Morgunblaðið - 18.04.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019
Opnunartímar yfir páskana:
Skírdagur 10-18
Föstudagurinn langi LOKAÐ
Laugardagur 11-18
Páskadagur LOKAÐ
Annar í páskum 11-17
Skoðið úrvalið
á facebook
Tamaris
Stærðir 37-42
Verð: 12.995.-
Vagabond
Stærðir 37-41
Verð: 14.395.-
Vagabond
Stærðir 36-41
Verð: 15.395.-
Vagabond
Stærðir 36-41
Verð: 15.395.-
Skechers
Stærðir: 36-41
Verð: 12.495.-
Skechers
Verð: 10.495.-
Skechers
Verð: 7.495.-
Hummel
Verð: 8.595.- Piano
Stærðir: 36-41
Verð: 17.995.-
Piano
Stærðir: 36-42
Verð: 16.595.-
Duffy
Stærðir: 36-41
Verð: 9.495.-
Vagabond
Stærðir 36-41
Verð: 15.395.-
Þú getur pantað í gegnum Facebook síðu okkar
og fengið sent hvert á land sem er.
Gleðilega páska
Vagabond
Stærðir 36-41
Verð: 12.395.-
Skechers
Stærðir: 36-41
Verð: 12.495.-
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Villa í hugbúnaði er talin hafa orðið til
þess að öryggisverðir fóru á rangan
stað í dómkirkjunni Notre Dame í
París á mánudag þegar tölvukerfi
hennar varaði fyrst við eldi í bygging-
unni, að sögn franskra fjölmiðla í
gær. Þeir segja að dýrmætar mínút-
ur hafi þar með farið í súginn.
Tölvukerfið varaði við eldi í kirkj-
unni klukkan 18.20 að staðartíma en
öryggisverðirnir fundu engan eld og
töldu að viðvörunin hefði verið til-
efnislaus, að því er franska blaðið Le
Parisien hefur eftir heimildar-
mönnum sínum. 23 mínútum síðar,
klukkan 18.43, fór viðvörunarkerfið í
gang aftur. Öryggisverðirnir hringdu
ekki í slökkviliðið fyrr en þeir sáu um
þriggja metra langar eldtungur í
neðsta hluta turnspírunnar sem eyði-
lagðist í eldinum. Le Parisien segir að
villa í hugbúnaði hafi valdið því að ör-
yggisverðirnir leituðu að eldinum á
röngum stað í byggingunni.
Endurreist innan fimm ára?
Viðarþak kirkjunnar eyðilagðist í
brunanum, auk turnspírunnar, en
slökkviliðinu tókst að bjarga megin-
byggingunni og tveimur turnum
hennar. Laurent Nuñez, aðstoðar-
innanríkisráðherra Frakklands, hef-
ur sagt að aðeins hafi munað um 15-
30 mínútum að slökkviliðið hafi ekki
getað bjargað dómkirkjunni.
Fyrirtæki, einstaklingar og
borgarstjórn Parísar höfðu í gær lof-
að fjárframlögum að andvirði nær
milljarðs evra, sem svarar 135
milljörðum króna, til að endurreisa
Notre Dame eftir brunann.
Emmanuel Macron, forseti Frakk-
lands, hefur lofað því að dómkirkjan
verði endurreist innan fimm ára.
Hann sagði í sjónvarpsávarpi í fyrra-
kvöld að kirkjan yrði „jafnvel enn fal-
legri“ eftir að viðgerðunum lyki og
gaf til kynna að þeim ætti að ljúka áð-
ur en Ólympíuleikarnir verða haldnir
í París árið 2024. Nokkrir sérfræð-
ingar í viðgerðum á gömlum og sögu-
frægum byggingum hafa látið í ljós
efasemdir um að hægt verði að
endurreisa kirkjuna á svo skömmum
tíma og sagt að það geti tekið áratugi.
Édouard Philippe, forsætisráð-
herra Frakklands, sagði í gær að
arkitektum hvarvetna í heiminum
yrði boðið að leggja fram tillögur að
endurreisn kirkjunnar. Hann sagði
að til greina kæmi að kirkjan yrði án
turnspíru og benti á að hún hefði ver-
ið þannig í áratugi. Enn fremur kæmi
til greina að endurreisa turnspíruna
eins og hún var áður en hún eyðilagð-
ist eða reisa nýja spíru sem væri „lög-
uð að tækni og erfiðum úrlausnar-
efnum okkar tíma“.
Upprunaleg turnspíra NotreDame
var tekin niður á árunum 1786-1792
en endurreist 1859-1860 undir stjórn
franska arkitektsins Eugene Viollet-
le-Duc.
Koparstytta af hana, sem var ofan
á turnspírunni, fannst í rústunum
inni í kirkjunni í gær. Franska menn-
ingarráðuneytið sagði að styttan
hefði skemmst en líklega væri hægt
að gera við hana. »14
Fór dýrmætur tími í súginn?
Villa í hugbún-
aði kann að hafa
tafið slökkvistarfið
í Notre Dame
AFP
Mikið tjón Talið er að það taki mánuði að hreinsa Notre Dame eftir að þak kirkjunnar og turnspíra eyðilögðust í eld-
inum sem kviknaði á mánudag. Það gæti einnig tekið mánuði að meta skemmdir sem urðu á listmunum í kirkjunni.
Eiga rétt á
skattaafslætti
» Fyrirtæki sem leggja til fé til
endurreisnar Notre Dame eiga
rétt á 60% skattaafslætti, skv.
frönskum lögum sem heimila
slíka afslætti fyrir fjárframlög
til menningarmála.
» Franska stjórnin hefur
ákveðið að skattaafsláttur ein-
staklinga sem leggja til minna
en þúsund evrur nemi 75%.
Fari fjárframlög einstaklinga
yfir þau mörk verður afsláttur-
inn 66%.