Morgunblaðið - 16.04.2019, Page 29
Hið nýja myndbandsverk Ragnars
Kjartanssonar, Dauðinn er annars-
staðar, sem verður frumsýnt í
Metropolitan-safninu í New York
30. maí næstkomandi, verður á sjö
skjám og er 77 mínútna langt.
Verður það sýnt í safninu í allt sum-
ar, til 2. september.
Í tilkynningu frá Metropolitan
segir að tvennir tvíburar leiki og
syngi í verkinu, listamenn sem áður
hafa starfað með Ragnari, þær
Kristín Anna og Gyða Valtýsdætur,
sem áður voru í hljómsveitinni
múm, og Aaron og Bryan Dessner
sem eru í hinni þekktu hljómsveit
The National. Í tilkynningunni seg-
ir að ungu pörin gangi í kringum
áhorfendur og syngi ballöðu með
ástarþema í ægifögru landslagi og
veki verkið hugmyndir um róman-
tískar klisjur en að auki bætist við
ákveðin írónía og absúrdismi.
Fram kemur að myndbands-
verkið hafi verið kvikmyndað á
bjartri sumarnóttu, skömmu eftir
sumarsólstöður, nærri Lakagígum.
Ragnar er sagður einn fremsti
gjörninga- og myndbandslista-
maður sinnar kynslóðar og er sýn-
ingin á þessu nýja verki kynnt sem
mikilsverður þáttur í bættri fram-
setningu framúrskarandi samtíma-
listar í Metropolitan-safninu.
Birt með leyfi galleríanna Luhring Augustine og i8
Sumarballaða Úr hinu nýja myndbandsverki Ragnars Kjartanssonar.
Tvennir tvíburar
syngja nærri Laka
Verk Ragnars 77 mínútna langt
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019
Álfabakka 12, 109 Reykjavík • S. 557 2400 • Netverslun elbm.is
Opið virka daga kl. 8-18
Sængurverasett, dúkar,
servíettur, viskustykki,
dýnuhlífar & lök, sloppar & inniskór,
handklæði & þvottapokar.
Vörurnar fást í
Efnalauginni Björg í Mjódd
LÍN fyrir hótel, veitingahús, gistiheimili,
sjúkrastofnanir og heimili
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
GÆÐA TRÉLÍM
Á FRÁBÆRU VERÐI
„Það er einstaklega ánægjulegt að
flytja fallega kammertónlist í góðum
hópi meðleikara í skemmtilegu um-
hverfi,“ segir Laufey Sigurðardóttir
fiðluleikari, sem í 22. sinn stendur
fyrir tónlistarhátíðinni Músík í
Mývatnssveit um bænadagana. Með
henni koma fram Hrafnhildur Árna-
dóttir sópran, Hildigunnur Einars-
dóttir mezzósópran, Sigurlaug
Eðvaldsdóttir fiðluleikari, Vivi
Ericson víóluleikari, Júlía Mogensen
sellóleikari og Peter Maté píanó- og
orgelleikari.
Fyrri tónleikar hópsins verða í fé-
lagsheimilinu Skjólbrekku á skírdag
kl. 20 og þeir seinni í Reykjahlíðar-
kirkju föstudaginn langa kl. 20. „Að
vanda verður léttari blær yfir tón-
leikum skírdagsins og meiri þungi
ríkjandi á föstudaginn langa. Fyrra
kvöldið flytjum við eitt glæsilegasta
kammerverk tónbókmenntanna sem
er píanókvintettinn eftir Dvorák.
Einnig eru á efnisskránni aríur, ein-
söngslög og dúettar eftir Brahms,
Schumann, Grieg, Kaldalóns og
Mozart. Meginuppistaða tón-
leikanna í Reykjahlíðarkirkju er hið
undurfallega Stabat Mater eftir
Pergolesi, en að auki verður flutt
tónlist eftir Bach, Rossini og Deli-
bes,“ segir Laufey og tekur fram að
líkt og áður komi vinkonur hennar
úr Vogafjósi með veitingar í hléinu í
Skjólbrekku. Spurð hvort tónleika-
rýmin séu góð svarar Laufey því ját-
andi. „Skjólbrekka er sérlega
skemmtilegt hús, þeir eru heppnir
með það Mývetningar,“ segir Lauf-
ey og tekur fram að í húsinu ríki afar
góður andi auk þess sem hljómburð-
urinn njóti sín vel í kammerverkum.
„Við Vivi höfum þekkst frá náms-
árum okkar í Bandaríkjunum og
spiluðum saman í kvartett fyrir
margt löngu,“ segir Laufey og tekur
fram að sér hafi þótt einstaklega
skemmtilegt að geta boðið Vivi
Ericson að koma fram á hátíðinni í
ár. „Það hleypur nýju blóði í hátíðina
að fá nýtt fólk til samstarfs. Jafn-
framt er gaman að fá til liðs við okk-
ur tvær afbragðssöngkonur sem
vakið hafa verðskuldaða athygli á
umliðnum misserum.“
silja@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Tónlistarveisla Hrafnhildur Árnadóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Júlía Mogensen, Peter Maté, Vivi Ericson,
Laufey Sigurðardóttir og Sigurlaug Eðvaldsdóttir koma fram á tvennum tónleikum í Mývatnssveit í vikunni.
„Falleg kammertónlist“
Tónlistarhátíðin Músík í Mývatnssveit haldin í 22. sinn í
dymbilviku Verk flutt eftir Bach, Dvorák og Pergolesi
» Skosku tvíburarnirCharlie og Craig
Reid í hljómsveitinni
The Proclaimers
glöddu landann með
tónlist sinni í Eldborg
Hörpu í gærkvöldi.
Bræðurnir slógu í gegn
árið 1988 með laginu
„I‘m Gonna Be (500
Miles)“ sem margir
muna eftir, en á efnis-
skrá tónleikanna voru
eldri smellir í bland við
nýrra efni.
The Proclaimers léku fyrir landann í Hörpu í gærkvöldi
Gaman Magnús Már Einarsson og Jóhanna Guð-
mundsdóttir skemmtu sér konunglega.
Kraftmiklir Þeir voru í fínu formi tvíburarnir og drógu ekkert af sér.
Morgunblaðið/Hari
Margt Fjöldi fólks lagði leið sína í Hörpu til að heyra og sjá The
Proclaimers, m.a. Óli Palli Rokklandsmeistari, hér fyrir miðju.