Morgunblaðið - 18.04.2019, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019
Sjöunda árið í röð verður efnt til
menningarveislu í Alþýðuhúsinu á
Siglufirði um páskahelgina. Unnar
Örn J. Auðarson opnar sýningu í
Kompunni, Alþýðuhúsinu, föstu-
daginn langa kl. 12. Klukkan 15
sama dag hefst Gjörningadagskrá
þar sem fram koma Ásdís Sif Gunn-
arsdóttir, Aðalsteinn Þórsson,
Styrmir Örn Guðmundsson og Katr-
ín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir.
Laugardaginn 20. apríl kl. 17
verða haldnir tónleikar þar sem
þrjú tónskáld koma fram með eigið
efni og fjórði tónlistamaðurinn að-
stoðar við flutning. Tónskáldin eru
Þórir Hermann Óskarsson píanó-
leikari, Daníel Sigurðsson trompet-
leikari og Daníel Helgason gítar-
leikari, en auk þess kemur fram
Snorri Skúlason kontrabassaleik-
ari.
Listamaður Unnar Örn J. Auðarson.
Menningarveisla í Alþýðuhúsinu
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir opnar myndlistar-
sýningu hjá Ottó á Höfn í Hornafirði á morgun,
föstudaginn langa, kl. 14. „Þórunn sækir í verk-
um sínum efniðvið í fortíðina. Áhugi hennar á
íslenskri alþýðumenningu, einkum menningu og
handverkshefð kvenna skipar mikilvægan sess í
list hennar. Þórunn hefur þróað persónulegan
stíl og í verkum sínum endurskoðar, endurraðar
og endursmíðar hún úr efniviði sem fyrir öðrum
er ónýtt rusl eða svo heilagt að vart má fara um
hann höndum,“ segir í tilkynningu. Þar kemur
fram að sýningin sé annar hluti sýningaraðarinnar Argintætur í myndlist.
„Með sýningunni er tekinn upp þráðurinn frá 2015, þá sýndu Ásta Ólafs-
dóttir, Guðrún Sigríður Haraldsdóttir, Harpa Björnsdóttir, Margrét Jóns-
dóttir og Rúna Þorkelsdóttir í Menningarhúsinu Iðnó. Þar störfuðu Auður
Mikaelsdóttir listfræðingur og framreiðslumeistari og Andrés Bragason
matreiðslumeistari, sem nú hafa flutt sig um set og starfrækja Ottó á Höfn.“
Opnar sýningu hjá Ottó á Höfn
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir
Myndlistarviðburður sem nefnist
Networking and Chilling hóf göngu
sína í Harbinger á Freyjugötu 1 í
gær. Hann samanstendur af 12 sýn-
ingum og viðburðum eftir 12 mis-
munandi myndlistarmenn, sem alls
standa yfir í einn mánuð. „Net-
working and Chilling er nokkurs-
konar raðstefnumót listamanna við
rýmið. Sýningarröðin er með
óhefðbundnu sniði þar sem hver
listamaður fær aðeins einn dag til
að sýna í rýminu. Á þriggja daga
fresti verður ný sýning opnuð en
hver listamaður ræður opnunartím-
anum, einn listamannanna ætlar
t.d. einungis að hafa rýmið opið í 45
mínútur! Listamönnunum eru ekki
sett neinar skorður um það sem á
sér stað í rýminu á sýningardag.
Það eina sem bindur sýningarnar
saman er orðalisti með um 100 til-
viljunarkenndum hlutum sem lista-
mennirnir voru beðnir um að nota,
einn eða fleiri, í sýningunni. Þar
koma m.a. við sögu töfrasprotar,
borðspil og vígt vatn!“ segir í til-
kynningu. Allar nánari upplýsingar
um sýningardaga og þátttakendur
má nálgast á Facebook-síðu Har-
bingers.
Þrír dagar Hildigunnur Birgisdóttir er
einn sýnenda á stefnumóti Harbingers.
Stefnumót listamanna við rými
Stabat Mater eftir Pergolesi verður
flutt í Fella- og Hólakirkju á morgun,
föstudaginn langa, kl 14. Flytjendur
eru Matthías Stefánsson á fiðlu, Arn-
hildur Valgarðsdóttir á píanó, Svava
Kristín Ingólfsdóttir mezzosópran og
Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir
sópran. Konur ur kirkjukórnum syngja
með í fyrsta og síðasta kafla verksins.
Á undan leikur Jón Pétur Snæland tvo
kafla úr einni af sellósvítum J. S. Bach. Íhugul Hluti flytjenda á tónleikunum.
Stabat Mater í Fella- og Hólakirkju
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
ÍSLANDSMÓTIÐ
íPepsí Max-deild karla og kvenna í knattspyrnu
sumarið 2019
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir miðvikudaginn 17. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is | Sími: 569 1105
–– Meira fyrir lesendur
26. apríl gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um
SÉRBLAÐ
Kór Neskirkju efnir til tónleika á
mánudag, 22. apríl kl. 20, í tilefni af
útgáfu geisladisksins Tólf blik og
tónar. Þar verða flutt verk af disk-
inum en hann
samanstendur af
kórverkum Stein-
gríms Þórhalls-
sonar við ljóð
Snorra Hjartar-
sonar. Verkin
voru frumflutt
fyrir ári við mikla
hrifningu gagn-
rýnenda en Jónas
Sen gaf þeim tón-
leikum fjórar
stjörnur og nefndi viðburðinn sér-
staklega í áramótaumfjöllun sinni
sem einn þann markverðasta á
árinu.
Útgáfan er styrkt af Menningar-
sjóði FÍH, Nótnasjóði og Upptöku-
sjóði STEFs og Hlóðritasjóði. Kjart-
an Kjartansson var upptökustjóri en
samhliða geisladiskinum kemur út
nótnabók með verkunum öllum.
Miðar á tónleikana eru seldir á tix.is
og við inngang Neskirkju þar sem
tónleikarnir hefjast kl. 20.
Steingrímur, sem er organisti og
stjórnandi Kórs Neskirkju, segir
einn af meðlimum kórsins hafa lagt
það til að hann semdi tónlist við eitt-
hvert ljóða Snorra. „Ég er þannig
gerður að mér gengur stundum
erfiðlega að feta meðalveginn, og
þegar ég fór að glugga í kveðskapinn
þá gluggaði ég mjög rækilega,“ segir
Steingrímur, sem leitaði fanga í
safnbók með ljóðum Snorra.
Hrífandi augnablik
Kórinn hafði áður, undir stjórn
Steingríms, flutt lag sem Hugi Guð-
mundsson samdi við ljóð Snorra,
„Hvíld“, og var það þar sem áhuginn
kviknaði. „Ég prófaði mig áfram og
fann strax að í texta Snorra er les-
andinn oftar en ekki komin upp á
íslenskar heiðar, og honum lagið að
draga fram hrífandi náttúrustemn-
ingu, eða augnablik, en þessi „tólf
blik“ í titli plötunnar vísa til þess að
tólf ljóð mynda heildina og tólf tónar
hljóminn,“ útskýrir Steingrímur.
Ljóð Snorra reyndust miserfið
viðfangs og segir Steingrímur að
flest þeirra séu engir dægurlaga-
textar. „En ljóðin búa yfir vissri
hrynjandi og litríkum lýsingum sem
veita leiðsögn um hvernig má túlka
textann í tónum,“ segir Steingrímur
sem kveðst hafa grúskað reglulega í
ljóðasafninu og gripið þau kvæði á
lofti sem kölluðu á tónlist. „Oftast
var hvert verk klárt strax næsta dag,
og aðeins þrjú eða fjögur ljóð sem ég
freistaði þess að byrja að semja tón-
list við en tókst ekki að ljúka.“
Steingrímur segir útgáfu geisla-
disksins m.a. gerða fyrir þá sem hrif-
ust af verkunum þegar þau voru
frumflutt fyrir ári, og eins til að
fagna starfi kórsins en í 60 ára sögu
kórastarfs Neskirkju hefur plata eða
geisladiskur aldrei litið dagsins ljós.
„Kórmeðlimum þykir líka vænt um
verkin og með geisladiski og nótna-
bók má segja að við séum að loka
ákveðnum hring.
Aðspurður hvort megi eiga von á
fleiri verkefnum af svipuðum toga
segir Steingrímur ekki loku fyrir það
skotið. „Verandi að norðan hef ég
samið ein tíu kórverk við kvæði
Huldu en svo væri líka gaman að
gera atlögu að einum bálki af kvæð-
um Steins Steinars ef tími vinnst til.
Það er jú þannig að tónsmíðarnar
taka tíma og á meðan verkin við
kvæði Snorra voru í smíðum var ég
ekki alltaf viðræðuhæfur.“ ai@mbl.is
Tólf ljóð og tólf tónar
Kór Neskirkju Steingrímur segir ljóð Snorra Hjartarsonar búa yfir vissri hrynjandi og litríkum lýsingum.
Merkilegur nýr geisladiskur Kórs Neskirkju er sá fyrsti
sem gefinn er út í 60 ára sögu kórastarfs kirkjunnar
Steingrímur
Þórhallsson