Morgunblaðið - 16.04.2019, Page 23
ég mitt fyrsta maraþon og hef
hlaupið 21 slík, þ. á m. mörg erlend-
is, s.s. hið upprunalega maraþon-
hlaup frá borginni Maraþon í
Grikklandi til Aþenu og á Kína-
múrnum, auk þekktra hlaupa svo
sem New York, Berlín og London
og fleiri.“
Fjölskylda
Eiginkona Eggerts er Sigrún
Kjartansdóttir, f. 8.7.1958, fram-
kvæmdastjóri. Foreldrar Sigrúnar:
Hjónin Kjartan Sveinn Guðjónsson,
f. 2.9. 1925, d. 24.5. 2015, fram-
kvæmdastjóri, og Lína Guðlaug
Þórðardóttir, f. 27.7. 1927, kaup-
maður.
Börn Eggerts og Sigrúnar eru 1)
Ásdís, f. 3.6.1975, sálfræðingur í
Kaupmannahöfn og á hún tvær
dætur, Helene og Viktoríu, tvíbura
f. 2009; 2) Anna, f. 20.12. 1985, fjöl-
miðlafræðingur og markþjálfi; 3)
Stefán, f. 30.7. 1988, viðskiptafræð-
ingur og margmiðlunarhönnuður.
Unnusta hans er Guðbjörg Una
Hallgrímsdóttir, f. 22.7. 1991, ferða-
mála- og viðskiptafræðingur og eiga
þau dótturina Elvu Maríu, f. 2019.
Systkini Eggerts: Helga Sigríður,
f. 22.8. 1940, d. 5.5. 2010, húsmóðir;
Ásta Jóhanna, f. 22.2. 1945, sjúkra-
þjálfari, og Arent, f. 17.3 1947, lög-
fræðingur.
Foreldrar Eggerts voru hjónin
Jean Emil Claessen, f. 11.11. 1911,
d. 7.8. 1970, framkvæmdastjóri hjá
O. Johnson & Kaaber, og Jóhanna
Júlíana Guðbjartsdóttir Claessen, f.
26.6. 1918, d. 11.2. 1982, húsmóðir í
Reykjavík.
Úr frændgarði Eggerts Claessen
Eggert
Claessen
Sigríður Hansdóttir Biering
húsfreyja í Rvík
Þórður Guðmundsson
verslunarmaður í Rvík
Helga Þórðardóttir
húsfreyja í Rvík
Arent Claessen
stórkaupmaður, O. Johnson & Kaaber hf.
Jean Emil Claessen
framkvæmdastjóri hjá O. Johnson & Kaaber
Anna Margrét Möller
húsfreyja á Sauðárkróki
og í Rvík
Gunnlaugur Claessen læknir
Eggert Claessen lögmaður
Dóra Guðbjartsdóttir forsætisráðherrafrú
Haukur Claessen
araflugmálastjóriv
Gunnlaugur Claessen
fv. hæstaréttardómari
Jón Guðbjartsson forstjóri Kristjáns Ó. Skagfjörð
Jean Valgarð Claessen
kaupmaður á Sauðárkróki
g síðar landsféhirðir í Rvko
María Kristín
Claessen
húsfreyja í
Rvík
Gunnar
Thoroddsen
fyrrv. forsætis-
ráðherra
Þórður Þ. Þorbjarnarson
borgarverkfræðingur
Sigríður Þórdís
Þorbjarnarson
húsfreyja í Rvík
Halldóra Sigurðardóttir
húsfreyja á Akranesi
Jón Ásmundsson
sjómaður á Akranesi
Ástbjörg Jónsdóttir
húsfreyja í Rvík
Guðbjartur Ólafsson
skipstjóri, hafnsögumaður og forseti Slysavarnafélagsins
Guðrún Haflína Jónsdóttir
húsfreyja í Keflavík við
Rauðasand
Ólafur Tómas Guðbjartsson
bóndi í Keflavík við Rauðasand, V-Barð.
Jóhanna Júlíana Guðbjartsdóttir Claessen
húsfreyja í Rvík
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019
Eirvík flytur heimilistæki inn
eftir þínum séróskum
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
„ÞAU ERU FRÁBÆR – EF ÞÚ ÞARFT
MEIRI STUÐNING.”
„GETUR ÞÚ GERT VIÐ ÞÆR FYRIR
LAUGARDAGINN? ÉG ER KOMINN Í
ÚRSLIT.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... ferðafélagi á lífsins
braut.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GRETTIR, HVÍ ER ELDHÚSIÐ
FULLT AF MÚSUM?
ÞÆR VIRÐAST VERA MEÐ
STÚKUFUND
ORÐRÓMURINN ER SANNUR … HRÓLFUR ER TAPSÁR!
TVÍHNEPPT
JAKKAFÖT
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Brosbikarinn. A-Allir
Norður
♠ÁG109
♥D
♦1075
♣D10972
Vestur Austur
♠D76 ♠K532
♥75 ♥8632
♦Á62 ♦K43
♣ÁK654 ♣G3
Suður
♠84
♥ÁKG1094
♦DG98
♣8
Suður spilar 4♥.
„Við þurfum að hittast oftar,“ sagði
Chen Yeh í mótslok síðasta vor þegar
hann ákvað að breyta tvíæringnum Yeh
Bros Cup í einæring. Spilið að ofan er
frá fyrsta áralega hittingnum – úrslita-
leik Lavazza og kínverskra landsliðs-
manna í Sjanghæ á laugardaginn.
Það er tvennt sem menn þurfa að
vita um Chen Yeh: Hann er stofnandi
stórfyrirtækisins Yeh Brothers og ákaf-
ur bridsáhugamaður. Peningar eru afl
þeirra hluta sem gera skal, að mati
Chen, og allt frá fyrsta móti 2003 hafa
verðlaun Brosbikarsins verið svimandi
há (190 þúsund Bandaríkjadalir fyrir
fyrsta sætið). Mótið stendur yfir í tæpa
viku og keppa 28 sveitir um góssið, sem
að þessu sinni rann til heimamanna.
Linlin Hu er einn þeirra. Hann vakti í
annarri hendi á 4♥ og þar við sat. Ag-
ustin Madala spilaði út ♣Á og síðan
LITLU laufi í öðrum slag?! Hu stakk upp
drottningu og henti spaða heima. Tíu
slagir.
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Db6 5. Rb3 Rf6 6. Rc3 e6 7.
Be3 Dc7 8. a3 a6 9. f4 d6 10. g4 b5
11. g5 Rd7 12. h4 Bb7 13. Bg2 Rb6 14.
De2 Rc4 15. Bc1 Db6 16. Rd1 Hc8 17.
c3 R6a5 18. Rxa5 Rxa5 19. Be3 Dc7
20. Rf2 Rc4 21. Bd4 e5 22. Be3 Rxe3
23. Dxe3 exf4 24. Dxf4 Be7 25. Rg4
Dc4 26. Re3 Db3 27. Rf5 Dxb2 28.
O-O Db3 29. Had1 Hd8
Staðan kom upp á GAMMA Reykja-
víkurskákmótinu sem lýkur í dag í
Hörpu. Stórmeistarinn Hjörvar Steinn
Grétarsson (2571) hafði hvítt gegn
kanadíska alþjóðlega meistaranum
Leon Piasetski (2222). 30. Rxg7+!
Kf8 svartur hefði einnig tapað eftir
30... Kd7 31. De5. 31. Hd5! sígilt og
skilvirkt línurof sem þvingaði svartan
til uppgjafar. Lokaumferð mótsins
hefst kl. 11:00 en mótinu verður svo
formlega slitið með verðlaunaafhend-
ingu sem hefst kl. 17:30 í Ráðhúsi
Reykjavíkur.
Hvítur á leik.