Morgunblaðið - 18.04.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019
Arnar Þór Jónsson héraðs-dómari var í viðtali í þætt-
inum Sprengisandi á sunnudag og
ræddi þar afstöðu sína til nýlegs
dóms Mannréttindadómstólsins um
Landsréttarmálið.
Segir hann aðMannréttinda-
dómstóllinn hafi
með dómi sínum
gengið of nærri
fullveldi Íslands og
að svo virðist sem
afstaða til stöðu
dómstóla annars
staðar í Evrópu hafi orðið til þess
að Ísland hafi fengið á sig rang-
látan dóm.
Þá vék hann að þriðja orku-pakkanum og sagði þessi mál
geta tengst: „Þau geta tengst í
gegnum það að spurningin verður
áfram um fullveldi Íslands og þeir
sem vilja klappa fyrir Mannrétt-
indadómstólnum og aðferðafræði
hans ættu þá að vera tilbúnir til
að horfa í spegilinn gagnvart því,
þegar evrópskir dómstólar í fyll-
ingu tímans munu fara að taka
ákvarðanir um innri málefni Ís-
lands þegar kemur að raforku og
útflutningi á raforku. Því að eins
og þetta mál er sett upp, og menn
geta lesið grein Ögmundar Jónas-
sonar í Morgunblaðinu í dag um
það, þá er þetta bara að sigla inn í
það að það er verið að svipta Ís-
lendinga yfirráðum yfir raforku
og því hvernig raforku sem verð-
ur til hér á landi er ráðstafað. Svo
að við þurfum í staðinn fyrir að
vera alltaf að ræða um persónur
eða afmörkuð tilvik og undantekn-
ingar – við verðum að geta rætt
um þetta út frá meginreglu.“
Það hefur borið á því í um-ræðunni að þessum stað-
reyndum sem dómarinn nefnir sé
hafnað sem fjarstæðu. Er ekki
tími til kominn að hætta því?
Arnar Þór
Jónsson
Íslendingar
sviptir yfirráðum
STAKSTEINAR
Pfaff fjölskyldan óskar
landsmönnum gleðilegra páska
Við ætlum að verja páskadögunum með okkar nánustu og höfum lokað
alla páskana, en vefverslunin www.pfaff.is stendur vaktina á meðan.
Lífið er núna!
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ekki hafa fleiri verið teknir fyrir
akstur undir áhrifum ávana- og
fíkniefna í einum mánuði, og í mars
sl., sé miðað við árið 2006 þegar lög-
um og verklagi lögreglu vegna slíkra
brota var breytt. Þetta kemur fram í
afbrotatölfræði lögreglustjórarns á
höfuðborgarsvæðinu. Brotin voru
186 talsins í mars og hefur fjölgað
um 47% það sem af er ári samanbor-
ið við meðaltal á sama tímabili síð-
ustu þrjú ár.
687 hegningarlagabrot voru skráð
hjá lögreglu í mars. Tilkynntum of-
beldisbrotum fækkar mjög og 15%
sé miðað við sama tímabil síðustu
þrjú ár á undan. Voru þau 83 í mars.
65 tilkynningar bárust um innbrot.
9% færri tilkynningar um innbrot
hafa borist á árinu miðað við sama
tímabil síðustu þrjú ár á undan.
Um 10% færri tilkynningar um
heimilisofbeldi hafa borist lögreglu á
árinu að meðaltali miðað við sama
tímabil síðustu þrjú ár á undan. 44
slíkar tilkynningar bárust í mars. Í
síðasta mánuði voru 145 fíkniefna-
bort skráð á höfuðborgarsvæðinu,
þar af fimm stórfelld. Brotin eru
álíka mörg og skráð voru að með-
altali á sama tímabili síðustu þrjú ár.
Toppur í akstri undir áhrifum efna
Ofbeldisbrotum fækkaði töluvert
Færri tilkynna heimilisofbeldi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Afbrot Hátt í 700 brot voru skráð í
málaskrá lögreglunnar í mars.
Þegar Icelandair ræður flugmenn til
starfa er ekki gerð grunnkrafa um
tiltekinn fjölda flugtíma, heldur hafa
þær kröfur með tímanum vikið fyrir
öðruvísi kröfum. Kröfurnar sem hafa
bæst við í staðinn, að sögn Hauks
Reynissonar, flugrekstrarstjóra Ice-
landair, eru samevrópskar kröfur um
þjálfun í svonefndu fjölstjórnar-
umhverfi og einnig krafa sem var
innleidd sérstaklega hjá Icelandair,
sem er um þjálfun í flughermi í þotu-
umhverfi (e. jet orientation course).
„Það sem þetta hefur sýnt okkur
er að flugmenn eru að koma miklu
betur út úr þjálfun í dag með þessum
kröfum heldur en einhverjum tíma-
kröfum fyrir einhverjum árum,“
segir hann.
Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í
gær gagnrýndi Guðbrandur Jónsson,
fv. flugstjóri, að flugvél Ethiopian
Airlines hafi stýrt aðstoðarflugmaður
með aðeins 200 flugtíma skráða. Slíkt
fyrirkomulag kallaði Guðbrandur
„flugkennslu með farþega“. Haukur
segir slíkar yfirlýsingar ekki stand-
ast. „Það fer enginn um borð og flýg-
ur flugvél með farþega og er ekki út-
skrifaður úr flugnámi, það er bara
kolólöglegt,“ segir Haukur. Fyrir-
komulagi flugnáms hafi víða verið
breytt og kröfurnar síður tímakröfur
núna. Tímakröfurnar hafi verið sía á
sínum tíma, frekar en gæðakrafa, og
nú sé þeirrar síu ekki þörf. 600 flug-
menn sóttu um hjá Icelandair í fyrra
og 47 voru ráðnir, að sögn Hauks.
Örnólfur Jónsson, formaður Fé-
lags íslenskra atvinnuflugmanna,
segir að tímakrafan hafi víða verið
lækkuð en þó séu kröfurnar engu
minni. Flugtímar eigi aðeins við flug í
eiginlegum flugvélum en ekki þjálfun
sem menn hafi hlotið í flughermum,
sem er engu síðri. Þannig hafi ekkert
verið óeðlilegt við að aðstoðar-
flugmaðurinn í umræddu slysi hafi
haft 200 flugtíma, hann hafi bara ver-
ið nýr flugmaður í starfi en engu að
síður hlotið fullgilda þjálfun fyrir
það.
Enn eru Boeing 737 MAX-8-vélar
kyrrsettar um allan heim. Endan-
legri rannsókn er ekki lokið.
snorrim@mbl.is
Ekki gerðar tíma-
kröfur á flugmenn
Nýjar kröfur bæst við Gefur betri raun
Morgunblaðið/Eggert
Icelandair Inntökuferli flugmanna
hefur tekið breytingum.