmengun, er í raun þak-
ið örplastögnum sem hafa borist
þangað með vindum. Er mengunin
svipuð og í stórborgum á borð við
París, að sögn vísindamanna.
Í grein, sem birtist í gær í vísinda-
tímaritinu Nature Geoscience, kem-
ur fram að á fimm mánaða tímabili á
árunum 2017 og 2018 féllu að jafnaði
365 örplastagnir á hvern fermetra á
óbyggðu svæði í Pýreneafjöllum í um
1.500 metra hæð á landamærum
Frakklands og Spánar.
„Það er stórfurðulegt og uggvæn-
legt að svo margar agnir skyldu finn-
ast á þessu svæði,“ sagði Steve Al-
len, doktorsnemi í Strathclyde
háskóla í Skotlandi og aðalhöfundur
greinarinnar.
Deonie Allen, vísindamaður hjá
EcoLab í Toulouse og einn af með-
höfundum greinarinnar, sagði að
merkilegasta niðurstaða rannsókn-
arinnar væri að örplast berist milli
staða í andrúmsloftinu og safnist
saman á afskekktum stöðum langt
frá stórborgum.
Rannsóknin beindist að örplast-
ögnum sem eru 10-150 míkrómetrar
í þvermál. Mannshár er til saman-
burðar um 70 míkrómetrar í þver-
mál. Vísindamennirnir sögðu að það
hefði komið mjög á óvart að magn
plastagnanna hefði verið svipað og í
stórborgum á borð við París og kín-
versku iðnaðarborginni Dongguan.
Vaxandi áhyggjur
Sívaxandi áhyggjur eru af plast-
mengun en talið er að um 12 millj-
ónir tonna af plasti lendi í úthöfum
árlega og milljónir tonna til viðbótar
enda í ám og landfyllingum. Niður-
stöður rannsóknar, sem birtar voru
fyrr á þessu ári, sýndu að örplast
fannst í meltingarfærum botnsjávar-
dýra sem lifa á yfir 10 km dýpi.
Plastmengun Örplast hefur fundist
bæði á fjöllum og í sjávardjúpum.
Svipuð mengun
mælist í Pýrenea-
fjöllum og í stórborg
AFP
Vísindamenn við Háskólann í Tel Aviv sýndu í gær þrí-
víddarprentað hjarta sem innihélt mannlegan vef og
æðar. Sögðu þeir hjartað, sem er á stærð við hjörtu í
kanínum, vera hið fyrsta sinnar tegundar í heiminum.
Er það von þeirra að aðferðin muni í framtíðinni nýt-
ast til þess að framleiða hjörtu sem hægt verður að
græða í menn, en enn er langt í land áður en sá mögu-
leiki verður fyrir hendi.
AFP
Kann einn dag að leiða til ígræðslu
Vísindamenn í Ísrael framleiddu hjartavef með þrívíddarprentun