Morgunblaðið - 24.04.2019, Qupperneq 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019
England
Tottenham – Brighton ............................. 1:0
Watford – Southampton .......................... 1:1
Staðan:
Liverpool 35 27 7 1 79:20 88
Manch.City 34 28 2 4 87:22 86
Tottenham 35 23 1 11 65:35 70
Chelsea 35 20 7 8 59:38 67
Arsenal 34 20 6 8 68:43 66
Manch.Utd 34 19 7 8 63:48 64
Watford 35 14 8 13 50:50 50
Everton 35 14 7 14 50:44 49
Leicester 35 14 6 15 48:47 48
Wolves 34 13 9 12 41:42 48
West Ham 35 12 7 16 44:54 43
Cr. Palace 35 12 6 17 43:48 42
Newcastle 35 11 8 16 35:44 41
Bournemouth 35 12 5 18 49:62 41
Burnley 35 11 7 17 44:62 40
Southampton 35 9 10 16 41:58 37
Brighton 35 9 7 19 32:54 34
Cardiff 35 9 4 22 30:65 31
Fulham 35 6 5 24 33:76 23
Huddersfield 35 3 5 27 20:69 14
Spánn
Alavés – Barcelona................................... 0:2
Staða efstu liða:
Barcelona 34 24 8 2 85:32 80
Atlético Madrid 33 20 8 5 48:21 68
Real Madrid 33 20 4 9 59:38 64
Getafe 33 14 12 7 43:29 54
Sevilla 33 15 7 11 54:42 52
Valencia 33 12 16 5 38:28 52
Þýskaland
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Hamburger – RB Leipzig........................ 1:3
Holland
AZ Alkmaar – Heracles .......................... 2:1
Albert Guðmundsson lék allan leikinn
með AZ og skoraði sigurmarkið.
Staða efstu liða:
Ajax 32 26 2 4 111:30 80
PSV 31 24 5 2 92:24 77
Feyenoord 31 18 5 8 67:38 59
AZ Alkmaar 32 16 7 9 61:39 55
Heracles 32 15 3 14 56:60 48
Vitesse 32 12 11 9 61:49 47
Pólland
Cracovia – Jagiellonia ............................ 0:1
Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Jagiellonia sem er í 4. sæti deildarinnar.
Úkraína
Karpaty Lviv – Chornomorets............... 0:0
Árni Vilhjálmsson fór af velli á 90. mín-
útu hjá Chornomorets.
Noregur
Odd – Viking ............................................ 1:0
Samúel Kári Friðjónsson lék í 85 mín-
útur með Viking. Axel Óskar Andrésson er
frá keppni vegna meiðsla.
KNATTSPYRNA
HANDKNATTLEIKUR
8-liða úrslit karla, oddaleikur:
Schenkerh.: Haukar – Stjarnan (1:1) . 19.30
Umspil kvenna, annar úrslitaleikur:
Fylkishöll: Fylkir – HK (1:0)............... 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Annar úrslitaleikur kvenna:
Blue-höllin: Keflavík – Valur (0:1) ...... 19.15
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar karla, 2. umferð:
Húsavík: Völsungur – Tindastóll ............. 19
Í KVÖLD!
Albert Guðmundsson var hetja AZ
Alkmaar í gærkvöld þegar liðið
sigraði Heracles, 2:1, í hollensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu.
Albert lék allan leikinn með AZ
og skoraði sigurmarkið á 66. mín-
útu. Calvin Stengs hafði komið AZ
yfir snemma leiks en Brandley
Kuwas jafnaði fyrir Heracles rétt
fyrir hlé.
Albert hefur þar með skorað þrjú
mörk í síðustu þremur leikjum AZ
en hann nýtti vel tækifæri sem hann
fékk á dögunum eftir langa bekkj-
arsetu. Hann skoraði tvívegis eftir
að hafa komið inná sem varamaður
Den Haag og hefur nú verið tvo
leiki í röð í byrjunarliðinu.
AZ gulltryggði sér fjórða sætið í
deildinni með sigrinum en liðið er
nú sjö stigum á undan Heracles sem
er í fimmta sætinu þegar tveimur
umferðum er ólokið. Fram undan er
þó umspil um Evrópusæti en í það
fara liðin í fjórða til sjöunda sæti.
vs@mbl.is
Albert nýtir
tækifærið vel
Á AKUREYRI
Einar Sigtryggsson
sport@mbl.is
Íslandsbikarinn í blaki karla fór á
loft í gærkvöldi eftir oddaleik KA og
HK á Akureyri. Hvort lið hafði unn-
ið tvo leiki í einvíginu og tveir síð-
ustu leikir höfðu farið í oddahrinu.
Fór svo að KA tryggði sér Íslands-
meistaratitilinn eftir 3:2-sigur í æsi-
legum leik. KA var að vinna titilinn
annað árið í röð og í sjötta skipti.
KA vann þrefalt bæði í karla- og
kvennaflokki í vetur og er það ein-
stakt afrek í boltaíþrótt á Íslandi.
Segja má að leikurinn hafi verið
hnífjafn allt frá upphafi til enda. KA
vann fyrstu hrinuna 25:21 en HK
svaraði með 25:22-sigri í þeirri
næstu. KA vann þriðju hrinuna
25:20 en HK svaraði um hæl með
sömu stigatölu.
Oddahrinan byrjaði með tveimur
KA-stigum en svo fór í gang einn
mesti tryllir sem sögur fara af. Því-
lík læti og stuð á leikmönnum.
Hverju stigi var fagnað eins og um
úrslitastig væri að ræða. KA var í
góðri stöðu, 9:6 og 11:7, þegar HK
tók sín leikhlé. Þrjú stig frá HK
breyttu stöðunni í 11:10. Hvert stig
var nú gulls ígildi og spennan í
leiknum óbærileg. Stefano Nassini
Hidalgo átti lokaskell KA og
tryggði hann norðanmönnum Ís-
landsmeistaratitilinn en hrinunni
lauk 15:11.
Ekki verður annað sagt en að lið
KA og HK hafi boðið upp á frábært
einvígi þar sem HK komst í 2:1 en
KA vann tvo síðustu leikina og mun-
ar engu á þessum liðum.
Stefano Nassini Hidalgo og Migu-
el Mateo Castrillo voru atkvæða-
mestir KA-manna en þeir voru að-
framkomnir í lok leiksins. Mæddi
enda mikið á þeim. Alexander Arn-
ar Þórisson var öflugur hjá KA, þá
aðallega í hávörn, og gaman var að
sjá Hornfirðinginn Birki Frey
Elvarsson í stöðu frelsingja.
Í liði HK eru margir frábærir
spilarar og voru Lúðvík Már Matt-
híasson uppspilari og Benedikt
Baldur Tryggvason báðir magnaðir
í leiknum. Kristófer Björn Ólason
Proppé skilaði sínu og þeir Theódór
Óskar Þorvaldsson og Andreas
Hilmir Halldórsson voru sterkir í að
skila sínum sóknum. Þeir voru ekki
endilega að hamra boltann í gólfið
en sýndu klókindi.
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Gleði KA-menn fögnuðu vel og lengi eftir að hafa tekið við Íslandsbikarnum á sínum heimavelli í gærkvöld, eftir sigur á HK í oddaleik liðanna.
KA handhafi allra titla
Sjötti meistaratitillinn í karlaflokki eftir háspennusigur í oddaleik gegn HK
KA er þrefaldur meistari í blaki í bæði karla- og kvennaflokki
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is