Morgunblaðið - 24.04.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019
Engin hefð-
bundin þing-
veisla verður
haldin í vor hjá
alþingismönnum
eins og hefð hef-
ur verið fyrir.
Steingrímur J.
Sigfússon þing-
forseti segir að
ekki hafi tekist
að finna dagsetn-
ingu sem hentaði. Upphafleg dag-
setning sem hafi hentað þingmönn-
um og forsetahjónunum hafi rekist
á við boðaðar verkfallsaðgerðir á
hótelum. Skoðað var þá að halda
veisluna seint í maí, en þá rakst það
á stóran fund hjá einum af stjórn-
málaflokkunum.
Steingrímur neitar að illindi milli
manna séu ástæða þess að veislunni
var frestað; niðurstaðan hafi bara
verið sú að ekki hafi verið hægt að
finna veislunni stað með góðum
hætti.
Fundu þingveisl-
unni ekki stað í
dagatalinu
Steingrímur J.
Sigfússon
Matvælastofnun fylgist náið með
veikindum hrossa þessa dagana en
nokkuð er um veikindi í hrossum
um þessar mundir, einkum á höfuð-
borgarsvæðinu, Suðurlandi og
Vesturlandi, að því er segir í til-
kynningu. Eru einkennin sögð
minna á hitasótt og smitandi hósta.
Flest bendi til að smitefni sem urðu
landlæg í kjölfar faraldra 1998 og
2010 séu að minna á sig. Hestarnir
verða alla jafna ekki alvarlega
veikir en kalla þarf til dýralækni ef
líkamshiti er hærri en 38,5°C.
Fylgst náið með
veikindum hrossa
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Bæjarráð Vestmannaeyja vill að
Vegagerðin finni tafarlaust dýpk-
unarskip sem hafi burði til þess að
opna Landeyja-
höfn. Það vill að
leitað verði út
fyrir landstein-
ana að aðila sem
geti sinnt verk-
inu og opnað
höfnina án þess
að það dragist
langt fram á vor.
Ekki sé boðlegt
að dýpkunaraðili
sem sinni verkinu
hafi hvorki tækjakost né metnað til
þess og haldi þannig samfélaginu í
Vestmannaeyjum í gíslingu. Ekki
verði búið við ástandið lengur og að-
gerða sé þörf.
Þetta sagði Íris Róbertsdóttir
bæjarstjóri í samtali við Morgun-
blaðið, eftir aukafund bæjarráðsins
í hádeginu í gær. Bergþóra Þorkels-
dóttir vegamálastjóri tók þátt í
fundinum í síma.
Í ályktun bæjarráðs er lýst von-
brigðum með að sá tími sem gafst
til dýpkunar um páskana hafi ekki
verið nýttur sem skyldi. Telur
bæjarráð það tvímælalaust van-
efndir á samningi milli aðila um
dýpkun hafnarinnar, þar sem verk-
takanum hafi mátt vera það fullljóst
fyrir fram að veður á páskadag og
annan í páskum gaf gott tækifæri til
dýpkunar. Sá tími hafi hins vegar
ekki verið nýttur nema að litlu leyti
og dýrmætar klukkustundir farið í
súginn þegar dýpkunarskip hefðu
getað athafnað sig með góðu móti.
Þá segir að bæjaryfirvöld í Eyj-
um hafi margoft ítrekað áhyggjur
sínar af afkastagetu verktakans til
dýpkunar. Við það bætist nú að
þrátt fyrir fögur fyrirheit og full-
yrðingar um metnað verktakans til
þess að dýpka þegar færi gefst sé
lítið um efndir. Staðan sé með öllu
ólíðandi fyrir íbúa og fyrirtæki í
Vestmannaeyjum.
Það er fyrirtækið Björgun sem
hefur samning við Vegagerðina um
dýpkun Landeyjahafnar.
„Við hjá Vegagerðinni förum nú
yfir þá stöðu sem upp er komin,“
sagði Bergþóra Þorkelsdóttir vega-
málastjóri við Morgunblaðið eftir
fund bæjarráðsins.
„Eftir erfitt vor þar sem illa hef-
ur viðrað til dýpkana lítur Vega-
gerðin það alvarlegum augum að
Björgun var ekki klár til þess að
byrja dýpkun tafarlaust þegar
veðuraðstæður loksins voru viðun-
andi. Vegagerðin hafði gert allar
þær ráðstafanir sem unnt var til að
auðvelda vinnuna, s.s. að flýta dýpk-
un þegar ljóst var að veðurspá væri
batnandi. Við munum skoða allar
mögulegar leiðir en ekkert liggur
fyrir á þessari stundu, hvorki um
möguleika eða fýsileika einstakra
aðgerða.“
Vilja nýjan aðila til
að annast dýpkun
Vegagerðin fer
yfir stöðuna í
Landeyjahöfn
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Landeyjahöfn Mikil óánægja er í Vestmannaeyjum með seinagang við
dýpkun hafnarinnar. Það er fyrirtækið Björgun sem annast verkið.
Íris
Róbertsdóttir
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Að einhver skuli kveikja í íbúðar-
húsnæði er grafalvarlegt mál og það
var í raun einungis fyrir vaska fram-
göngu minna manna að hægt var að
koma í veg fyrir að reykur færi inn í
stigaganginn. En þá hefði mikil
hætta skapast og það hefði gert um
leið rýmingu hússins mjög flókna,“
segir Jón Viðar Matthíasson,
slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæð-
inu, í samtali við Morgunblaðið.
Vísar hann í máli sínu til bruna
sem varð í dekkjum og öðru lauslegu
drasli sem geymt var í bílakjallara
fjölbýlishúss að Sléttuvegi 7 í
Reykjavík nýliðinn páskadag. Fjöl-
mennt lið slökkviliðs- og lögreglu-
manna var sent á vettvang og þurftu
slökkviliðsmenn að brjóta sér leið
inn í bílakjallarann til að ráða niður-
lögum eldsins. Mikinn og þykkan
reyk lagði frá brunanum og er óttast
að ökutæki hafi orðið fyrir tjóni.
„Þarna inni voru dekk og eitthvert
annað dót, en þetta eru hlutir sem á
alls ekki að geyma í opnum bíla-
geymslum. Þetta er aftur á móti eitt-
hvað sem viðkomandi húsfélag þarf
að glíma við og íbúanna hvernig þeir
vilja haga sínum hlutum. Að okkar
mati á samt ekki að geyma neitt ann-
að en bíla og önnur farartæki í bíla-
geymslum,“ segir Jón Viðar.
Þá segir hann loftun hafa verið
góða í bílakjallaranum og mun það
hafa hjálpað nokkuð við slökkvistörf.
„Það var lofttúða þarna fyrir ofan
auk þess sem mínir menn náðu að
opna innkeyrsluhurð tiltölulega
fljótt. Allt gekk því vel í þessum að-
gerðum, en auðvitað hefði eldurinn
getað farið í aðra hluti á borð við
ökutæki sem fuðrað geta upp á
skömmum tíma,“ segir Jón Viðar.
Fundu bensínbrúsa skammt frá
Jóhann Karl Þórisson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, segir niður-
stöður tæknideildar útiloka raf-
magnsbruna og að bensínbrúsi hafi
fundist í kjallaranum.
„Það er ekkert sem bendir til ann-
ars en að kveikt hafi verið í. Þarna
finnst bensínbrúsi, við vitum þó ekki
hvort hann hafi verið notaður,“ segir
Jóhann Karl og bætir við að lög-
regla eigi eftir að ræða betur við
íbúa hússins. Þá hefur lögregla einn-
ig sett sig í samband við nærliggj-
andi bensínstöðvar til að kanna ný-
leg kaup á bensínbrúsum. Engar
öryggismyndavélar eru þó á eða við
Sléttuveg 7 og því óskar lögregla
eftir hugsanlegum vitnum.
Björn Arnar Magnússon er fram-
kvæmdastjóri Brynju hússjóðs.
Hann segir iðnaðarmenn á vegum
tryggingafélags hússins nú að störf-
um í kjallaranum og að búið sé að
fjarlægja þá bíla sem kunni að hafa
skemmst í eldsvoðanum.
„Flestir bílanna eru farnir í þrif.
Þetta lítur ekki eins illa út og það
gerði fyrst. Það er aftur á móti rosa-
legt að hugsa til þess að brennuvarg-
ur gangi laus,“ segir hann og bætir
við að hugað verði nú að uppsetningu
eftirlitsmyndavéla til að auka öryggi.
„Það er ljóst að það þarf að fylgj-
ast betur með þessu hverfi. Maður
bjóst aldrei við þessu,“ segir hann.
Íkveikja eina skýringin
Þetta er grafalvarlegt mál, segir slökkviliðsstjóri Skjót viðbrögð slökkviliðs-
manna komu í veg fyrir mikla hættu Huga nú að uppsetningu eftirlitsmyndavéla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hættuástand Lögregla og slökkvilið var með mikinn viðbúnað þegar tilkynnt var um eld í bílakjallara við Sléttu-
veg í Reykjavík. Brennuvargur hafði þá skömmu áður kveikt í dekkjum og öðru rusli sem geymt var í kjallaranum.
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10,1 kg
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is