Morgunblaðið - 24.04.2019, Síða 27
Eitt
ogannað
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019
Smiðjuvegi 66 • 580 5800 • landvelar.is
Loftpressur af öllum
stærðum og gerðum
STIMPILPRESSUR
Mikð úrval af aukahlutum
Víkingur úr Reykjavík hefur fengið
til liðs við sig knattspyrnumanninn
Ágúst Eðvald Hlynsson sem hefur ver-
ið í röðum Bröndby í Danmörku í hálft
annað ár og samið við hann til þriggja
ára. Ágúst, sem er 19 ára sóknar-
maður, lék 16 ára gamall með Breiða-
bliki árið 2016 og skoraði þá tvö mörk
fyrir liðið í bikarkeppninni, ásamt því
að spila fjóra úrvalsdeildarleiki. Hann
fór síðan til Norwich City á Englandi
og þaðan til Bröndby haustið 2017.
Ágúst hefur leikið 24 leiki með yngri
landsliðum Íslands.
Barcelona þarf aðeins fjögur stig
enn úr fjórum leikjum til að verða
spænskur meistari í knattspyrnu en
liðið vann Alavés 2:0 á útivelli í gær-
kvöld. Carles Alena og Luis Suárez, úr
vítaspyrnu, skoruðu mörkin snemma í
seinni hálfleiknum. Barcelona á eftir
heimaleiki við Levante og Valencia og
útileiki við Celta Vigo og Eibar.
Belgíski miðjumaðurinn Kevin de
Bruyne verður ekki með Manchester
City í kvöld vegna meiðsla, þegar liðið
mætir Manchester United
í mikilvægum granna-
slag á Old Trafford. De
Bruyne meiddist í
læri í sigri á Tott-
enham á laugar-
dag og varð að
fara af velli í fyrri
hálfleik en Pep
Guardiola, stjóri
City, sagði í gær
enn ekki ljóst ná-
kvæmlega hve alvar-
leg meiðslin væru.
Í VESTURBÆNUM
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
ÍR-ingar þurfa nú að finna leiðir til
að láta það ekki trufla sig að í næstu
viku gætu þeir gengið um götur
Reykjavíkur sem nýkrýndir Íslands-
meistarar í körfubolta. Þeir slógu út
silfurlið Njarðvíkur, þeir slógu út
deildar- og bikarmeistara Stjörn-
unnar, og í gær sýndu þeir enn og
sönnuðu hve mikið er í þá spunnið
með því að vinna fimmfalda Íslands-
meistara KR, í þeirra húsi, í fram-
lengdum spennuleik, 89:83. Björninn
er hins vegar langt frá því að vera
unninn – annað þessara liða veit upp
á hár hvernig á að vinna titla en hitt
heldur lærdómnum áfram í Selja-
skóla á föstudagskvöld.
Sá möguleiki að ÍR verði meistari
í fyrsta sinn í 42 ár, möguleiki sem
flestallir hefðu hlegið að í síðasta
mánuði þegar ÍR barðist við Hauka
um að komast hreinlega í úrslita-
keppnina, verður hins vegar æ raun-
verulegri. Liðið barðist frábærlega
fyrir sigrinum í gær og í stað þess að
reynsluboltarnir í hinu ævintýralega
sigursæla liði KR sæju um að klára
dæmið í þeirri spennu sem ríkti frá
upphafi til enda voru það ÍR-ingar, í
sínu fyrsta úrslitaeinvígi, sem sýndu
stáltaugar þegar það þurfti.
Gott dæmi um þetta var þegar
Matthías Orri Sigurðarson fór af
stað í lokasókn ÍR í venjulegum leik-
tíma, tveimur stigum undir. Hann
skýldi boltanum vel frá Michele Di
Nunno sem að lokum braut af sér
þegar fjórar sekúndur voru eftir.
Þar með fékk sá bandaríski sína
fimmtu villu og stimplaði sig út, en
Matthías glotti bara, gekk styrkum
skrefum að vítalínunni og skoraði úr
báðum vítum af miklu öryggi til að
jafna metin í 77:77.
KR spjaraði sig án Di Nunno og
komst stigi yfir þegar ein mínúta var
eftir af framlengingunni, um leið og
Kevin Capers lauk keppni með sína
fimmtu villu. Matthías reyndi svo
skot sem geigaði en þá reis upp Sig-
urður Gunnar Þorsteinsson og skil-
aði boltanum ofan í, auk þess að
hitta af vítalínunni þegar mest lá við.
KR virtist ætla að jafna metin í
næstu sókn en Julian Boyd fékk
dæmd á sig skref rétt áður en hann
losaði sig við boltann. Gerald Rob-
inson kórónaði góðan leik sinn með
troðslu og ÍR-ingar ærðust af fögn-
uði, ekki síst í stúkunni þar sem
magnaðir stuðningsmenn liðsins létu
vel í sér heyra allan leikinn líkt og
þeir hafa getið sér svo gott orð fyrir.
Grimmur og góður varnarleikur
ÍR-inga ætti ekki að koma KR á
óvart eftir það sem á undan er geng-
ið í úrslitakeppninni en var samt
grunnurinn að sigrinum. ÍR vill
halda skorinu í leiknum niðri og fékk
það í gær, og þó að liðið fái á sig
margar villur við að loka á andstæð-
ingana tekst að dreifa þeim ágæt-
lega á milli manna. Capers er magn-
aður íþróttamaður sem naut sín vel í
gær, brosti út að eyrum og gat varla
hamið sig af gleði þar sem hann lýsti
öllu sem gengið hafði á í mynd-
símtali við sína nánustu aðstand-
endur strax eftir leik. Robinson nýtti
skotin sín afar vel og tók af skarið
þegar þess þurfti, með þristum eða
mikilvægum sóknarfráköstum, og
Sigurður átti einnig mjög góðan leik.
Pavel Ermolinskij var frábær í liði
KR og nálægt þrefaldri tvennu.
Allir hættir að
hlæja að
möguleikanum
ÍR vann framlengdan spennutrylli og
tók forystu í sínu fyrsta úrslitaeinvígi
Morgunblaðið/Eggert
Sterkur ÍR-ingurinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson reynir skot að körfu
KR-inga þar sem Pavel Ermolinskij reynir að verjast honum.
DHL-höllin, fyrsti úrslitaleikur karla,
þriðjudag 23. apríl 2019.
Gangur leiksins: 6:4, 6:10, 14:12,
14:20, 21:24, 28:30, 32:38, 40:44,
44:46, 54:50, 58:56, 62:63, 66:69,
70:71, 74:75, 77:75, 77:77, 77:80,
83:82, 83:89.
KR: Jón Arnór Stefánsson 16, Krist-
ófer Acox 16/11 fráköst, Julian Boyd
15/9 fráköst/6 stoðs., Pavel Ermol-
inskij 15/11 fráköst/7 stoðs., Michele
Di Nunno 11, Helgi Már Magnússon
5, Emil Barja 3, Björn Kristjánsson 2.
Fráköst: 28 í vörn, 10 í sókn.
KR – ÍR 83:89
ÍR: Kevin Capers 28/6 fráköst, Ger-
ald Robinson 21/6 fráköst, Sigurður
Gunnar Þorsteinsson 14/10 frá-
köst/5 stoðsendingar/3 varin skot,
Matthías Orri Sigurðarson 12/6 frá-
köst, Sæþór Elmar Kristjánsson 5/6
fráköst, Sigurkarl Róbert Jóhann-
esson 4, Daði Berg Grétarsson 3,
Trausti Eiríksson 2.
Fráköst: 29 í vörn, 11 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Leifur
Garðarsson, Davíð Hreiðarsson.
Áhorfendur: 1.450.
Staðan er 1:0 fyrir ÍR.
Tottenham styrkti stöðu sína í
þriðja sæti ensku úrvalsdeildar-
innar í gærkvöld með naumum
heimasigri á Brighton, 1:0. Hann
stóð tæpt því Christian Eriksen
skoraði sigurmarkið með góðu
skoti rétt utan vítateigs á 88. mín-
útu en Tottenham hafði sótt linnu-
lítið að marki Brighton stóran hluta
leiksins.
Tottenham er með Meistara-
deildarsætið í eigin höndum en liðið
á eftir heimaleiki við West Ham og
Everton og útileik við Bourne-
mouth. Fái Tottenham sjö stig úr
þessum þremur leikjum er öruggt
að liðið endar í þriðja eða fjórða
sætinu, sama hvað keppinautarnir í
Chelsea, Arsenal og Manchester
United gera.
Shane Long setti nýtt met í
efstu deild á Englandi með því að
skora fyrir Southampton gegn Wat-
ford eftir 7,69 sekúndur. Ledley
King úr Tottenham átti metið, 9,82
sekúndur frá árinu 1999. Watford
náði að jafna leikinn á lokamín-
útunni, 1:1. vs@mbl.is
AFP
Sigurmark Christian Eriksen fagnar markinu dýrmæta gegn Brighton.
Tottenham þarf sjö
stig til viðbótar