Morgunblaðið - 18.04.2019, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019
VANDAÐUR VEISLUBÚNAÐUR FYRIR
FERMINGAR
fastus.is
Hnífar, bretti, leirtau, glös, hitapottar, lampar, fatnaður, hitaborð,
hitakassar og trillur o.fl.
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
Slóvenski landsliðsmarkvörðurinn
Jan Oblak framlengdi í gær samning
sinn við spænska liðið Atlético Madrid
sem hann hefur spilað með frá árinu
2014. Oblak, sem hefur verið talinn
einn af betri knattspyrnumarkvörðum
heims, er nú samningsbundinn Atlét-
ico til ársins 2023. Hann hefur spilað
203 leiki með liðinu og hefur haldið
marki sínu hreinu í 115 þeirra.
Ítalinn Edoardo Reja var í gær ráð-
inn nýr þjálfari albanska karlalands-
liðsins í knattspyrnu og tekur hann við
þjálfun liðsins af landa sínum Christi-
an Panucci, sem var rekinn úr starfi
eftir fyrsta leik Albana í undankeppni
EM. Fyrsti leikur Albana undir stjórn
Reja verður gegn Íslendingum í undan-
keppni EM á Laugardalsvellinum í júní.
Reja, sem er 73 ára gamall, er reyndur
þjálfari sem meðal annars hefur þjálf-
að ítölsku liðin Napoli, Atalanta og
Lazio. Hann hefur ekki stýrt landsliði
áður en samningur hans er til eins árs.
Agnar Smári Jónsson mun ekki
spila með Valsmönnum í úrslitakeppn-
inni í Olísdeildinni í handknattleik sem
hefst á laugardaginn en Agnar gekkst
undir aðgerð vegna
brjóskloss í baki á dög-
unum.
Sömu
sögu
er að
segja um
Magnús Óla
Magnússon, sem
meiddist illa á hné á
æfingu Valsliðsins
fyrir skömmu.
Eitt
ogannað
og hvíli mig allavega,“ sagði Danielle
eftir leik.
Kvennalið Keflavíkur er stolt
klúbbsins í körfuboltanum og 29
meistarabúningar í rjáfri íþrótta-
húss þeirra er til merkis um það.
Mikil saga og enn og aftur er liðið
komið í úrslitaeinvígið. En að þessu
sinni mæta þær til leiks sem svokall-
aðir „undirhundar“, eða það lið sem
er ólíklegra til sigurs ef tekið er mið
af lokastöðu deildarinnar. Óvenju-
legt fyrir liðið en verkefnið verðugt.
Feiknasterkt lið Vals hefur varla
stigið feilspor síðan Helena Sverris-
dóttir bættist í hóp liðsins. Keflavík
hefur ekki náð að sigra liðið eftir
áramót í þeim tveimur leikjum sem
liðin mættust í. Fróðlegt einvígi sem
er í vændum svo ekki sé meira sagt.
Keflavík skildi Stjörnuna
eftir í síðasta leikhlutanum
Frábær endurkoma hjá Keflavík sem mætir Val í úrslitaeinvíginu
Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson
Barátta Brittanny Dinkins sækir að körfunni í leik Keflavíkur og Stjörnunnar í gærkvöld.
Í KEFLAVÍK
Skúli B. Sigurðsson
skulibsig@mbl.is
Keflavík tryggði sig í úrslitaeinvígið
í Dominos-deild kvenna í körfubolta
í gærkvöldi þegar liðið hafði sigur í
oddaleik gegn Stjörnunni. 85:69 varð
lokastaða kvöldsins, stórsigur Kefla-
víkur en gefur alls ekki rétta mynd
af leiknum í heild sinni sem var jafn
að megninu til en Keflavík leiddi í
hálfleik með 6 stigum.
Á heildina litið fannst manni
Keflavíkurkonur einhvern veginn
alltaf í meira jafnvægi í leiknum og
meira stemmdar í leiknum. Þær
spiluðu gríðarlega góðan liðsbolta
sem skilaði þeim auðveldum körfum
á köflum. Þegar síðasti leikhluti
hófst var jafnt á flestum tölum og
beið maður eftir naglbít af leik það
sem eftir lifði. En Keflavík skoraði
26 stig gegn aðeins 14 stigum
Stjörnunar í þeim leikhluta og þar lá
sigurinn.
Kænska þjálfara Keflavíkur
Jón Guðmundsson þjálfari Kefla-
víkur var augljóslega með leik-
áætlun sem fólst í því að nýta leik-
menn liðs síns til fullnustu.
Lykilleikmenn fengu að hvíla vel inn
í fjórða leikhluta og komu svo inn á
ferskir og kláruðu vel. Jón fær fullt
hús stiga fyrir þessa kænsku, sér í
lagi þar sem hún gekk svo vel upp.
Stjörnukonur glímdu við ýmis
vandamál þetta kvöldið þótt vissu-
lega hafi þær spilað vel og velgt
Keflavík undir uggum á löngum
köflum. Jóhanna Sveinsdóttir, bar-
áttuhundur þeirra, lenti snemma í
villuvandræðum og náði aldrei að
beita sér að fullu eftir það. Danielle
Rodriguez, leikmaður þeirra, er ein-
stakur og dró vagninn hjá liðinu sem
fyrr. Hennar framlag var risavaxið í
gær en það dugði hins vegar ekki til.
„Þriðja árið mitt á Íslandi og ég veit
ekki hvað verður næst. Ég fer heim
Blue-höllin, undanúrslit kvenna, odda-
leikur, miðvikudag 17. apríl 2019.
Gangur leiksins: 5:2, 9:6, 19:15,
25:21, 27:27, 32:27, 39:31, 41:35,
43:39, 49:49, 53:52, 57:55, 61:59,
69:62, 74:65, 85:69.
Keflavík: Brittanny Dinkins 19/18 frá-
köst/8 stoðsendingar/5 stolnir, Bryn-
dís Guðmundsdóttir 19/6 fráköst/5
stoðsendingar, Birna Valgerður Ben-
ónýsdóttir 13, Sara Rún Hinriksdóttir
8/11 fráköst/5 stoðsendingar, Emelía
Ósk Gunnarsdóttir 7/4 fráköst, Irena
Sól Jónsdóttir 6, Katla Rún Garðars-
Keflavík – Stjarnan 85:69
dóttir 5, Þóranna Kika Hodge-Carr
4/6 fráköst, Salbjörg Ragna Sævars-
dóttir 4.
Fráköst: 38 í vörn, 17 í sókn.
Stjarnan: Danielle Rodriguez 31/10
fráköst/5 stoðsendingar/3 varin skot,
Veronika Dzhikova 17/7 fráköst, Jó-
hanna Björk Sveinsdóttir 7/7 fráköst,
Ragnheiður Benónísdóttir 6/5 frá-
köst, Bríet Sif Hinriksdóttir 6, Sólrún
Sæmundsdóttir 2.
Fráköst: 21 í vörn, 10 í sókn.
Áhorfendur: 178.
Keflavík sigraði 3:2.
Í kvöld ræðst það hvort Stjarnan
eða ÍR freistar þess að koma í veg
fyrir að KR vinni sinn sjötta Ís-
landsmeistaratitil í körfubolta
karla. Sigurliðið í kvöld fær páska-
helgina til að kasta mæðinni áður
en úrslitaeinvígið við KR hefst
næsta þriðjudagskvöld.
ÍR-ingar hafa komið flestum á
óvart með framgöngu sinni í úr-
slitakeppninni hingað til en nýttu
þó ekki tækifærið til að slá Stjörn-
una út á heimavelli á mánudaginn.
Þeir þurfa því að vinna öðru sinni í
Garðabænum til að komast í úr-
slitaseríuna. Það yrði þá í fyrsta
skipti frá því að úrslitakeppninni
var komið á laggirnar árið 1984
sem ÍR leikur í úrslitaeinvíginu.
Þeir 15 Íslandsmeistaratitlar sem
félagið getur státað af unnust allir
á árunum 1954-1977. ÍR hefur
raunar aðeins þrisvar áður komist í
undanúrslit, eða árin 2005, 2008 og
svo í fyrra þegar liðið var slegið út
af Tindastóli í fjórum leikjum, eftir
að hafa unnið Stjörnuna 3:1 í 8-liða
úrslitum.
Stjörnumenn hafa þegar unnið
sinn fyrsta deildarmeistaratitil í
vetur, og sinn fjórða bikarmeist-
aratitil, en aðalmarkmiðið hefur
alltaf verið að landa fyrsta Íslands-
meistaratitlinum. Þeir freista þess í
kvöld að komast í úrslitaeinvígið í
þriðja sinn í sögunni en Stjarnan
tapaði 3:1 gegn KR-ingum í úrslit-
unum árið 2011 og 3:2 gegn Grind-
víkingum árið 2013.
Stjarnan vann 96:63 í fyrsta leik
einvígisins við ÍR en ÍR næstu tvo
85:76 og 68:62. Stjarnan vann svo
90:75 á mánudag þar sem Ægir Þór
Steinarsson stal senunni með stór-
kostlegum leik og skoraði 34 stig.
Frumraun ÍR eða 3.
tilraun Stjörnunnar?
Morgunblaðið/Hari
Góður Ægir Þór Steinarsson átti
frábæran leik á mánudaginn.