Morgunblaðið - 24.04.2019, Page 25

Morgunblaðið - 24.04.2019, Page 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019 Kristófer kokkur hér í Há- degismóunum er Eyjamaður og harður stuðningsmaður ÍBV og Liverpool. Við Kristófer spjöllum mikið saman um boltann þegar ég heimsæki hann í matsalinn og í einu spjalli okkar í haust rædd- um við um slakt gengi Íslands- meistaraliðs ÍBV í handbolta. Ég sagði við kokkinn góða: ,,Jæja Kristófer, það er ljóst að ÍBV nær ekki að verja titilinn í ár.“ Á þessum tímapunkti gekk hvorki né rak hjá Eyjaliðinu og sumir voru farnir að ganga svo langt að spá því falli. Kristófer var á allt öðru máli og sagði: ,,Gummi, ertu til í að veðja? Ef ÍBV verður ekki meist- ari í vor læt ég þig fá kassa af bjór en ég fæ kassa frá þér ef ÍBV verður meistari.“ Ég var fljótur að slá til og tók veðmálinu. Ég taldi víst að ég myndi vinna þetta veðmál og það jafnvel strax í febrúar. En nú er staðan orðin allt önnur. ÍBV-liðið hefur verið á bullandi siglingu og Eyjakokkurinn tók á móti mér með sópinn góða þegar ég gæddi mér á plokkfiskinum í gær. ÍBV sópaði mínum mönnum í FH úr leik í átta liða úrslitunum og skælbrosandi Kristófer er far- inn að sjá bjórkassann í hill- ingum. Kristófer ætlar að klæðast Manchester United-treyjunni í kvöld eins og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Þeir eins og fjölmargir „Púlarar“ ætla að gerast stuðningsmenn United í einn dag, vonast til þess að liðið taki stig af City í kvöld og þar með ætti leiðin að vera greið að Englandsmeistaratitlinum sem Liverpool hefur ekki unnið í 29 ár! BAKVÖRÐUR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is Þótt leikir átta liða úrslita Íslands- mótsins í handknattleik karla hafi sumir hverjir verið spennandi og skemmtilegir dugði það ekki til að teygja mikið á keppninni. Aðeins kemur til oddaleiks í einni rimmu af fjórum og það í þeirri rimmu sem fyrirfram var reiknað með að minnst spenna yrði í, þ.e. í leikjum Hauka og Stjörnunnar. Liðin höfnuðu í fyrsta og áttunda sæti deildarinnar. Stjarnan sýndi í fyrradag að þrátt fyrir hrakspár og brotthvarf sterks leikmanns, Egils Magnússonar, var ástæðulaust að leggja átakalaust ár- ar í bát. Haukar og Stjarnan leiða þar með saman hesta sína í eina oddaleik átta liða úrslita á heimavelli Hauka, Schenker-höllinni, í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Fróð- legt verður að sjá með hverslags hugarfari liðin koma til leiks og hvernig viðureignin þróast. Aðeins eru tvö ár síðan Haukar féllu úr leik í átta liða úrslitum fyrir Fram eftir magnþrunginn oddaleik á Ásvöllum. Gerist eitthvað svipað í kvöld? Eins og Stjarnan lék í öðrum leik liðanna í fyrradag er hægt að segja að hún sé til alls líkleg. Misstu móðinn í Mosfellsbæ Eftir dramatískt tap á laugardag- inn misstu leikmenn Aftureldingar móðinn og reyndust fyrir vikið ekki alvarleg hindrun fyrir Valsmenn í annarri viðureign liðanna á mánu- daginn. Valur vann sannfærandi sig- ur. Árangur tímabilsins hlýtur að vera Mosfellingum vonbrigði. Sjötta sæti í deildinni og tap í tveimur leikj- um í átta liða úrslitum, annað árið í röð. Vissulega plöguðu meiðsli nokkra leikmenn liðsins. Munaði þar vafalaust mest um fjarveru mark- varðarins Arnórs Freys Stefáns- sonar. Þegar öllu er á botninn hvolft var Aftureldingarliðið ekki eitt um að glíma við slíka erfiðleika. Valur lék eins og við mátti búast. Varnarleikur liðsins var góður í leikjunum við Aftureldingu og mark- varslan ágæt í fyrri leiknum og bæri- leg í þeim síðari. Sótt var af yfir- vegun og þolinmæði sem reyndi mjög á þolrif Aftureldingarmanna. Hins vegar bar sóknin árangur. Það skiptir öllu máli. Ekki eru veitt sér- stök verðlaun fyrir skemmtilegan sóknarleik. Ekki er útilokað að hreppa verðlaun með árangurs- ríkum sóknarleik þegar upp er staðið, þótt hann sé óskemmtilegur, ekki síst sé varnarleikur og mark- varsla í lagi. Eins og Valsliðið lék gegn Aftureldingu minnir það á meistaralið Vals fyrir tveimur árum. Hvort það dugir Hlíðarendaliðinu að þessu sinni skal ósagt látið. Valur mætir Selfossi í undan- úrslitum. Þá mætir Hlíðarendaliðinu allt öðruvísi og sprækari andstæð- ingur með meira sjálfstraust en Afturelding. Blaðran sprakk Eftir sigurinn í bikarkeppninni var allur vindur úr leikmönnum FH. Kom það berlega fram í leikjunum við ÍBV í átta liða úrslitum. ÍBV-liðið vann tvo sannfærandi sigra á slöku liði FH sem hafði ekki uppi mikla burði til þess að framlengja þátttöku sína í úrslitakeppninni. Eyjaliðið var sterkara á öllum sviðum. Varnarleik- urinn var framúrskarandi auk þess sem óvæntur senuþjófur steig á svið, Björn Viðar Björnsson markvörður. Björn Viðar lék FH-inga grátt í fyrri leiknum. Á sama tíma var mark- varsla FH-inga slök en hreinlega í takt við annan leik liðsins í leikj- unum tveimur. Eins og lokasprettur FH-inga var í deildinni að viðbættri frammistöðinni gegn ÍBV átti liðið ekki skilið að komast lengra. Eftir allt sem á undan er gengið hjá ÍBV-liðinu virðist það vera að ná hámarksárangri á réttum tíma og það án sterkra leikmanna eins og Theodórs Sigurbjörnssonar og Grét- ars Þórs Eyþórssonar. Haldist hóp- urinn heill hjá ÍBV-liðinu verða leik- menn Hauka eða Stjörnunnar lítt öfundsverður af að mæta Eyjamönn- um í undanúrslitum. Íslandsmeist- ararnir virðast vera komnir á skrið. Frammistaðan gegn FH var rökrétt framhald af síðustu leikjum ÍBV í deildarkeppninni. Óheppni og agaleysi ÍR-ingar voru óheppnir að ná ekki að kreista fram oddaleik gegn Sel- fossi, í það minnsta framlengingu í öðrum hvorum eða jafnvel báðum leikjum. ÍR-tapaði með eins marks mun í báðum leikjum og fékk tæki- færi til þess að jafna í báðum leikjum á síðustu sekúndum. Kannski skorti liðið meiri aga þegar allt kom til alls. Síðasta uppstillta sóknin gegn Sel- fossi í síðari leiknum á mánudaginn hefði að ósekju mátt og getað verið lengri. Selfossliðið fær alvöruprófraun í undanúrslitum gegn Valsmönnum. Varnarleikur og markvarsla þarf að vera heilsteyptari en í leikjunum við ÍR. Skemmtun tryggði ekki nema einn oddaleik  Bíða Hauka sömu örlög og fyrir tveimur árum?  Eyjamenn toppa á réttum tíma Morgunblaðið/Árni Sæberg Í eldlínunni Tjörvi Þorgeirsson, leikstjórnandi Hauka, og Stjörnumaðurinn Aron Dagur Pálsson verða í eldlínunni með liðum sínum í oddaleik í kvöld. Þjálfarar þriggja liða sem þegar eru úr leik í úrslitakeppninni halda ekki allir áfram að vinna fyrir lið sín að loknu keppnis- tímabilinu. Fyrir nokkru var ljóst að Halldór Jóhann Sigfússon stýrði FH-liðinu í síðasta sinn í úr- slitakeppninni. Hann hefur ráðið sig til handknattleikssambands Barein. Í mars var tilkynnt að Sigursteinn Arndal tæki við þjálf- un FH-liðsins af Halldóri Jóhanni eftir fimm ára starf. Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR, skrifaði í síðustu viku undir nýjan samning við félagið. Hann stýrir ÍR-liðinu næsta árið, hið minnsta. Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar síðustu fimm ár, er með samning við Aftureldingu út keppnistímabilið 2020. Ekki liggur annað fyrir en að við samninginn verði staðið af beggja hálfu. Af þeim liðum sem ekki komust í úrslitakeppnina en leika áfram í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð liggur fyrir að Stefán Árnason verður áfram við stjórnvölinn hjá KA. Við hlið hans verður Jónatan Þór Magnússon sem leysir Heimi Örn Árnason af. Stefán og Heimir voru þjálfarar KA í Olísdeildinni í vetur. Guðmundur Helgi Pálsson stýrir liði Fram á næsta keppnistímabili. Hann skrifaði á síðasta ári undir langtímasamning við Safamýrar- liðið. Kári Garðarsson heldur áfram þjálfun Fjölnis en lið félagsins verður nýliði í úrvalsdeild á næstu leiktíð. Undir stjórn Kára vann Fjölnir 1. deild, Grill 66-deild karla, á dögunum. iben@mbl.is Aðeins einn þjálf- aranna er á förum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Áfram Bjarni Fritzson stýrir ÍR- liðinu a.m.k. í ár til viðbótar. Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Sími: 411 5000 www.itr.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.