Morgunblaðið - 18.04.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019
FÁST Í BYGGINGA-
VÖRUVERSLUNUM
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
Bestu undirstöðurnar fyrir
SÓLPALLINN – SUMARHÚSIÐ – GIRÐINGUNA
DVERGARNIR R
NAGGUR
H: 120 cm
PURKUR
H: 60 cm
TEITUR
H: 80 cm
ÁLFUR
H: 30 cm
Frábær hönnun, styrkur og
léttleiki tryggja betri
undirstöðu og festu í
jarðvegi.
Skoðið
nýju
heimas
íðuna
islands
hus.is
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Ný lyfta er í uppsiglingu í Hallgríms-
kirkjuturni. Henni verður komið fyrir
í sömu lyftugöngum og hin gamla var
í en sú var orðin 50 ára gömul. Fram-
kvæmdunum fylgja bættar bruna-
varnir á alla kanta, að sögn Sigríðar
Hjálmarsdóttur, framkvæmdastjóra
kirkjunnar. Meðan á þeim stendur
verður kirkjuturninn lokaður gestum,
enda stiginn upp einvörðungu neyðar-
útgangur. Framkvæmdirnar hefjast
eftir páska og taka fimm vikur.
„Við erum að endurnýja lyftuna. Sú
gamla var búin að þjóna okkur ansi
vel áratugum saman en hún var kom-
in á tíma,“ segir Sigríður. Í fyrra
komu 300.000 gestir í Hallgríms-
kirkju að njóta útsýnisins uppi í
kirkjuturni. Gamla lyftan tók 6-8
manns, 630 kg, og sú nýja verður jafn-
stór, þar sem göngin gefa ekki svig-
rúm til stækkana. Hún verður samt
hærri og fljótari upp 50 metrana sem
göngin eru.
Það verður töluverð röskun meðan
á uppsetningunni stendur, að sögn
Sigríðar. Framkvæmdir hefjast 23.
apríl og þeim á að ljúka 27. maí. Á
meðan geta ferðamenn ekki kíkt upp
í turn en Sigríður segir að maímán-
uður hafi verið valinn því þá hafa ann-
irnar verið minnstar, og tekjutapið
þannig lágmarkað.
Kostnaðurinn við uppsetningu
nýju lyftunnar og við bætta almenna
eldvarnaumgjörð í kirkjunni mun
nema um 40 milljónum króna. Sig-
ríður segir að vinna hafi staðið yfir
síðan 2009 að bættum öryggismálum
og að lyftan sé eitt af stóru skref-
unum á þeirri leið. „Þetta er aðeins
meiri framkvæmd en bara venjuleg
lyfta,“ segir Sigríður. Í framkvæmd-
unum verða lyftugöngin gerð að svo-
kölluðu brunahólfi, sem gerir að verk-
um að hún verði reykþétt og geti
verið notuð í neyðarástandi. Að auki
verður hún með eigin óháðan aflgjafa,
ef annað rafmagn bregst.
Heimsóknir í turninn skiluðu 289
milljónum króna í fyrra og mestu
annirnar eru yfir sumartímann og þá
er opið lengur, segir Sigríður. Hún
segir sóknina þó enn skulda töluvert
fyrir viðgerðir sem gerðar hafa verið
undanfarið á kirkjunni og að áfram sé
frekari viðgerða þörf.
Ný lyfta skref í átt að bættum
eldvörnum Hallgrímskirkju
Lyftuna má nota í neyð 300.000
gestir í fyrra Turninn lokaður í maí
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hallgrímskirkja Turninn verður lokaður mestallan maímánuð á meðan
nýrri lyftu verður komið fyrir í lyftugöngunum, sem eru 50 metrar.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Samkomulag um launaþróunar-
tryggingu til starfsmanna ríkis og
sveitarfélaga var undirritað í gær að
því er fram kemur í tilkynningu frá
ASÍ. „Laun félagsmanna í aðildar-
félögum ASÍ sem starfa hjá sveitar-
félögum munu hækka um 1,7 prósent
að meðaltali vegna samkomulagsins
og laun félaga ASÍ sem starfa hjá rík-
inu um 0,4 prósent að meðaltali,“
segir í tilkynningunni, en launa-
þróunartryggingin er afturvirk og
gildir frá 1. janúar 2019.
Samkomulagið er á grunni ramma-
samkomulags aðila vinnumarkaðar-
ins frá október 2015, en í því er kveðið
á um að launaþróun þeirra sem starfa
hjá ríki og sveitarfélögum verði ekki
lakari en á almennum vinnumarkaði.
Horft er til þróunar launa á almenna
markaðnum annars vegar og hjá
þeim félagsmönnum sem starfa hjá
ríki og sveitarfélögum hins vegar á
tímabilinu nóvember 2013 til nóvem-
ber 2018. Aðild að samkomulaginu
eiga íslenska ríkið Samband ís-
lenskra sveitarfélaga, Reykjavíkur-
borg, ASÍ, BSRB og Samtök at-
vinnulífsins.
Ljósmynd/ASÍ
Undirritun Samkomulag um launaþróunartryggingu til starfsmanna ríkis
og sveitarfélaga var undirritað í gær. Gildir hún afturvirkt frá 1. janúar sl.
Laun fylgi þróun á
almennum markaði
„Hér eru allir mjög slegnir og við ræddum sér-
staklega hve ótrúlegt það væri að þetta gerðist á
akkúrat sama tíma og og við erum að taka þetta
stóra skref í eldvörnum hjá okkur,“ segir Sigríður
Hjálmarsdóttir um brunann í Notre-Dame, dóm-
kirkju Parísar, á mánudaginn var. Hún segist þakklát
að kirkjan sé einmitt um þessar mundir í gríðarlegri
vinnu við bættar brunavarnir, enda sé „mikill
ábyrgðarhluti að taka á móti öllum þessum
gestum,“ segir Sigríður. „Það er mikilvægt að muna
að kirkjan er ekki bara byggingin, þetta er lifandi
kirkja með mjög miklu og fjölbreyttu starfi.“
Kirkjan er ekki bara byggingin
SLEGIN EFTIR BRUNANN Í NOTRE-DAME
Sigríður
Hjálmarsdóttir
Á meðan æ færri framhaldsskóla-
nemar viðurkenna í könnunum að
tala óhandfrjálst í símann undir
stýri, fjölgar þeim sem segjast nota
símann í að leita að upplýsingum í
miðjum akstri.
Samkvæmt niðurstöðu rann-
sóknar Sjóvár, sem gerð var meðal
allra framhaldsskólanema á landinu,
sögðust 74% framhaldsskólanema
árið 2016 tala í símann með því að
halda á símanum. Árið 2018 hafði
hlutfallið minnkað í 60%. 58% hóps-
ins sögðust leita að upplýsingum á
netinu undir stýri árið 2016 og það
hlutfall hafði hækkað í 63% árið
2018. Þeim fækkar þá um 6 pró-
sentustig sem segjast senda skila-
boð eða sms undir stýri og þeim sem
segjast skoða samfélagsmiðla yfir-
leitt um 3 prósentustig.
Þegar rannsóknirnar eru bornar
saman, 2016 og 2018, er niðurstaðan
sú að á heildina litið hefur símnotk-
un undir stýri dregist saman um 4%.
Akstur Bannað er að tala í farsíma
undir stýri, enda stórhættulegt.
Færri senda
skilaboð
undir stýri
Símnotkun ung-
menna 4% minni
Umferð um Hvalfjarðargöngin frá
höfuðborgarsvæðinu stöðvaðist um
tíma í gær og myndaðist nokkur
röð bíla við göngin. Að sögn lög-
reglu bilaði vörubíll í göngunum en
eftir nokkra stund tókst að koma
honum aftur í gang. Komst umferð
aftur í samt lag á fjórða tímanum.
Sem kunnugt er voru fjölmargir á
faraldsfæti síðdegis í gær þegar
páskafríið hófst hjá landsmönnum.
Umferð stöðvaðist