Morgunblaðið - 16.04.2019, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019
JEVINTYRALEGAR
FERMINGARGJAFIR!
SCARP�
MIKID ORVAL AF SKOM i OLLUM STJERDUM
Kringlan 7 I Laugavegur 11 I S: 510 9505 I fjallakofinn.is E@l
HANDBOLTI
Þýskaland
B-deild:
Hamburg – Wilhelmshavener............ 30:23
Aron Rafn Eðvarðsson varði 12 skot í
marki Hamburg.
Dominos-deild karla
Undanúrslit, fjórði leikur:
Þór Þ. – KR ......................................... 93:108
KR sigraði 3:1.
ÍR – Stjarnan ........................................ 75:90
Staðan er jöfn, 2:2
1. deild karla
Umspil, undanúrslit, fjórði leikur:
Hamar – Fjölnir.................................. 90:109
Fjölnir vann, 3:1.
Evrópubikarinn
Þriðji úrslitaleikur:
Valencia – Alba Berlín........................ 89:63
Martin Hermannsson lék í rúmar 24
mínútur fyrir Alba, skoraði 5 stig og átti 2
stoðsendingar.
Valencia sigraði 2:1 og er Evrópubikar-
meistari.
Svíþjóð
Undanúrslit, þriðji leikur:
Borås – Norrköping ............................ 95:74
Jakob Örn Sigurðarson lék í tæpar 18
mínútur fyrir Borås, skoraði 4 stig og tók 1
frákast.
Borås er yfir, 2:1.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, 8-liða úrslit, 1. leikur:
Milwaukee – Detroit .......................... 121:86
Vesturdeild: 8-liða úrslit, 1. leikur:
Houston – Utah .................................. 122:90
KÖRFUBOLTI
BLAK
Fjórði úrslitaleikur karla:
Fagrilundur: HK – KA (2:1) ................ 19.30
Í KVÖLD!
sínum og varnarleikur liðsins var
hrein hörmung, sérstaklega í fyrri
hálfleik. Kinu Rochford náði sér
engan veginn á strik í gær og skor-
aði einungis 11 stig, þar af þrjú af
vítalínunni. Þrátt fyrir að Rochford
hafi verið duglegur að finna liðs-
félaga sína þá má lið eins og Þór
Þorlákshöfn ekki við því að hann
skori bara 11 stig og því fór sem fór.
KR er komið í úrslit Íslandsmóts-
ins, sjötta árið í röð, en það voru ekki
margir sem spáðu því að KR fengi
tækifæri til þess að bætta sjötta titl-
inum í röð í safnið þegar úrslita-
keppnin hófst. Vesturbæingar eru
að toppa á hárréttum tíma, þeir eru
vel gíraðir og verða að teljast lík-
legri aðilinn til þess að fagna Ís-
landsmeistaratitlinum í vor.
Þórsarar máttu súpa
seyðið af slæmri byrjun
KR-ingar voru miklu sterkari í Þorlákshöfn Leika til úrslita sjötta árið í röð
Morgunblaðið/Eggert
Öflugur Jón Arnór Stefánsson skoraði átján stig fyrir KR-inga í sigrinum í Þorlákshöfn í gærkvöld.
Í ÞORLÁKSHÖFN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Sautjánfaldir Íslandsmeistarar KR
fá tækifæri til þess að bæta þeim átj-
ánda í safnið en liðið tryggði sér sæti
í úrslitum Íslandsmóts karla í körfu-
knattleik eftir 108:93-sigur gegn Þór
frá Þorlákshöfn í Icelandic Glacier-
höllinni í Þorlákshöfn í gær í fjórða
leik liðanna í undanúrslitum Íslands-
mótsins. KR vann einvígið gegn
Þórsurum 3:1 en Þórsarar áttu aldr-
ei möguleika gegn öflugum Vestur-
bæingum í gær.
KR-ingar byrjuðu leikinn af gríð-
arlegum krafti og leiddu með tólf
stigum eftir fyrsta leikhluta. Þórs-
arar reyndu að svara í öðrum leik-
hluta og tókst að minnka forskot KR
í ellefu stig og staðan 58:47 í hálfleik.
Þórsarar reyndu hvað þeir gátu að
minnka muninn en munurinn á lið-
unum var ellefu stig eftir þriðja leik-
hluta. Í fjórða leikhluta sigldu KR-
ingar hægt og rólega framúr og
lönduðu öruggum sigri í leikslok.
Vesturbæingar byrjuðu leikinn af
gríðarlegum krafti og það skóp sigur
þeirra í gær. Þeir héldu Þórsurum
alltaf vel fyrir aftan sig og misstu þá
aldrei framúr sér, allan leikinn. KR-
ingar lokuðu gríðarlega vel á Kinu
Rochford og þá virðist Pavel Ermol-
inskij verða betri með hverjum
leiknum sem hann spilar. Björn
Kristjánsson hefur þurft að sætta
sig við mikla bekkjarsetu í úrslita-
keppninni en hann svaraði kallinu í
gær. Björn kom inn af bekknum og
skoraði 19 stig, þar af fimm þriggja
stiga körfur, og þær komu allar á
gríðarlega mikilvægum augnablik-
um í leiknum.
Þórsarar byrjuðu leikinn hörmu-
lega og misstu Vesturbæinga alltof
langt fram úr sér strax í fyrsta leik-
hluta. Þeir hittu illa úr skotunum
IG-höllin Þorlákshöfn, undanúrslit
karla, fjórði leikur, mánudag 15. apríl.
Gangur leiksins: 5:8, 10:19, 15:25,
22:34, 28:42, 30:45, 39:50, 47:58,
52:68, 60:68, 65:75, 73:84, 77:87,
82:89, 87:95, 93:108.
Þór Þ.: Nikolas Tomsick 30/10 stoð-
sendingar, Jaka Brodnik 18/9 frá-
köst, Ragnar Örn Bragason 15/5 frá-
köst, Halldór Garðar Hermannsson
13/5 fráköst, Kinu Rochford 11/13
fráköst/6 stoðsendingar, Emil Karel
Einarsson 6/5 fráköst.
Fráköst: 27 í vörn, 12 í sókn.
Þór Þ. – KR 93:108
KR: Julian Boyd 26/11 frák., Björn
Kristjánsson 19, Jón Arnór Stef-
ánsson 18, Kristófer Acox 17/7 frá-
köst, Helgi Magnússon 7, Michele
Christopher Di Nunno 7/5 stoðs.,
Pavel Ermolinskij 6/4 fráköst/7
stoðs., Emil Barja 4, Orri Hilmarsson
2, Sigurður Á. Þorvaldsson 2.
Fráköst: 23 í vörn, 12 í sókn.
Dómarar: Leifur S. Garðarsson, Dav-
íð Kristján Hreiðarsson, Eggert Þór
Aðalsteinsson.
Áhorfendur: 631.
KR vann, 3:1.
Arsenal styrkti stöðu sína í hörð-
um slag um sæti í Meistaradeild
Evrópu í knattspyrnu í gærkvöld
með útisigri gegn Watford, 1:0.
Pierre-Emerick Aubameyang
skoraði sigurmarkið strax á 10.
mínútu eftir mikil mistök Ben
Foster í marki Watford en hann
skaut boltanum í Gabonmanninn
og þaðan hrökk hann í netið.
Mínútu síðar fékk Troy Dee-
ney, fyrirliði Watford, rauða
spjaldið fyrir að gefa Shkrodan
Mustafi, varnarmanni Arsenal,
olnbogaskot í andlitið. Watford
var því manni færri í rúmar 80
mínútur en gerði samt oft harða
hríð að marki Arsenal.
Lið Arsenal stendur ágætlega
að vígi í slagnum um þriðja og
fjórða sætið. Liðið er skrefi á
undan Chelsea og Manchester
United og á eina þægilegustu
leikjadagskrána framundan.
Arsenal mætir Crystal Palace,
Wolves, Leicester, Brighton og
Burnley á lokasprettinum.
vs@mbl.is
AFP
Fimleikar Pierre-Emerick Aubameyang fagnaði marki sínu með tilþrifum.
Arsenal styrkti stöð-
una með útisigri
Karlalið Fram í knattspyrnu leikur
heimaleiki sína í sumar á gervigras-
vellinum í Safamýri. Fram hefur
spilað á Laugardalsvelli um árarað-
ir, að undanskildu sumrinu 2015, er
liðið lék í Úlfarsárdal. Þar standa
framkvæmdir yfir á framtíðarsvæði
Fram svo það m.a. hljóti samþykki
frá KSÍ vegna leyfiskerfisins.
Fram leikur
í Safamýri