Morgunblaðið - 16.04.2019, Page 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019
Lengjubikar kvenna
Undanúrslit:
Þór/KA – Breiðablik ...................... (3:3) 6:7
Arna Sif Ásgrímsdóttir 45., Karen María
Sigurgeirsdóttir 53., Lára Kristín Peder-
sen 90. – Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 47.,
Agla María Albertsdóttir 79., sjálfsmark
90.
Breiðablik mætir Val í úrslitaleik á
fimmtudaginn.
Mjólkurbikar karla
Bikarkeppni KSÍ, 1. umferð:
KB – Snæfell ............................................. 2:1
KB mætir Ægi.
England
Watford – Arsenal .................................... 0:1
Staða efstu liða:
Liverpool 34 26 7 1 77:20 85
Manch.City 33 27 2 4 86:22 83
Tottenham 33 22 1 10 64:34 67
Arsenal 33 20 6 7 66:40 66
Chelsea 34 20 6 8 57:36 66
Manch.Utd 33 19 7 7 63:44 64
Spánn
Leganés – Real Madrid ........................... 1:1
Staða efstu liða:
Barcelona 32 22 8 2 81:31 74
Atlético Madrid 32 19 8 5 47:21 65
Real Madrid 32 19 4 9 56:38 61
Sevilla 32 15 7 10 54:39 52
Getafe 32 13 12 7 40:29 51
Ítalía
Atalanta – Empoli .................................... 0:0
Staða efstu liða:
Juventus 32 27 3 2 65:22 84
Napoli 32 20 7 5 61:28 67
Inter Mílanó 32 18 6 8 50:26 60
AC Milan 32 15 10 7 46:30 55
Roma 32 15 9 8 57:45 54
Atalanta 32 15 8 9 64:41 53
Danmörk
Umspilsriðill um Evrópusæti og fall:
SönderjyskE – AGF................................. 0:1
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leik-
inn með SönderjyskE.
AGF 38, Horsens 32, SönderjyskE 29,
Vejle 27. Tvö efri liðin fara í Evrópuumspil,
en hin tvö í umspil um sæti í deildinni. Þrjár
umferðir eru eftir.
Svíþjóð
Helsingborg – Hammarby...................... 2:1
Andri Rúnar Bjarnason lék ekki með
Helsingborg vegna meiðsla.
Viðar Örn Kjartansson lék allan leikinn
og skoraði mark Hammarby.
Staða efstu liða:
Djurgården 3 2 1 0 7:3 7
Häcken 3 2 1 0 6:2 7
Helsingborg 3 2 0 1 6:4 6
Sirius 3 2 0 1 6:4 6
AIK 3 1 2 0 2:1 5
Bandaríkin
Orlando Pride – Portland Thorns......... 0:2
Dagný Brynjarsdóttir kom inná hjá
Portland á 72. mínútu.
KNATTSPYRNA
www.gilbert.is
VELDU ÚR MEÐ SÁL
Frisland Classic
Norður-Makedóníu í undankeppni
EM.
Ómar gerði afdrifarík mistök í lok
fyrri leiksins, sem Ísland tapaði 34:33
í Laugardalshöll, en var svo besti
maður liðsins í 24:24-jafnteflinu í
Skopje í fyrrakvöld þar sem hann
skoraði 8 mörk. Þessi úrslit þýða að
liðin eru jöfn að stigum í 3. riðli og
möguleikinn á að enda í efsta sæti
riðilsins orðinn afar lítill, því inn-
byrðis úrslit skila Norður-Makedón-
íu ofar. Undankeppninni lýkur með
leikjum 12. og 16. júní þegar Ísland
mætir Grikkjum á útivelli en Tyrkj-
um á heimavelli, akkúrat öfugt við
Makedóníumenn. Tvö efstu liðin
komast áfram á EM og raunar kom-
ast lið með bestan árangur í 3. sæti í
fjórum af átta undanriðlum einnig á
EM. Mikið þarf því að ganga á til að
Ísland komist ekki á mótið en það
væri liðinu dýrmætt að ná efsta sæti
riðilsins og komast þannig í 2. styrk-
leikaflokk áður en dregið verður í
riðla fyrir EM. Nú er sú von lítil.
„Auðvitað væri það mikilvægt fyr-
ir okkur. En við vildum líka bara
vinna til að bæta okkur áfram sem
lið, þroskast og dafna. Við fengum
eitt stig út úr þessum leikjum en
maður hefði viljað meira og mér
fannst við spila að mörgu leyti vel. Í
fyrri leiknum var sóknin mjög góð en
svo gerðist í lokin bara það sem gerð-
ist, og við töpuðum. Í seinni leiknum
fannst mér við líka spila flottan leik,
sóknin var fín þó að við kláruðum
ekki færin alveg nógu vel, og varn-
arleikurinn var mjög flottur auk þess
sem markverðirnir gerðu vel. Mér
fannst því margt jákvætt í þessu og
við spila hörkugóðan bolta þó að við
fengjum bara eitt stig,“ segir Ómar
Ingi.
Ætti að snúa sér að öðru ef að
maður léti svona sitja í sér
Selfyssingurinn fékk dæmd á sig
skref undir lok fyrri leiksins við N-
Makedóníu, sendi boltann frá sér og
var þá sýnt rauða spjaldið fyrir töf
auk þess sem gestirnir fengu víta-
kast. Mistök á ögurstundu vekja
jafnan mun meiri athygli en þegar
þau verða í miðjum leik, en það segir
sitt um skapgerð þessa 22 ára leik-
manns hvernig hann vann úr málinu:
„Ég eiginlega trúði þessu ekki í
fyrstu. Það var algjör klaufaskapur
að fá dæmd á sig þessi skref, en svo
var dæmt rautt og víti og það er
kannski matsatriði hvort að það var
réttur dómur. En svona var þetta
bara. Þetta var í mínum huga bara
próf. Karakterspróf til að sýna úr
hverju maður er gerður. Það var
annað hvort að rífa sig í gang, halda
áfram, eða vorkenna sér og láta þetta
draga mann niður. Ég held að hið síð-
arnefnda sé voðalega sjaldan rétta
svarið.“ Svekkelsið í Höllinni varð
honum því ákveðin hvatning í Skopje:
„Þetta var ágætis leikur í Höllinni
en ég vissi samt að ég ætti meira inni,
líka áður en kom að þessari lokasókn,
og ég nýtti þá sénsa í seinni leiknum.
Það var vissulega hvatning fyrir mig
að nýta það sem gerðist í stað þess að
láta þetta skemma fyrir manni.
Svona eru íþróttir bara. Maður getur
ekki haft stjórn á öllu og þegar svona
gerist þá þarf bara að setja brjóst-
kassann fram og hökuna upp. Ef að
maður léti svona sitja í sér þá ætti
maður kannski frekar að snúa sér að
einhverju öðru. Það þarf að taka
þessu eins og öðru.“
Vill fullkomna frábæra þrennu
Ómar Ingi hefur verið í lykilhlut-
verki hjá Aalborg í Danmörku í vetur
á sinni fyrstu leiktíð með liðinu eftir
komu frá grönnunum í Aarhus þar
sem hann hóf atvinnumannsferilinn
haustið 2016. Hann hefur nú þegar
fagnað deildarmeistaratitli og bik-
armeistaratitli, en úrslitakeppni
dönsku úrvalsdeildarinnar hefst svo
annað kvöld.
„Mér hefur gengið vel heilt yfir,
sem og liðinu sem er auðvitað mik-
ilvægast. Við erum búnir að vinna
deildina og bikarinn, en þegar maður
hugsaði málið fyrir tímabilið þá var
það þannig að ef maður myndi vinna
einhvern bikar þá vildi maður vinna
þann síðasta. Mig langar að taka
hann,“ segir Ómar Ingi. Aalborg
byrjar á leik við Arnar Birki Hálf-
dánsson og félaga í SönderjyskE en
liðið er einnig í riðli með Holstebro og
Skjern. Sem deildarmeistari byrjar
Aalborg með 2 stig, Holstebro byrjar
með 1 en hin tvö liðin 0, og eftir tvö-
falda umferð komast svo tvö þessara
liða áfram í undanúrslit.
„Þetta eru allt hörkulið. Við byrj-
um vissulega með tvö stig en nú eru
öll liðin hungruð í að sýna að þau geti
unnið okkur,“ segir Ómar Ingi sem
verður að öllum líkindum áfram hjá
Aalborg næsta vetur en samningur
hans við félagið gildir fram á sumarið
2020.
„Próf til þess að sýna úr
hverju maður er gerður“
Ómar Ingi svaraði fyrir mistökin í Höllinni með stórleik í Skopje
Ljósmynd/Robert Spasovski
Átta Ómar Ingi Magnússon braust hvað eftir annað í gegnum vörn heimamanna í Skopje og hér skorar hann eitt markanna í leiknum í fyrrakvöld.
HANDBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Þetta var í mínum huga próf. Kar-
akterspróf til að sýna úr hverju mað-
ur er gerður,“ segir Ómar Ingi
Magnússon eftir hálfgerða
rússíbanareið sína með íslenska
landsliðinu í leikjunum mikilvægu við